Það hljómar vel í eyrum þegar sagt er að íslenski neytandinn viti hvaðan grænmetið íslenska kemur. Vissulega satt og rétt. Sveitin íslenska er sveipuð ljóma og enginn mælir honum mót. En grænmetið íslenska leggur upp í ferðalag með vélum og það fer líka að lokum um margar hendur eins og erlenda grænmetið og ávextirnir sem eru á boðstólum í verslunum. Gulræturnar eru fallegar í plastpokunum og sveppirnir aðlaðandi í öskjum sínum. Bústnar paprikur og rismikið blómkál gleðja bragðlaukana og spergilkálið græna er freistandi.
Allt hefur þetta farið um tölvustýrt færiband og mannlegar hendur flokkað og vélar pakkað inn. Hvort sem það er nú íslenskt eða útlent. Þessar hendur eru fyrst og fremst kvenmannshendur enda er fjöldi kvenna að störfum í matvælaiðnaðinum og þær eftirsóttur vinnukraftur. Og launin eru að sjálfsögðu ekki há fremur en í öðrum kvenverkakonustörfum þó að þjóðfélagið geti ekki án þeirra verið.
Tékkneska listakonan Anna Hulačová (f. 1984) er talin einn athyglisverðasti listamaður yngri kynslóðarinnar í Tékklandi.
Í Schirn-listasafninu í Frankurt am Main stendur yfir sýning á verkum hennar sem Kirkjublaðið.is skoðaði vandlega. Þessi sýning er tengd nýlokinni bókamessu í borginni en þar skipuðu Tékkar öndvegi að þessu sinni.
Anna hefur unnið listaverk sem er mikið um sig og tekur yfir einn sal á sýningunni. Það er innsetning (e. installation) og sýnir færiband hlykkjast um grámuggulegan vinnusal og þar standa konur í fjötrum grárrar steypu og flokka ávexti jarðar sem renna eftir því. Færibandið er þögult og það stendur kyrrt. Stundin er hraðfryst og áhorfendur virða fyrir sér þá kyrru stund og ýmsar spurningar vakna í huganum.
Verkakonurnar við færibandið eru vélrænar verur og andlitslausar, hálfgerð blanda af manneskju og einhverju öðru. Þessar nafnlausu konur og andlitslausu standa í öllum heimsálfum við flokkunarstörf þar sem færiböndin renna mishratt. Matvælaframleiðslan er iðnvædd og krefst færri starfa en fyrir tíma færibanda. Líkamar verkakvennanna verða nánast ósýnilegir hlutar vélarinnar. Hér er myndmál hins iðnvædda nútímasamfélags sterkt.
Listakonan er býflugnabóndi og útskurðarmeistari. Líka myndhöggvari og steypir mannamyndir í gráa steinsteypu sem er þunglamaleg og á vissan hátt sálarlaus. En það sem gefur þessum gráu steinsteyptu mannverum sál er sá hluti sem býflugurnar hafa lagt til. Mörg verkanna eru nefnilega unnin í samvinnu við býflugur sem listakonan segir reyndar með bros á vör að séu samstarfsfólk hennar í listinni. Hvernig þá? Jú, hún skilur eftir holrými í höggmyndum sínum og býflugurnar taka sér þar bólfestu og hunangskökur verða til. Býflugurnar móta þannig í raun og veru hina endanlegu gerð verkanna og það sést í mörgum andlitum hinna grásteyptu kvenna. Hvernig?
Jú, í stað venjulegs andlits er þar að finna hunangsköku mótaða af býflugunum. Eða hunangskaka komin í stað innyfla.
Gulleit hunangskakan er lifandi og mjúk og algjör andstæða við harða og gráa steypuna. Býflugurnar njóta fullkomins sköpunarfrelsis í sinni iðju sem listakonan fagnar. Listaverkið er afurð býflugnanna og hennar.
Örsmá er býflugan meðal fleygra vera
en afurð hennar er sætari öllu lostæti.
(Síraksbók 11.3)
Í fornum karlaguðfræðibókum er stundum talað um að konurnar séu jafniðnar og býflugurnar. Þær séu hógværar og skírlífar – hunangskakan sé samvinnuverkefni og gott til eftirbreytni.
Anna Hulačová kannar í verkum sínum tengsl mannsins við náttúruna og tækni. Í verkum sínum veltir hún fyrir sér mörkum milli náttúru, dýra, lífvera og véla. Hún vill hefja náttúruna aftur til vegs og virðingar, leyfa henni að njóta sín. Listakonan er umhverfissinni og vistfemínisti sem andmælir umhverfisspjöllum, kynjamisrétti og neyslu dýrakjöts. Myndmál hennar er óvenjulegt og sterkt en það sækir innblástur í þjóðlegar tékkneskar hefðir og til kristinnar trúar og fornrar goðafræði.
Önnur verk sem hún gerir og sjá má á sýningunni eru með súrrealískt yfirbragð og framúrstefnuleg. Þar eru mörg klunnaleg steinsteypuverk með innfelldum tréútskurði og nokkur með hunangskökum. Verkin eru sum með lágmyndum. Þau hanga í loftinu eða koma út úr veggjunum. Þessi verk eru mörg með skírskotun til kommúnismans í Tékkóslóvakíu á sínum tíma þar sem drungaleg og þungbúin verk úr grárri steinsteypu voru víða til að draga fram einhvers konar stöðugleika hugsjónar sem var í andaslitrunum. En þessi grásteinsteypustíll kommúnismans reyndist vera sálardrepandi.
Hér eru nokkur verk af umræddri listsýningu
Önnu Hulačová

Konur við færiband þar sem steingrár veruleiki ríkir

Við færibandið – hunangskökuandlit og innyfli

Skarpar hunangskökubrúnir í andliti

Mjaltakonur að störfum

Við færibandið

Endastöðin á færibandinu þar sem ávextir jarðar eru ekki lengur ferskir – og ekki mennskt andlit að sjá né heldur mjúka hunangskökuna

Vínberin á klasanum ekki beint lystileg

Þvert á vegg, útskorin vél, steinsteypa og hunangskaka bak við vélina

Þvert á vegg, brjóstkassi og bak við hann er hunangskaka

Súrrealisma má finna í sumum verkum Önnu Hulačová

Minnismerki uppskerunnar

Hér sést úrskurður listakonunnar vel sem og hunangskökur býflugnanna

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: