Maríu Magdalenu hefur verið teflt fram með ólíkum hætti í listasögunni. Það kemur glöggt fram á sýningu í Städel-safninu í Frankfurt sem nú stendur yfir og Kirkjublaðið.is skoðaði. Allir þeir sem eiga leið um Frankfurt og hafa áhuga á trúar- og menningarlistasögu ættu ekki að láta fram hjá sér fara.

Tvö þúsund ára saga lista- og trúarhefðar hefur dregið upp mynd af Maríu Magdalenu sem oft er harla ólík þeirri sem guðspjöllin geyma.

Þar kemur margt til en mestu munar um að rómversk-kaþólska kirkjan stimplaði hana sem hórkonu á sjöttu öld en viðurkenndi 1969 að það hafi verið mistök af hennar hálfu. Rómversk-kaþólska kirkjan hætti að lesa texta Lúkasarguðspjalls (7.36-50 – þar segir frá bersyndugri konu er smurði fætur Jesú) á messudegi hennar og les nú þess í stað texta Jóhannesarguðspjalls (20.1-2, 11-18) þar sem segir frá því er María Magdalena hittir Jesú upprisinn og hraðar sér svo til lærisveinanna til að segja þeim tíðindin.

Karlarnir í Vatíkaninu hafa löngun talið sig geta túlkað hlut kvenna í kristinni trúarsögu og ráðskast með þær til að styrkja völd sín. Þessi trúarlegi ruglingur þeirra með Maríu Magdalenu var guðfræðilegt glappaskot sem sumum var kannski þrátt fyrir allt að skapi því að hórkonustimpillinn gat lagt stein í götu þeirra kvenna sem kynnu að líta til hennar sem leiðtoga og viljað feta í fótspor hennar. Sannarlega var hún leiðtogi og snjall prédikari sem endurheimt hafði sjálfa sig eftir að sjö illir andar voru reknir út af henni og komst til forystu í hinni nýju hreyfingu við Galíleuvatn.

Rétttrúnaðarkirkjan varðveitti hins vegar myndina af Maríu Magdalenu sem boðbera upprisunnar og ruglaði henni ekki saman við syndugar konur. Í rétttrúnaðarkirkjunni er María Magdalena sögð vera jafnoki postulanna og skipar heiðurssæti þar sem hún kom færandi hendi með ilmefni til að smyrja andaðan líkama Jesú Krists.

Þetta viðhorf til Maríu Magdalenu sem portkonu sem sneri sér frá sollinum hafði mótandi áhrif á það hvernig listamenn settu hana fram í listaverkum sínum og gera enn. Það er alkunna að erfitt getur reynst að breyta rótgrónum viðhorfum til einstaklinga og atburða í menningarsögunni.

Listamennirnir sýna Maríu Magdalenu sem syndara, tálkvendi, iðrandi konu sem íhugar líf sitt og reynslu. Hún kemur líka fram sem syrgjandi kona, trúarvottur og femínísk táknmynd.

Auðvitað fóru listamennirnir eftir línu rómversk-kaþólsku kirkjunnar enda hafði hún túlkunarvaldið sem allir urðu að beygja sig undir.

Þannig var María Magdalena fórnarlamb rangtúlkunar sem kirkjuvaldið nýtti sér í eigin trúarlegu hagsmunaskyni með því að leggja áherslu á hana sem fyrirmynd hins iðrandi syndara sem snúið hafði af villu síns vegar og gengið til liðs við Jesú frá Nasaret. Síðar komst hún í dýrlingatölu og var dýrlingur hinna iðrunarfullu (hvað annað!), ilmgerðarmanna, hárgreiðslufólks og lyfjafræðinga svo nokkuð sé nefnt.

María Magdalena þvoði aldrei fætur Jesú né kyssti og þerraði með hári sínu eftir því sem guðspjöllin greina. Það er vitaskuld í sjálfu sér broslegt að hugsa til þess þegar horft er á listaverkin er sýna hina syndugu konu umvefja fætur Jesú með kossum og síðu hári. Listaverkin geyma því þessa ósönnu sögu um hina merku konu, Maríu Magdalenu.

Segja má að María Magdalena standi uppi sem sigurvegari. Hennar er fyrst og síðast minnst sem mikilvægasta boðbera upprisu Jesú Krists en hann sjálfur bað hana um að flytja þennan kjarna kristinnar trúar til lærisveinanna. Fékk enda heiðurstitilinn: postuli postulanna.

Listaverkin á sýningunni í Städel-safninu geyma öll verk sem draga fram ofangreindar hugmyndir. Þess vegna má segja að ímynd Maríu Magdalenu sé flókin, harmræn og heillandi í senn.

María Magdalena varð dýrlingur og dýrkun hennar barst til Íslands eftir 1200. Nokkrar kirkjur voru helgaðar henni ásamt öðrum dýrlingum. Reykjakirkja í Fljótum var þó henni einni helguð. Hinar voru til dæmis Grunnavíkurkirkja, Meðalfellskirkja, Skarð á Skarðsströnd og Þerneyjarkirkja.

Nokkrar kirkjur áttu líkneski af Maríu Magdalenu: kirkjan á Borg á Mýrum, Hólakirkja, Oddakirkja, Rípurkirkja, Skútustaðir og Þykkvabæjarkirkja. [1]

María Magdalena var vel stöndug kona og studdi grasrótarstarf meistarans frá Nasaret með fjármunum sínum ásamt öðrum konum. Það er líka sagt að peningarnir séu afl þeirra hluta sem gera skal. Í Heilagra manna sögum (Marthe Saga ok Marie Magdalene) er örlítil félagsleg greining á stöðu Maríu Magdalenu sem hljóðar svo til gamans:

Hún var eigi aðeins tigin að kyni, heldur var hún og stórauðug af þeim peningum, er hún erfði eftir föður sinn; því varð hún stórum fræg af þeim tveim hlutum, auð og ætterni, er þessi heimur prísar mest. En oftlega fylgir eftirlífi svo sem förunautur auðleikans, og gnótt fjárhlutanna kennir sællífi, hafði hún á hinum yngra aldri lifað eftir lystingum líkama síns, að slitnu taumalagi skírlífis, og drýgði margs konar munúðarlíf, þar til er hún fann umbót allra sinna annmarka af fundi vors herra í húsum Símonar farísea yfirgyðings. [2]

Það skráist á syndaregistur Gregoríusar mikla páfa (540-604) að hafa ályktað svo að María Magdalena væri hin bersynduga kona er þvoði fætur Jesú. Þetta er haft eftir páfanum mikla, í Heilagra manna sögum (Marthe Saga ok Marie Magdalene):

„Þá er ég hugsa til iðran Maríu, líkar mér heldur að gráta en nokkuð að segja; eða hver mun hafa svo járnlegt brjóst, að eigi munu tár þessarar syndugu konu bleytt þá til eftirdæma synda iðurnar. Óboðin gekk hún inn í milli boðsmanna, grét hún á milli þeirra er með fagnaði snæddu. Segið þér með hverjum harmi sá hitnar, og að snæðingnum situr. Saurga leit hún sig, en þvoandi rann hún til miskunnarbrunnsins. Sýnt er, að konan, sú er fyrrum gaf sig upp fyrir óleyfilegum hlutum, mun smyrsl hafa borið á líkama sinn fyrir eftirlífis sökum, til þess að hún ilmaði vel.  Með augunum hafði hún girnst óleyfilega hluti, hárið hafði hún plagað til þess, að hún sýndist fríðari sínum elskurum; því þvoði hún fætur drottins með tárum, en þerraði með hári og smurði með smyrslum, og þeim munninum, er áður hún hafði syndgað með, kyssti hún fætur drottins. Svo margar fórnir fann hún af sjálfri sér, sem hún hafði óleyfðar lystingar í sér. Tölu lastanna sneri hún í tölu mannkostanna, að allt þjónaði það guði í iðraninni, sem áður gerði hann reiðan í syndinni.“[3]

„En hjá krossi Jesú stóðu móðir hans og móðursystir, María, kona Klópa, og María Magdalena.“ (Jóhannesarguðspjall 19.25).
Þetta málverk er eftir þýsk-svissnesku listakonuna Ottilie Roederstein (1859–1937) sem varð eftirsóttur portrettmálari í Frankfurt en fór fljótlega einnig að mála trúarleg verk sem tjáðu með sérstökum hætti viðleitni hennar til að öðlast viðurkenningu en kirkjuleg myndlist hafði fram til þessa verið í höndum karla. Hér stendur María Magdalena við kross Krists með spenntar greipar og leggur vanga sinn að krosstrénu. Augu hennar eru hálflukt og svo virðist sem hún horfi til áhorfandans. Úr andliti hennar má lesa djúpa sorg og örmögnun. Rauðleit klæði hennar eru andstæða við járnagráan himin. Myndbyggingin færir áhorfandann nær hinni trúföstu og tryggu Maríu Magdalenu en Kristur á krossinum er utan myndflatarins en hvílir í minni hugans. Túlka má þessa mynd af Maríu Magdalenu af þeim sem misst hefur og biður um huggun og skilning.

Þetta er málverkið Kristur birtist Maríu Magdalenu (Noli me tangere: snertu mig ekki) eftir franska barokklistmálarann Laurent de La Hyre (1606-1656), málað árið 1656. María Magdalena teygir sig fram í von um að snerta hann. Hann hörfar varlega undan, en teygir sjálfur fram höndina til að snerta enni hennar.        Jesús segir við hana: „Kona, hví grætur þú? Að hverjum leitar þú?“
Hún hélt að hann væri grasgarðsvörðurinn og sagði við hann: „Herra, ef þú hefur borið hann burt þá segðu mér hvar þú hefur lagt hann svo að ég geti sótt hann.“
Jesús segir við hana: „María!“
Hún snýr sér að honum og segir á hebresku: „Rabbúní!“ (Rabbúní þýðir meistari.)
Jesús segir við hana: „Snertu mig ekki. Ég er ekki enn stiginn upp til föður míns. En farðu til bræðra minna og seg þeim: Ég stíg upp til föður míns og föður ykkar, til Guðs míns og Guðs ykkar.“
María Magdalena kemur og boðar lærisveinunum: „Ég hef séð Drottin.“ Og hún flutti þeim það sem hann hafði sagt henni. (Jóhannesarguðspjall 20.15-18.)

Þetta málverk er eftir þýsku listakonuna Lovis Corinth (1858 –1925) og heitir María Magdalena grætur. Málað 1911. Nektin er tákn um varnarleysi og María Magdalena heldur á hauskúpu undir barmi sínum sem er tákn dauðans og áminning um forgengileika manneskjunnar: memento mori. Hún horfir upp og sennilega til krossins. Tár hennar eru björt og andlitssvipurinn örvæntingarfullur. Myndin er í expressjónískum stíl.

Þetta málverk er eftir svissneska listamanninn Arnold Böcklin (1827-1901) og sýnir örvinglaða Maríu Magdalenu við líkbörur Krists. Allt látbragð hennar tjáir yfirþyrmandi angist. Hún bregður annarri hendinni fyrir augu sín og enni en munnurinn er opinn og gefur til kynna harmakvein. Hægri hönd sinni hefur hún slegið til í tilfinningalegu umróti sínu. Hér stendur vanmáttug kona andspænis hinum mikla harmi. Hreyfingar hennar og látbragð eru andstæða kyrrðarinnar sem hvílir yfir hinum andaða líkama Krists. Svört hálfgagnsæ flík Maríu Magdalenu sveipast að hluta um líkama Krists og tengir þau saman. Litirnir kalla fram andrúmsloft dauðans, grár, fölhvítur og svartur. Segja má að tilfinningalegur kjarni myndarinnar felist í hvernig hinni angistarfullu Maríu Magdalenu er teflt fram andspænis örlögum meistara síns og sínum eigin.

Þetta málverk er eftir ítölsku barokklistakonuna Elisabetta Sirani. (1638–1665). Munúð er veigamikill þáttur í trúarlegri merkingu listaverksins. Nakinn efri hluti líkamans, flæðandi hárið og íburðarmikið efnið gera jarðneska fegurð áþreifanlega. María Magdalena er í djúpri íhugun og iðrun svo nálgast trúarlega alsælu sem lukt augu hennar og hálfopinn munnur draga vel fram sem og höfuðið er hallar aftur. Svipa í kjöltu hennar er merki um sjálfsaga og hauskúpan vísar til fórnar og dauða og er sem fyrr memento mori: áminning um dauðann og hverfulleika jarðneskrar fegurðar. Á vegg er róðukross og Biblía á borði. Skálína frá höfði og niður eftir fölleitri hönd sem hvílir á hauskúpunni tengir saman hold og dauða. Glæsileiki Maríu Magdalenu umhverfist í hugleiðingu um hverfulleika lífsins. Sítt lausbundið hárið er gamalt myndmál er leggur áherslu á iðrun hennar og yfirbót.

Þetta verk er eftir bandaríska listamanninn David LaChapelle (f. 1963) frá árinu 2003 og er sviðsett ljósmynd prentuð með sérstakri tækni. Það er úr myndaflokknum Jesús er heimilisdrengurinn minn og bendir ákveðið til trúarlegs myndmáls í hefðbundnum málverkum þar sem tilfinningum er gefinn nokkuð laus taumur. Hér er María Magdalena við fætur Jesú í nútímalegu og hversdagslegu eldhúsi í gullinni umgjörð svo að minnir á helgimynd. Dregin er upp sterk andhverfa milli Jesú og Maríu Magdalenu þar sem hún krýpur við fætur hans en hann situr. Klæði Jesú eru samkvæmt biblíulegri myndmálshefð en María Magdalena er fáklædd sem gefur undir fótinn með næturlíf og líkamlegt falboð. Svo er að sjá sem Jesús sé að blessa tiltæki Mariu Magdalenu um leið og hún þrýstir höfði sínu og hári að fótum hans. Auðvitað má spyrja hvort verið sé að gefa til kynna trúarlega nánd hennar við Jesú eða hvort lesa megi úr myndinni undirgefni gagnvart meistaranum og þar með valdi trúarlegra stofnana. Umhyggja konunnar er gefin sterkt til kynna, kærleikur hennar og ástúð. Svipur Jesú er allóræður og horfir hann til hliðar út úr myndinni. Í þessu nútímaverki eimir enn mjög svo sterkt af viðhorfi rómversk-kaþólsku kirkjunnar til hennar sem vændiskonu.

Þetta málverk er eftir flæmska barokklistmálarann Melchior de la Mars (c. 1585 – 1650) og sýnir dauða Maríu Magdalenu. Svipur hins deyjandi dýrlings skautar á milli alsælu og andlegrar uppgjafar. Áhorfandinn er umvafinn sterkum tilfinningum til að vekja samkennd með honum. Verkið er frá 1620-1630. María Magdalena er miðpunktur verksins og líkamsstaða hennar sýnir uppgjöf og örmögnun. Ýmis tákn eru í myndinni eins og hauskúpa sem stendur fyrir dauða og íhugun á forgengileika lífsins, svipa sem er tákn fyrir líkamlega yfirbót og sjálfsaga. Groddalegur klæðnaður vísar til meinlætalífs og afneitunar veraldlegra gæða. Róðukrossinn bendir til þjáningar Krists og trúarlegrar íhugunar. Þá er smyrslabuðkur Maríu Magdalenu á sínum stað. Vígt vatn er í gullinni fötu og kransinn sem engill heldur yfir höfði hennar er sigurtákn og himnesk upphefð. Hár Maríu Magdalenu er mikið að vanda og fagurt og af húð hennar slær bjarma. Í dauða sínum er María Magdalena umvafin englum. Í sögu Mörtu og Maríu Magdalenu í Heilagra manna sögum I, segir svo: „Eftir það er hún var sáluð, kenndu allir hjáverendur svo mikinn ilm, að alla sjö daga eftirkomandi þraut aldrei í þessu bænahúsi.“ [4]

Þetta málverk er eftir franska listmálarann Jean Béraud (1849–1935) og heitir Heilög María Magdalena í húsi Símonar farísea og er málað 1891. Á þessari mynd er María Magdalena komin í samkvæmi heldri manna á 19. öld þar sem jakkafataklæddir karlar sitja í kaffiboði ásamt meistaranum frá Nasaret. Þeir eru ákveðið tákn um vald, feðraveldi, andspænis konunni, Maríu Magdalenu, sem liggur umkomulaus á gólfinu, varnarlaus gagnvart valdinu og dómi samfélagsins. Hún er samanhnipruð með útréttar, biðjandi, hendur sem gefa til kynna auðmýkt, angist og uppgjöf. Þannig er María Magdalena miðpunktur myndarinnar en fatprúðir karlarnir hliðarefni og flestir þeirra horfa til hennar hugsi á svip, aðrir horfa til Krists og einn tendrar á vindli af kerti (sem alvöru vindlamaður gerir aldrei!). Kristur opnar faðm sinn fyrir konunni og mætti líta á það sem blessun eða beiðni um að veita henni athygli. Eða spyr hann þá kannski: „Hvað sýnist ykkur um þessa konu?“ Ljós klæðnaður Krists og svartur kyrtill mynda tengsl við karlahópinn og björt klæði Maríu Magdalenu sem er með gullbelti og gullnar faldperlur í þunnu skósíðu sjali og hún er með þvottakonuhnút, eða Venusarhnút, í hári. Þá er þarna þjónustustúlka hægra megin í myndinni sem gæti verið að segja: „Má ekki bjóða herramönnunum meira kaffi?“

Þetta er ljósmyndaverk eftir bandaríska listamanninn David LaChapelle (f. 1963) og hér sýnir hann samfélagsmiðlastjörnuna og viðskiptakonuna Kim Kardashian (f. 1980) sem Maríu Magdalenu. Hann steypir saman trúarlegu myndmáli og dægurmyndmáli fræga fólksins sem vill vera í sviðsljósinu. Sítt dökkt hár konunnar rammar inn andlit hennar og gefur til kynna að hér sé tigin kona á ferð. Blágrænn bakgrunnurinn sem ljómi stafar af myndar nánast geislabaug í kringum höfuð konunnar og auk þess sér í flöktandi stjörnur. Rauðleitir litatónar líkamans ásamt bleikum draga fram líkama konunnar sem umkringdur er þessum dýrðarljóma. Segja má að hér renni saman í eitt hið himneska og líkamlega. Tárin falla í stríðum straumi eins og silfurperlur og augu konunnar horfa eilítið upp á við – tárin geta líka verið eins konar led-ljósaþráður. Ekki er laust við að yfirbragð dýrlingsins sé ískotið munúð en svo var gjarnan í myndum af Maríu Magdalenu. Eilítill raunasvipur er á Maríu Magdalenu á þessari mynd en hún heldur ró sinni og er hvort tveggja í senn berskjölduð en þó í viðbragðsstöðu. Hún er sannarlega jarðnesk en umvafin ljóma annars heims.
Sem fyrr sagði er fyrirmyndin samfélagsmiðlastjarnan Kim Kardashian. Í myndinni stígur hún fram á sviðið sem dýrlingur og þar af leiðandi er einboðið að verkið kalli á samanburð við trúarlega tilbeiðslu og þá aðdáun og athygli sem frægt fólk fær og sækist eftir enda þótt það sé ekki ætíð sátt við hana. Þetta er veraldleg tilbeiðsla.

Hér má lesa athyglisverða prédikun þar sem María Magdalena kemur við sögu.

Loks má benda á bók sr. Þórhalls Heimissonar um Maríu Magdalenu sem kom út 2008 og bar titilinn: María Magdalena: vegastjarna eða vændiskona? 

Tilvísanir

[1] Heilagra manna sögur – fortællinger om legender om hellige mænd og kvinder, I: Marthe Saga ok Marie Magdalene, útg. Cr. Unger, Christiania, 1877, 513-514.

[2]  Cormack, Margaret. The Saints in Iceland – Their Veneration from the Conversion to 1400. Formáli eftir Peter Foote. Subsida Hagiographica 78. Société des Bolliandistes, 1994, 130-131.

[3]  Heilagra manna sögur – fortællinger om legender om hellige mænd og kvinder, I: Marthe Saga ok Marie Magdalene, útg. Cr. Unger, Christiania, 1877, 515-516.

[4]  Heilagra manna sögur – fortællinger om legender om hellige mænd og kvinder, I: Marthe Saga ok Marie Magdalene, útg. Cr. Unger, Christiania, 1877, 539.

Tilvitnaður texti úr Heilagra manna sögum er færður til nútímamáls að mestu leyti 

Viltu deila þessari grein með fleirum?