Á þessu ári eru liðin fimmtíu ár frá því að Bjarnaneskirkja var vígð hinn 4. júlí 1976. Þess verður minnst nú um helgina og mun biskup Íslands Guðrún Karls Helgudóttir prédika í kirkjunni af því tilefni.

Bjarnaneskirkja – Hannes Kr. Davíðsson arkitekt teiknaði
Kirkjan var nítján ár í byggingu en framkvæmdir hófust þegar séra Rögnvaldur Finnbogason (1927–1995) var sóknarprestur í Bjarnanesprestakalli. Hann segir frá því í æviminningum sínum að bygging kirkjunnar hafi verið samþykkt eftir nokkurt þref og skyldi henni valinn staður í Bjarnanesi en það var hinn forni kirkjustaður. Hannes Kr. Davíðsson (1916–1995), arkitekt kirkjunnar, valdi staðinn sem var Flatatún og nánast lægsti bletturinn í Bjarnanestúninu. Sóknarnefndin hafði hins vegar hugsað sér einhvern af hólunum vestan við prestssetrið en arkitektinn hafði betur (sjá: Trúin, ástin og efinn – minningar séra Rögnvalds Finnbogasonar, Guðbergur Bergsson skráði, Forlagið 1988, bls. 151–152). Kirkjan var svo vígð 1976 eins og áður sagði og var það biskup Íslands sr. Sigurbjörn Einarsson (1911–2008) sem vígði hana en þáverandi sóknarprestur sr. Gylfi Jónsson (1945–2025) prédikaði. Kirkjan tekur um 100 manns í sæti.
Áður en nýja kirkjan var reist stóð sóknarkirkja á bökkum Laxár og hafði hún verið vígð 1911 en var svo rifin 1973 vegna þess að hún var óhæf til viðgerðar.
Gunnar Skarphéðinsson tók viðtalið sem hér er endurbirt við byggingameistara kirkjunnar, Guðmund Jónsson (1924-2019), og er það birt hér með góðfúslegu leyfi hans. Viðtalið birtist í Skaftfellingi 21. árg. 2011–2012.
Gunnar Skarphéðinsson
Gunnar er sonur séra Skarphéðins Péturssonar (1918–1974) sem var sóknarprestur í Bjarnanesprestakalli frá 1959–1974. Hann er fæddur í Reykjavík 2. júní árið 1947 og ólst þar upp til þrettán ára aldurs en vorið 1960 fluttist fjölskyldan til Hornafjarðar en þangað var faðir hans vígður til prestsþjónustu. Gunnar lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1968 og síðar BA-prófi í íslensku og sögu frá Háskóla Íslands. Hann stundaði einkum kennslu á framhaldsskólastigi þar til hann fór á eftirlaun.
Bjarnaneskirkja er einstakt guðshús hér á landi. Hún er nánast sem módernískur abstrakt skúlptúr í Flatatúni.
Guðmundur Jónsson byggingameistari
og kirkjubyggingin í Bjarnanesi
Bjarnanes í Nesjum í Hornafirði er sögufrægur staður og þar hefur verið prestssetur og kirkjustaður svo lengi sem sögur kunna frá að greina. Árið 1911 var kirkjan, sem þá stóð í Bjarnanesi, rifin og ný kirkja úr steinsteypu byggð austur við Laxá í Nesjum. Er óhætt að segja að sú bygging hafi verið afar mikið hús á sínum tíma en hún var með fyrstu steinsteyptu húsum sýslunnar. Undir kirkjunni var kjallari sem nýttur var til skóla- og samkomuhalds og almennra mannfunda. Kirkjuna teiknuðu Rögnvaldur Ólafsson (1874–1917) og Einar Erlendsson (1883–1968) og þótti hún sérlega falleg og reisuleg. Fremur fátítt mun hafa verið að íslenskar kirkjur væru hannaðar þannig að þær mætti samnýta með þessum hætti.

Kirkjan sem reist var 1911 á bökkum Laxár – mynd: Héraðskjalasafn Austur-Skaftafellssýslu
Þorleifur Jónsson (1864–1956) í Hólum segir í Ævisögu sinni að fólk úr sveitinni, sem dvalið hafði um nokkurra ára skeið í Vesturheimi, hafi kynnst þessu fyrirkomulagi þar.[1] Þorleifur fjallar einnig um það hvers vegna kirkjan var flutt og tilgreinir nokkrar ástæður. Ein var sú að byggð var á þessum árum tekin að vaxa talsvert á Höfn og með því að flytja kirkjuna þennan spöl, það er um það bil tvo kílómetra, var hún á vissan hátt betur í sveit sett en í Bjarnanesi þar sem Nesjasveit og þéttbýlið á Höfn voru ein kirkjusókn en þannig var málum raunar háttað allt til ársins 1953. Þá sáu menn einnig fyrir sér að þarna við Laxá yrði nokkurt þéttbýli með tímanum enda hefur sú orðið raunin. Loks skipti þriðji þátturinn ekki alllitlu máli en hann var sá að taka mátti efni til steypunnar með hægu móti úr farvegi árinnar en reynslan átti eftir að kenna mönnum að varasamt getur verið að gera slíkt þar sem mölin kann að vera menguð lífrænum efnum.
Árið 1911 var ekki langt um liðið frá því að menn tóku almennt að nota steinsteypu til húsbygginga á Íslandi og þekking á byggingarefninu og reynsla við vinnslu þess ekki ýkja mikil. Hin nýreista kirkja við Laxá reyndist ekki að öllu leyti jafn vönduð bygging og hún var glæsileg. Ekki liðu mörg ár frá byggingu hennar þar til hún þurfti viðhalds við og strax árið 1923 var turn hennar endurbættur. Þegar kom fram um 1950 var húsið orðið illa farið og árið 1952 var tekið í notkun félagsheimili í Nesjum og þar með var ljóst að kjallari kirkjunnar yrði ekki nýttur neitt til frambúðar. Árið 1956 var ástand byggingarinnar metið og lýsti fulltrúi húsameistara ríkisins því yfir að hún væri tæpast viðgerðarhæf.
Árið 1957 var hafin bygging nýrrar kirkju í Nesjasókn og nú á nýjan leik heima í Bjarnanesi. Arkitekt var Hannes Kr. Davíðsson (1916–1995) en Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen annaðist verkfræðilega hönnun. Kirkjubyggingin er óvenjuleg, svo ekki sé meira sagt, enda umdeild á sínum tíma. Tildrög þess að Hannesi var falið að teikna bygginguna voru þau, að sögn séra Rögnvalds Finnbogasonar, sem þá var sóknarprestur í Bjarnanesi, að á þessum tíma var mikið deilt um uppbyggingu Skálholtsstaðar.[2] Hannes Kr. Davíðsson blandaði sér í þær deilur og séra Rögnvaldur hreifst af málflutningi hans og röksemdum. Hannes hafði dvalið á æskuárum sínum á bænum Svínafelli í Nesjum og gengið í skóla sveitarinnar. Kann það líka að hafa valdið einhverju um að hann var ráðinn til verksins en Bjarnaneskirkja mun vera eina kirkjan sem Hannes teiknaði fyrir utan kirkju í Breiðholti fyrir kaþólska söfnuðinn. Hannes lauk sveinsprófi í múraraiðn árið 1938 en arkitektúr lærði hann í Kaupmannahöfn og lauk því námi árið 1945. Kjarvalsstaðir á Klambratúni, hús Gunnars Gunnarssonar rithöfundar að Dyngjuvegi 8 og Bjarnaneskirkja eru á meðal þekktustu verka hans.

„Kirkjan er nýstárleg hvað form snertir.“ segir Guðmundur meðal annars í viðtalinu
Kirkjan er nýstárleg hvað form snertir. Hún er mynduð af tveimur hlutum, annars vegar er píramídalagaður turn eða kór og hins vegar er kirkjuskipið sjálft en það stendur fyrir vestan turninn sem er óvanalegt miðað við það sem venjan býður. Kirkjuskipið er myndað með sveigðri hvelfingu sem rís talsvert og víkkar mót vestri. Hvelfingin gengur lítils háttar inn í turninn og rís þar eilítið í þessu stéli sem svo má kalla. Mun Hannes vera fyrstur íslenskra arkitekta til þess að vinna með þessa hugmynd um steypuskel þar sem veggir og loft renna saman í eitt.[3] Þetta er augljóslega ekki auðvelt viðfangsefni til þess að fást við verkfræðilega og framkvæmd verksins sjálfs margvíslegum vanda bundin. Fyrirmyndir að hönnun bygginga með þessu lagi mun Hannes hafa þekkt erlendis frá.[4] Viðureign við dagsbirtuna mun hafa verið Hannesi hugleikin um það leyti sem hann teiknaði kirkjuna í Bjarnanesi. Dagsbirta í kirkjunni berst úr einni átt, þ.e. úr vestri um glugga sem eru annars vegar á turninum og hins vegar á gafli kirkjuskipsins. Endurskin birtunnar gegnir hér mikilvægu hlutverki.[5]
Það er umhugsunarefni að jafn framúrstefnuleg byggingin skyldi á þessum tíma vera reist í tiltölulega afskekktu byggðarlagi. Eitt er það að fá hugmyndina en hitt er þá eftir að hrinda henni í framkvæmd og vinna verkið sjálft. Ekki þarf að fara mörgum orðum um það að byggingartækni var með allt öðrum brag þá en nú og allur vélakostur frumstæður að mati nútímans. Nægir til dæmis að nefna að byggingarkranar voru þá engir á þessu landshorni. Til þess að fræðast nokkuð um framgang verksins og við hvað var að kljást, höfum við fengið yfirsmiðinn, Guðmund Jónsson byggingarmeistara á Höfn, til þess að ræða við okkur.
Þú segir mér ef til vill í upphafi svolítið um ætt þína og uppvöxt að gömlum sið.
Ég er fæddur á Rauðabergi á Mýrum þann 26. janúar 1924. Foreldrar mínir voru Halldóra Guðmundsdóttir frá Hoffelli í Nesjum (1901–1985) og Jón Malmquist (1888–1956). Móðir mín var af skaftfellskum ættum í báðar ættir, en faðir minn var Skaftfellingur í móðurætt, en föðurættin var hálfnorsk. Ættarnafnið mun vera sænskt. Faðir minn var búfræðingur frá Hvanneyri og stundaði kennslu hér í sveitinni um nokkurt skeið ásamt búskap. Hann var fyrst bóndi á Rauðabergi á Mýrum en flutti þaðan að Fornustekkum hér í Nesjum en síðan að Hoffelli og þar man ég best eftir mér en þegar við fluttum þangað var ég fimm ára gamall. Faðir minn fékk nýbýlið Akurnes til ábúðar árið 1939, sama haust og stríðið skall á. Ég man vel eftir því þegar þýska skipið, Bertha Fisser, var skotið niður hér skammt utan við Ósinn og við heyrðum drunurnar langt inn í sveit en gluggarúður nötruðu í húsunum.[6] Bústofn föður míns var ekki mikill þegar hann hóf búskap í Akurnesi. Hann var með þrjár kýr, þrjátíu kindur og tuttugu tunnur af útsæði.
Ég á margar góðar bernsku- og æskuminningar frá Hoffelli og get tekið heils hugar undir það, sem Hallgerður heitin systir mín sagði einhvern tímann að það hefðu verið sönn forréttindi að fá að alast þar upp. Þrjár fjölskyldur bjuggu þá á þessum árum í Hoffelli. Það voru í fyrsta lagi afi og amma, það er þau Guðmundur Jónsson (1875–1947) og kona hans, Valgerður Sigurðardóttir frá Kálfafelli í Suðursveit (1872–1949). Valgerður amma mín var mikilhæf kona og af nokkru efnafólki komin. Faðir hennar, Sigurður Sigurðsson (1840 ̶ dáinn 1929 í Hoffelli), var oddviti í Suðursveit. Amma var hannyrðakona og lærði fatasaum vestur á Hörgslandi á Síðu. Guðmundur afi minn í Hoffelli var fjölhæfur maður, auk þess að vera bóndi, var hann góður veiðimaður og frumkvöðull á ýmsum verklegum sviðum. Hann var um skeið kaupmaður á Höfn og leitaði einnig talsvert að fágætum steinum og málmum hér í fjöllunum ásamt Birni Kristjánssyni kaupmanni (1858–1939). Það leiddi meðal annars til þess að hann fann silfurbergsnámu í Hoffellsfjalli.[7]
Einnig bjuggu í Hoffelli á þessum árum Leifur, móðurbróðir minn (1906–1970), og kona hans, Ragnhildur Gísladóttir frá Viðborði á Mýrum (1899 –1981), og svo loks pabbi og mamma. Móðir mín og amma höfðu sameiginlegt eldhús en lítið skot, sem mamma hafði sérstaklega út af fyrir sig, var kallað Draumahöllin. Foreldrar mínir eignuðust 12 börn, sem öll komust upp, og er ég sá þriðji í röðinni og elsti bróðirinn. Margt fólk var í heimili í Hoffelli og gestagangur mikill. Þangað komu jarðfræðingar eins og dr. Sigurður Þórarinsson (1912 ̶ 1983) og dr. Hans W:son Ahlmann (1889 ̶ 1974), sænskur land- og jöklafræðingur, sem skrifaði ágæt fræðirit um Vatnajökul og jafnframt ferðasögu þar sem lesa má prýðilegar lýsingar á Hoffellsheimilinu. Í þeirri bók má reyndar líka finna sérlega góða og eftirminnilega lýsingu á Valgerði ömmu minni.[8]
Hvað getur þú sagt mér um skólagöngu þína?
Ég var í barnaskóla hér í sveitinni hjá afburðakennara, Ásmundi Sigurðssyni (1903–1992) frá Reyðará í Lóni. Hann kenndi okkur ýmislegt sem þá var ekki venja að kenna barnaskólabörnum eins og til dæmis svolítið í jarðfræði. Ég man enn þegar hann var að segja okkur frá Tjörneslögunum og tímabilaskiptingu jarðsögunnar. Einnig kenndi hann okkur sund og söng þó að ekki væri hann meira en svo lagviss! Undirstaðan úr barnaskólanum var því góð. Ég og mín systkini nutum líka góðs af því að faðir minn var, eins og ég sagði, búfræðingur að mennt og kenndi okkur systkinunum heima. Ég fór síðan til náms að Héraðsskólanum að Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu. Þetta var haustið 1942. Við vorum tveir sem fórum saman héðan úr sveitinni. Sá sem með mér fór var jafnaldri minn og skólabróðir úr barnaskóla, Rafn Eiríksson frá Miðskeri (1924–2002), síðar skólastjóri hér í Nesjasveit. Það var í talsvert ráðist að fara til náms á þessum árum og ekki margir sem fóru í framhaldsnám eftir að barnaskólanum lauk. Ferðin hjá okkur félögum tók vikutíma en farið var sjóleiðis með Esjunni til Húsavíkur og komið inn á hvern fjörð á Austfjörðum. Á Borgarfirði eystra varð ég var við nokkurt uppistand en ég var snemma á fótum eins og ég hef alltaf verið. Skipsmenn höfðu greinilega einhvern vara á sér því sést hafði til þýskra flugvéla og voru þeir með byssur um borð. Skömmu áður en þetta átti sér stað hafði strandferðaskipið Súðin orðið fyrir árás og menn voru varir um sig.
Námið á Laugum var tveggja vetra nám. En eftir á að hyggja finnst mér að það hefði mátt vera einum vetri lengra og veita einhver réttindi. Mér féll vel á Laugum og þar voru góðir kennarar. Uppáhaldsnámsgrein mín var stærðfræði en hana kenndi fyrri vetur minn skólastjórinn, Leifur Ásgeirsson (1903–1990), en hann var með bestu stærðfræðingum landsins. Ég hef alltaf haft gaman af stærðfræði. Mikið var gert með íþróttir á Laugum. Þar var stundað sund og farið á skíði. Þorgeir Sveinbjarnarson (1905–1971), sem seinna varð forstjóri Sundhallar Reykjavíkur, kenndi íþróttir og vakti mikinn áhuga meðal nemenda sinna á þeim. Þorgeir var líka gott skáld og gaf út nokkrar ljóðabækur.
Yfirleitt á ég bjartar og góðar minningar frá Laugum. Mér gekk vel að kosta mig til námsins því á þessum árum var fiskútflutningur á vetrarvertíðinni hér á Hornafirði vegna stríðsins og hér voru færeyskar skútur og fékk ég vinnu ásamt fleirum við að ísa fiskinn niður í lestir. Kaupið var gott og nægði til að kosta námið en foreldrar mínir gátu ekki stutt mig enda vorum við systkinin mörg og kreppan var ekki langt að baki. Við skólafélagarnir keyptum heldur ekki neitt aukalega, ekki svo mikið sem kandísmola!

Guðmundur Jónsson (1924-2019) byggingameistari Bjarnaneskirkju – og sömuleiðis kirkjunnar á Höfn í Hornafirði
Húsasmíðar lærði ég í Reykjavík. Þangað fór ég haustið 1945. Faðir minn hvatti mig til náms þó að hann mætti illa missa mig frá búskapnum en hann hafði góðan skilning á gildi menntunar. Fyrst ætlaði ég að læra rafmagn, það voru allir menn með rafmagnsglampa í augunum á þessum árum! Ég lenti hjá Stefáni Runólfssyni frá Hólmi í Vestur-Skaftafellssýslu (1884–1954) en hann var bróðir Bjarna Runólfssonar (1891–1938), sem var kunnur maður fyrir þátt sinn í virkjunarmálum og virkjaði mikið í Vestursýslunni á árum áður og raunar víðar. Þegar ég hafði verið um tíma hjá Stefáni, kom í ljós, að ég gat í rauninni ekki lært hjá honum því hann hafði ekki réttindi. Ég var þess vegna í nokkrum vanda en var farinn að hafa áhuga á smíðum um þetta leyti. Ég hafði reyndar fengist við smíðar fyrir austan heima í Akurnesi. Ýmislegt fleira, sem tengdist smíðum, átti líka vel við mig, til dæmis brýndi ég alltaf ljáina í Akurnesi og ég hafði fengist við hlöðubyggingu í Hólum. Í vandræðum mínum fór ég til Helga Hermanns Eiríkssonar (1890–1974), sem var kunnugur mönnum hér vegna tengsla, en hann var kvæntur Jóhönnu Sigþrúði, dóttur séra Péturs Jónssonar á Kálfafelli í Suðursveit. Helgi var skólastjóri Iðnskólans en hann gat ekkert liðsinnt mér. Stefán Runólfsson gat síðan komið mér að hjá húsasmíðameistara. Hann hét Páll Guðjónsson (1904–1984) og var mikill dugnaðar- og ágætismaður. Hann borgaði verkamannakaup sem þótti gott fyrir iðnnema á þessum árum. En hann hafði hins vegar engan kostnað af okkur að öðru leyti. Meðan á dvölinni sjálfri í Iðnskólanum stóð höfðu iðnnemar hins vegar ekkert kaup. Með mér í Reykjavík var félagi héðan að austan, Björn Gíslason (1925–2001), sem var að læra rafvirkjun. Við leigðum hjá þjóðkunnum manni, Helga Sæm (1920–2004), á Gunnarsbraut. Þar var oft margt um manninn af Hornfirðingum og gestkvæmt og glatt á hjalla. Á þessum árum var mikil vinna í húsbyggingum, t.d. var Smáíbúðahverfið að byggjast. Ég byggði ásamt skólabróður mínum íbúðarhús í aukavinnu og fékk risíbúðina í minn hlut. Vinnutími var oft langur, en aldrei unnum við þó lengur en til tíu á kvöldin – góður nætursvefn er mönnum nauðsynlegur. Um þetta leyti höfðum við Sigrún Eiríksdóttir (1924–2008), kona mín, ákveðið að rugla saman reytunum og ég flutti því aftur austur til Hornafjarðar þar sem ég hef svo starfað alla mína tíð. Sigrún ólst upp í Volaseli í Lóni hjá Jóni Eiríkssyni (1880–1963) og konu hans, Þorbjörgu Gísladóttur (1882–1963). Um jólin 1949 keypti ég trésmíðaverkstæðið hér á Höfn og flutti hingað austur eftir áramótin.
Mér leikur forvitni á að vita hvað Guðmundur vill segja um hinn rómaða skaftfellska hagleik.
Já, ég tel að hann sé ekki þjóðsaga – enda þótt ég telji sjálfan mig ekki í hópi hinna skaftfellsku hagleiksmanna sérstaklega. En hagir menn á tré og járn hafa reyndar verið til í öllum sveitum þessa lands. En hér í sveit er hægt að nefna ýmsa menn sem voru góðir smiðir. Þar má meðal margra annarra nefna Hjalta Jónsson (1884–1971), afabróður minn í Hólum. Hann var ágætur smiður. Það var einnig Eymundur Björnsson í Dilknesi (1898–1996). Guðmundur afi var líka prýðilega lagvirkur, eins Sigurbergur Árnason í Svínafelli (1899–1983), einkum á járn, og Helgi Guðmundsson (1904–1981), móðurbróðir minn í Hoffelli og Ásgeir Guðmundsson (1894–1986) frá Þinganesi. Sigurjón Jónsson (1894–1984) frá Borgarhöfn í Suðursveit var ágætur smiður og fékkst mikið við þær hér í héraðinu og raunar ýmsir fleiri. Allt voru þetta hagvirkir menn og úrræðagóðir eins og bændur eru oft. Björn Eymundsson (1872–1947) lóðs var líka einn þessara högu manna.
Lá það beint við að þú værir ráðinn sem yfirsmiður við kirkjubygginguna?
Já, það má eiginlega segja það. Það var ekki í önnur hús að venda hér, ég var þá eini réttindamaðurinn í héraðinu. Eina skilyrðið af minni hálfu var það að fenginn yrði maður frá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen til þess að sjá um steypuna og bera ábyrgð á henni. Mér fannst sem það yrði mesti vandinn að fást við steypuna sjálfa enda kom það á daginn. Hannes Kr. Davíðsson var reyndar sjálfur lærður múrari og það spillti ekki fyrir að arkitektinn skyldi vera iðnlærður. Mér óx ekki í augum að undirbyggja bygginguna sjálfa með trégrindunum. Reynslan af valmaþökum, sem ég hafði fengist við í Reykjavík og víðar, hjálpaði mér einnig að vinna verkið. Ég vann við slík þök í Reykjavík, til dæmis við húsið á Ásvallagötu 26.
Ég spyr Guðmund um grunninn að kirkjubyggingunni. Var hann fremur auðveldur viðfangs?
Sá hluti verksins gekk ágætlega og er í raun ekki mikið um hann að segja. Það gekk vel að vinna hann og verkið var fremur einfalt. Undir turninum er kjallari en hins vegar ekki undir kirkjuskipinu sjálfu. Þar eru hins vegar stokkar sem leiða heitt loft inn í skipið frá kyndingu sem komið er fyrir í kjallara turnsins. Grunnurinn var, eins og lög gera ráð fyrir, fyrsti hluti verksins. Hafist var handa við bygginguna í ágúst árið 1957 og ári síðar var grunnurinn steyptur[9].
Þegar grunninum var lokið þurfti að taka afstöðu til þess hvort betra væri að byggja turninn á undan kirkjuskipinu eða öfugt. Hvað héldu menn um þetta atriði?
Já, það var hugmynd Sigurðar Thoroddsens (1902–1983) að byggja skyldi turninn fyrst en verkfræðistofa hans sá um verkið. Ég var hins vegar þeirrar skoðunar að betra væri að byrja á kirkjuskipinu. Ég ræddi það við verkfræðistofuna og þeir féllust á það. Ég leit þannig á að betra væri að taka lægri bygginguna fyrst enda gengur hún að hluta til inn undir hina. Síðan mátti nota kirkjuskipið sem stoð fyrir stillans eða vinnupall fyrir turninn. Þessu var hagað þannig og gafst ágætlega.
Kirkjuskipið var því næst á dagskrá. Það hefur væntanlega verið vandasamasti hluti byggingarinnar.

Við kirkjuskip Bjarnaneskirkju í uppslætti. Frá vinstri: Jóhannes Kristinsson, Ólafur Einarsson á Geithellum, Pétur Skarphéðinsson, Ásta Guðmundsdóttir, Guðmundur Guðbjartsson á Austurhól og Guðmundur Jónsson. Mynd: Héraðsskjalasafn Austur-Skaftafellssýslu
Jú, það má vissulega segja það. Það var mér mikilvægt að Hannes Kr. Davíðsson veitti mér alla þá aðstoð við bygginguna sem þörf var á og verkfræðistofan einnig. Hannes var alltaf viðbúinn með lausnir og maður kom aldrei að tómum kofunum hjá honum. Hann var ábyggilega mjög klár arkitekt. Ég var alveg óvanur þessari húsagerð eins og von var á. Undirslátturinn var talsverður. Hann var myndaður með ellefu timburgrindum, sem settar voru inn í grunninn, en þar sem kirkjuskipið víkkar og hækkar mót vestri eru allir punktar breytilegir. Eftir að grindurnar höfðu verið reistar voru plankar settir langsum ofan á grindur með ákveðnu millibili. Næst komu svo bönd, sem gufusoðin voru í ákveðnum þar til gerðum stokki, líkt og bönd á báta, og lögðust þau á plankana með vissu millibili. Innri klæðning mótanna kom svo á þessi bönd og var það tiltölulega einfalt mál að leggja hana. Innri klæðningin var reyndar ekkert vandamál í sjálfu sér nema hvað skái þurfti alltaf að vera annað slagið til þess að hallinn yrði réttur frá stéli skipsins að kirkjuopi. Hannes hafi gert ráð fyrir því í upphafi að byggingin yrði hvorki múruð né einangruð og því reyndum við að vanda verkið sem mest. En eftir á að hyggja tel ég að við hefðum átt að vanda enn betur vinnuna við mótatimbrið og til greina hefði komið að hefla það. En hér varð auðvitað að horfa til kostnaðar eins og raunar með margt fleira.
Næsta skref var síðan að leggja járnin. Járnagrindin var höfð tvöföld úr 10 mm járni enda varð þröngt um steypuna í mótunum sem voru þynnst 11 cm. Vel gekk að leggja og binda innri járnagrindina með hefðbundnum hætti. En þegar kom að ytri grindinni varð fljótlega ljóst að ekki var hægt að fá hana til að sitja nægilega fasta. Var brugðið á það ráð að rafsjóða hana og fengið leyfi hjá verkfræðingunum til þess. Þeir voru nokkuð hikandi við það því hugsanlegt var að hún myndi veikjast við rafsuðuna. Þeir gáfu samt leyfi til verksins eftir nokkra umhugsun. Verkinu var hagað þannig að búnir voru til litlir bútar um það bil fimm til sex cm en á lengd kirkjuskipsins er steypuskelin 17 cm á þykkt neðst en annars 11 cm. Þessir bútar voru síðan rafsoðnir fyrst við innri grindina en ytri grindin fær síðan stuðning af þeim. Þetta tókst allt vel og grindin haggaðist ekki og var hvergi hægt að sjá að hún hefði komið út í mótin eftir steypuna. Ekki þarf að fara mörgum orðum um það að þetta var mikið verk og vandasamt. Sá sem vann þetta verk að stærstum hluta var Guðmundur Guðbjartsson (1909–1996) bóndi á Austurhól. Raunar vann hann á öllum sviðum mikið og gott starf við bygginguna. Hann var maður gefinn fyrir vélar og nýjungar eins og þær gerðust á hans uppvaxtarárum. Hann tók manna fyrst bílpróf hér í sveit og var yfirleitt maður vélaaldar. Hann var hagleiksmaður á mörgum sviðum og hugkvæmur í besta lagi. Góður smiður bæði á tré og járn en meira fékkst hann þó við járnsmíði. Það er til marks um hugkvæmni Guðmundar að þegar ákveðið var að rafsjóða járnagrindina kom fljótt í ljós að nauðsynlegt var að steypustyrktarjárnið væri tiltölulega hreint og laust við ryð.
Járnið var talsvert ryðgað og mikil vinna reyndist að berja það og fága með vírburstum. Morgun einn kemur nafni minn til mín og er heldur glaðklakkalegur og segist hafa fundið lausn á málinu. Hann hafði þá krókbeygt tuttugu til þrjátíu járnstengur og svo búið til allstóra járnlykkju sem hann hengdi járnin í. Festi þetta loks allt saman aftan í bíl sinn, fornan trukk frá stríðsárunum, og ók með alla trossuna eftir malarveginum inn undir klettinn Skráp og til baka aftur. Það er ekki að því að spyrja, járnin voru spegilgljáandi og leiddu strauminn vel! Með Guðmundi við að rafsjóða járnin var ungur maður, Ólafur Einarsson frá Geithellum í Álftafirði. Hann gekk vel fram við verkið og var eitt sinn blindur í tvo daga af rafsuðuglampanum.
Nokkurt vandamál var hvernig ætti að ganga frá mótum ytri klæðningar til þess að halda þeim í réttri fjarlægð frá innri mótunum. Til þess að skýra þetta fyrir mönnum má líta á uppsláttinn eins og skip á hvolfi. Þegar kom að því að forma innri og ytri mótin kom Guðmundur á Austurhól með þessa hugmynd að gufusjóða borð, líkt og gert er í skipasmíði, eins og fyrr var nefnt. Þessi borð voru svo notuð á flatinn og voru sveigð eins og bönd eftir lögun kirkjuskipsins og héldu klæðningunni á réttum stað. Klæðningunni var svo smeygt undir böndin og síðan neglt í gegnum böndin og inn í klæðninguna. Síðan komu sex tommu plankar á kant þar utan á til þess að halda saman mótunum. Ytri klæðningunni var haldið í réttri fjarlægð með hefðbundnum passklossum. Þá var borað fyrir 8 mm teinum í gegnum bæði ytri og innri mótin og svokallaðir klamsar festir á endana á teinunum. Þeir voru svo hertir með klamsatöng að utan. Þennan búnað útvegaði Hannes sunnan úr Reykjavík. Plankar voru utan á mótunum samhliða plönkunum sem voru að innan. Á þessum plönkum stóðu menn svo við steypuvinnuna. Þess má reyndar geta hér í þessu sambandi að það kom nokkuð á óvart hve gott var að standa að verki við bæði turninn og kirkjuskipið vegna þess halla sem er á byggingunum báðum. Óþarft reyndist að smíða vinnupalla og gátum við staðið að verki án þess að reisa stillansa en það kom okkur þægilega á óvart. Upp á þessa járnteina smeygðu menn svo litlum trébútum sem negldir voru við klæðninguna. Þeir voru svo höggnir burt úr steypunni þegar steypt hafði verið og teinninn brotinn í farinu og múrað yfir.

Bjarnaneskirkja í byggingu – mynd: Héraðsskjalasafn Austur-Skaftafellssýslu
Þegar svo kom að því að steypa höfðu verið skildar eftir raufar í ytri klæðningunni. Við vorum búnir að sníða borð, sem ganga skyldu í þessar raufar, og merkja þau rækilega. Borðin voru lögð á vísan stað vestur í gamla kirkjugarðinum. Þessum tilsniðnu borðum var rennt í raufarnar eftir því sem steypuvinnunni miðað áfram og mótin fylltust. Vinnan við steypuna fór þannig fram að við vorum með tveggja poka vél og var steypan hrærð í henni. Steypunni var sturtað á pall og henni mokað í fötur og hún öll handlönguð í mótin. Magnið af steypu, sem fór í kirkjuskipið, var í raun ekki mjög mikið því mótin voru, eins og fram hefur komið, tiltölulega þunn. Það tók einn dag að steypa kirkjuskipið. Öll sú vinna var unnin í sjálfboðavinnu og menn komu af flestum bæjum í sveitinni í steypuvinnuna, allt austan frá Horni inn að Hoffelli. Á pallinum voru presturinn, séra Skarphéðinn Pétursson (1918–1974), og Valdi í Árnanesi (Valdimar Stefánsson 1893–1968) og hafa vísast rætt um pólitík milli tarna. Við fengum leigða tvo víbratora að sunnan en þeim varð ekki komið við því mótin voru of þröng og full af járni. Reynt var að berja mótin að utan og fá steypuna þannig til þess að hníga og jafna sig. Ungur verkfræðingur, Sigurbjörn Guðmundsson (f. 1933), kom frá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen til þess hafa umsjón með steypunni. Hann vildi hafa steypuna fremur þurra og þykka, eins og venja var, en víbratorarnir gengu ekki í hana og steypuna varð að mýkja smátt og smátt til þess að hún gengi í mótin. Þetta bjargaðist þannig að mestu leyti. Steypuvinna fór fram síðsumars árið 1961.
Það létti mér mikið að vinna ytra byrðið að hingað austur flutti um þetta leyti með fjölskyldu sinni, góður og vanur smiður, Jóhannes Kristinsson. Hann vann mikið við klæðninguna og það var mér stuðningur að fá lærðan smið með mér í verkið.
Sumarið 1962 var haldið áfram með kirkjubygginguna og tekið til við að slá undir turninn. Ég spyr Guðmund hvernig það verk hafi gengið.

Unnið við að steypa turninn – mynd: Héraðsskjalasafn Austur-Skaftafellssýslu
Ég gerði mér líkan heima í stofunni hjá mér á Dvergasteini af turninum eða öllu heldur undirslættinum. Mér fannst nauðsynlegt að smíða slíkt líkan því turninn rís ekki upp af miklum grunni og undirbyggingin varð að vera alveg rétt til þess að ekki yrðu skekkjur þegar línurnar mætast í turnspírunni. Líkanið hafði ég í hlutföllunum 1 á móti 10 en turninn er 11 metra hár. Líkanið var miðað við það að klæðingin kæmi á innri mótin. Það auðveldaði mikið að vinna verkið sjálft að hafa gert líkanið. Það var eins konar stofustáss en er nú glatað. Þetta var bara mín hugmynd að haga þessu svona. Vinnuaðferðin við turninn var svipuð og á kirkjuskipinu en allt var léttara við turninn og þægilegra við að fást. Þar voru beinar línur, líkanið að undirslættinum flýtti líka fyrir. Mótin voru þykkari og betra að fást við járnin og uppsteypuna. Reynslan frá skipinu hjálpaði líka mikið til þess að auðvelda verkið.
Eins og fram hefur komið í spjalli okkar, Guðmundur, var kyndingin sérstök í kirkjunni. Hvernig er henni háttað?
Hugmyndin um að leiða heitt loft eftir stokkum inn í kirkjuskipið er komin frá þeim Hannesi Kr. Davíðssyni og Sigurði Thoroddsen (1902–1983). Sigurður var enn á góðum aldri og mjög virkur á sinni verkfræðistofu sjálfur á þessum árum. Þessi upphitunaraðferð hefur gefist á margan hátt vel en nokkrar úrbætur hefur þurft að gera á seinni árum. Hannes var að hugsa um formin í og með þegar hann vildi ekki einangra bygginguna, með því móti verður skalinn annar og formin verða mýkri. Kirkjan var ekki múruð, eins og fram hefur komið, og borðaförin sjást, Hannes var ekki mikið að hugsa um þessi borðaför. Kyndingin hefur verið endurbætt á seinni árum og er það til bóta. Sú hugmynd kom fram fyrir ekki löngu síðan að einangra kirkjuna en verkfræðingar mæltu ekki með því og féllust á fyrri ráðleggingar.
Það vekur athygli að það eru einungis gluggar á móti vestri í kirkjunni en býsna stórir, einkum í turninum. Hvernig gekk að eiga við þá?
Já, það er rétt, það var erfitt að koma þeim fyrir – einkum í turninum og einnig gekk erfiðlega að flytja glerið svo langa leið. Mun hafa heppnast að koma því óbrotnu í þriðju tilraun – og þá fylgdi eigandi glerverksmiðjunnar með til þess að sjá um að allt færi vel!
Er þetta flóknasta verkefni sem þú hefur fengist við?

Innri mótagerð turnsins lokið – mynd úr Skaftfellingi 21. árg. 2010-2011
Nei, en tvímælalaust óvenjulegasta verkið. Það var slæmt að geta ekki lokið verkinu á eðlilegum byggingartíma en kirkjan var ekki vígð fyrr en árið 1976. Þessi dráttur spillti kannski ekki verkinu en það er alltaf slæmt þegar byggingartími dregst á langinn. Rétt er að geta þess að Hannes Kr. Davíðsson teiknaði einnig allt sem að tréverki laut í kirkjunni, kirkjubekkina, prédikunarstólinn og fleira. Þessar innréttingar voru smíðaðar hér á verkstæðinu hjá mér. Hannes útvegaði líka og valdi allt efni í kirkjubekkina og annað sem þeim tilheyrir og sendi teikningar af þeim. Þeir setja sinn svip á kirkjuskipið og hæfa vel.
Fáein eftirmálsorð.
Ég sem skrifaði þetta viðtal við Guðmund Jónsson var þrettán ára vorið 1960 þegar fjölskylda mín flutti frá Reykjavík austur til Hornafjarðar en faðir minn, séra Skarphéðinn Pétursson, hafði vígst prestur að Bjarnanesprestakalli haustið 1959. Við erum sjö systkinin, og það var talið rétt, að við lykjum skólaárinu í Reykjavík og flyttum ekki fyrr en að því loknu. Þrátt fyrir ungan aldur fengum við Pétur, bróðir minn, sumarvinnu hjá Guðmundi, og sumarið 1961 og sumarið 1962 unnum við í kirkjubyggingunni. Það er undarlegt að hugsa til þess að brátt skuli liðin hálf öld frá þessum sælu sumardögum en það er sammannleg reynsla að tíminn flýgur hratt. Tempus fugit – tíminn flýgur ̶ sögðu Rómverjar og öll hljótum við að beygja okkur undir þann vísdóm. Það hefur verið einkar ánægjulegt að rifja upp þessi ár með mínum ágæta og áhugasama verkstjóra, Guðmundi Jónssyni. Ég á ekki nema góðar minningar um vinnuna hjá honum og minnist einnig hans ágætu konu, Sigrúnar Eiríksdóttur, sem nú er látin. Stundum dvaldi ég á heimili þeirra þegar unnið var niðri á Höfn sem alloft var. Þar var mikið byggt á þessum árum og var Hafnarkirkja til dæmis byggð um þetta leyti. Sigrún var einstök kona og myndarleg í öllum verkum sínum. Man ég að ég svaf í stofunni á Dvergasteini og sannaðist þar eins og oftar að þar sem nóg er hjartarúm þar er einnig nóg húsrúm.
Við kirkjubygginguna unnu aldrei margir menn í senn, en mér er bæði ljúft og skylt að minnast míns góða vinar, Guðmundar bónda á Austurhól. Hann vann mikið starf og gott við bygginguna eins og fram hefur komið hér á undan.
Kirkjubyggingin var umdeild á sinni tíð, eins og lítillega hefur verið minnst á og þarf ekki að undrast það. Kom þar bæði til hið nýja form og staðarvalið sjálft. Þær deilur eru nú að baki og hafa ekki verið gerðar að umræðuefni hér en það er ánægjulegt til þess að hugsa að nú geta héraðsmenn litið til þessarar byggingar með nokkru stolti, því hvað sem mönnum annars kann að finnast um hina nútímalegu hönnun verksins, þá hljótum við að dást að hagleik og verkhyggindum þeirra manna, sem það unnu.
Nóvemberkvöld 2026 við Bjarnaneskirkju
Heimildir
- Ahlmann, Hans W:son: Í ríki Vatnajökuls á hestbaki og skíðum. Hjörtur Pálsson íslenzkaði. Almenna bókafélagið, Reykjavík, 1979. (På skidor och tlll häst i Vatnajökulls rike, Stokkhólmi, 1936).
- Arkitektatal. Ritstjóri: Haraldur Helgason. Þjóðsaga, Reykjavík, 1997.
- Arnþór Gunnarsson: Saga Hafnar í Hornafirði. Síðara bindi 1940–1975. Sveitarfélagið Hornafjörður. Hornafirði, 2000.
- Bjarni Bjarnason: „Ræða flutt við vígslu Bjarnaneskirkju í Nesjum“. Skaftfellingur 1978 1. árg., bls. 73 – 82.
- Byggðasaga Austur-Skaftafellssýslu. I og III bindi. Höfundar: Stefán Jónsson á Hlíð, Bjarni Bjarnason í Brekkubæ, Gísli Björnsson Höfn og Sigurður Björnsson Kvískerjum. Bókaútgáfa Guðjónsó, Reykjavík, 1971 og 1978.
- Guðmundur Jónsson Hoffell: Skaftfellskar þjóðsögur og sagnir, ásamt sjálfsævisögu höfundar. Marteinn Skaftfells gaf út. Þorsteinn M. Jónsson, Akureyri, 1946.
- Gunnar M. Magnúss: Virkið í norðri. Sæfarendur. bindi. Ísafoldarprentsmiðja, Reykjavík, 1950.
- Hannes Kr. Davíðsson: „Módernismi og postmódernismi.“ avs – arkitektúr, verktækni, skipulag 1992, 1. tbl., bls. 17-20.
- Jón E. Vestdal: Verkfræðingatal. Verkfræðingafélag Íslands gaf út, þriðja útgáfa, aukin og endurbætt. Reykjavík, 1981.
- Múraratal og steinsmiða Ritstjóri Þorsteinn Jónsson. Þjóðsaga, Reykjavík, 1993.
- Ólöf Guðný Valdimarsdóttir: „Allt þetta listablaður, drottinn minn sæll og góður.“ Viðtal við Hannes Kr. Davíðsson arkitekt. avs – arkitektúr, verktækni, skipulag 1993, 4. tbl., bls. 60–63.
- Pétur Ármannsson: „Lífsverk í þágu byggingarlistar. Um arkitektinn Hannes Kr. Davíðsson.“ Texti um Bjarnaneskirkju. Fyrirlestur á Kjarvalsstöðum, föstudaginn 1. október 2004. (Handrit sent höfundi greinar).
- Skúli H. Norðdahl: „Hannes Kr. Davíðsson‟ avs – arkitektúr, verktækni, skipulag 1995, 3. tbl., 56 – 59.
- Trúin, ástin og efinn. Minningar séra Rögnvalds Finnbogasonar á Staðastað. Guðbergur Bergsson skráði. Forlagið, Reykjavík, 1988.
- Þorleifur [Jónsson] í Hólum: Ævisaga. Bókaútgáfa Guðjóns Ó. Guðjónssonar. Reykjavík, 1954.
Tilvísanir
[1] Þorleifur Jónsson: Þorleifur í Hólum. Ævisaga, bls. 463-468.
[2] Sjá hér nánar ævisögu séra Rögnvalds Finnbogasonar: Trúin, ástin og efinn, bls. 151.
[3] Pétur Ármannsson: „Lífsverk í þágu byggingarlistar. Um arkitektinn Hannes Kr. Davíðsson”, bls. 1.
[4] Sama rit, sama stað.
[5] Skúli H. Norðdahl, arkitekt, fjallar talsvert um þetta í grein um Hannes. „Hannes Kr. Davíðsson”, avs – arkitektúr, verktækni, skipulag, 3. tbl. 1995, bls. 57.
[6] Atburðurinn átti sér stað 20. nóvember árið 1939. Skipið mun hafa siglt undir norsku nafni og fölskum norskum fána. Sjá hér til dæmis Gunnar M. Magnúss: Virkið í norðri III, bls. 833.
[7] Um námuleit þeirra félaga má lesa nánar í bók Guðmundar Jónssonar Hoffells: Skaftfellskar þjóðsögur og sagnir, bls. 44-48.
[8] Ahlmann, Hans W:son: Í ríki Vatnajökuls á hestbaki og skíðum, bls. 13-15.
[9] Sjá hér enn fremur Bjarni Bjarnason í Brekkubæ: 1978: 73-82.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: