Í dag er siðbótardagurinn þegar þess er minnst að Marteinn Lúther (1483-1546) festi mótmælagreinar sínar 95 á hurð Hallarkirkjunnar í Wittenberg 31. október 1517. Síðan kom hann hugmyndum sínum á framfæri í fregnmiðum og bæklingum en sú aðferð var vinsæl á hans tíma til að breiða út skoðanir og flytja fréttir. Væri Lúther uppi á vorum dögum hefði hann líklegast skellt mótmælum sínum inn á Feisbók og Instagram. Já, og X-ið, jafnvel TikTok. Með samfélagsmiðlum nútímans hefði honum tekist að skapa athyglisverða ímynd af sjálfum sér og eflaust jafn umdeilda og á dögum hans. Hart var sótt að honum og kannski hefði jafnvel verið sótt harðar að honum í dag og kommentakerfin logað. Kirkjuvaldið bannfærði hann – vildi hann feigan. Hann lifði það umsátur af.

En siðbótarfrömuðurinn er löngu fallinn að foldu. Samt lifir hann enn og þjóðkirkjan íslenska merkir sig honum. Boðskap kristinnar trúar skilur hún að mestu leyti út frá guðfræði hans en hefur þó að sjálfsögðu frelsi til að túlka og prédika fagnaðarerindið sem frjáls kirkja.

Margt var eftir honum haft og meðal annars það að kirkjan ætti að stunda sífellda siðbót. Sjálfsgagnrýni felst í trúarlegri hugsun hinnar eilífu siðbótar sem horfir til siðbótarmannsins. Henni má aldrei gleyma á fyrirferðarmiklum tíma glaðlyndrar sjálfsdýrkunar. Trúin var það eina sem skipti máli og hún var og er einn af mörgum hornsteinum í hamingjuhúsi mannsins.

Grunnur lútherskrar kirkju byggir á hugmyndum Marteins Lúthers. Þar er skilningur hans á hjálpræði mannsins efstur á blaði. Maðurinn nær ekki hylli almættisins með eigin verkum, hversu góð sem þau kunna annars að vera, en auðvitað á hann að sýna náunganum umhyggju og kærleika. Maðurinn veit hins vegar að hann er kengboginn inn í sjálfan sig eins og haft er eftir Lúther sjálfum. Þess vegna er það hégómagirnd og sjálfselska að færa góðverk og hugsanlegan árangur þeirra til bókar og stæra sig af þeim frammi fyrir öðrum og almættinu. En þetta er veikleiki mannsins og samfélagsins sem hann býr til. Veikleiki sem hann glímir við allar stundir.

Vettvangur mannsins er hversdagurinn og þar gefast honum ótal tækifæri til að ganga fram í anda meistarans frá Nasaret. Þetta er verkefni lúthersk-evangelískrar kirkju á öllum tímum. Þess vegna höldum við siðbótardaginn hátíðlegan og getum fest upp á allar kirkjuhurðir mótmæli gegn því sem við teljum vera andstætt kristnum trúarskilningi í anda Marteins Lúthers. Okkar kirkjuhurðir er meðal annars að finna á samfélagsmiðlum nútímans. Þar getur hver og einn verið meðvitaður um styrkleika sinn í veikleika sínum.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir