Næsta sumar verður haldin sýning í Koldinghus á kirkjulist Margrétar Danadrottningar og heitir hún Þráður trúarinnar. Þau sem verða á ferð nálægt bænum Kolding á Jótlandi næsta sumar ættu að bregða sér á þessa sýningu.

Margrét drottning hefur ætíð fengist við listsköpun og kirkjulist hefur átt hug hennar lengi. Messuklæði hennar má finna víða í kirkjum eins og altarisbrúnina sem hún saumaði út fyrir Hallarkirkjuna í Wittenberg í Þýskalandi, hökul sem hún hannaði árið 1985 fyrir Ammassalik-kirkju á Grænlandi og hökul fyrir Dönsku kirkjuna í London. Þessi verk verður hægt að skoða á sýningunni og mörg fleiri.

Á sýningunni verður leitast við að sýna hvernig drottningin vinnur kirkjulistaverk sín frá fyrstu hugmynd og þar til hún sest niður og saumar út eða slær vefinn uns verki er lokið. Gestir og gangandi hafa ætíð áhuga á því að skyggnast um í listrænum og sjónrænum myndheimi listamanna í sköpunarferlinu og velta fyrir sér táknum og tilvísunum sem kunna að leynast þar.

Glæsilegir höklar frá dómkirkjunni í Árósum verða til sýnis ásamt messuklæðum sem drottningin saumaði sjálf út fyrir hallarkirkjuna í Gråsten. Einnig verk úr dómkirkjunni í Haderslev, þar sem efnisafgangar úr eigin fötum og textílsafni Margrétar drottningar hafa orðið hluti af fullbúnum skrúða.

Margrét drottning hefur frá því að hún gerði sinn fyrsta hökul árið 1976 haft samstarf við félagið Kirkelig Kunst sem fagnar aldarafmæli á þessu ári.

„Margrét drottning er enn iðin útsaumskona sem nýtir hverja lausa stund til að sauma út. Þegar hún kemur til okkar hjá Félagi um kirkjulist tökum við á móti henni eins og öðrum listamönnum sem við vinnum með og reynum að skilja óskir hennar. Hjá Margréti drottningu fléttast trúin, handverkið og listin saman og mér finnst staðgóð þekking hennar á Biblíunni endurspeglast í kraftmiklu táknmáli hennar.“

Margrét drottning, sem nú er 86 ára, saumaði síðast út hökul fyrir dómkirkjuna í Viborg, sem var tekinn í notkun við vígsluathöfn fyrir rúmu ári.

Hér er skylt að geta þess að langalangamma Margrétar, Louise (1817–1898), kona Kristjáns IX (1818–1906) konungs, málaði altaristöflu Eyrarbakkakirkju. Taflan er máluð 1891 og er því sennilega elsta altaristaflan eftir konu í íslenskri kirkju.

Sýningin verður opnuð 4. júní og stendur til 28. nóvember 2027.

Messuhökull hallarkirkjunnar í Grásteini eftir drottninguna sem hún gerði 2018–2019. Mynd: Dorte-Krogh

Biskupskápa Árósardómkirkju og hana gerði Margrét drottning 1999. Hér má sjá tákn trúar, vonar og kærleika (kross, akkeri og hjarta). Efst sjást grísku stafirnir alfa og ómega er standa fyrir upphaf og lok heimsins – mynd: Dorte-Krogh

Margrét drottning í heimsókn hjá Félagi um kirkjulist (Selskabet for Kirkelig Kunst) í Kaupmannahöfn 2016. Mynd: Joachim Adrian/Politiken/Ritzau Scanpix

Heimild: Kristeligt Dagblad 22. október 2026 og Den Kongelige Samling 

Viltu deila þessari grein með fleirum?