Oude kerk (Gamla kirkja) er fornfræg kirkja í Amsterdam frá 14. öld. Hún er elsta kirkja borgarinnar og er sóknarkirkja fámennrar sóknar. Á hverju ári eru settar upp tvær listsýningar í henni. Mælst er til þess að sýningarnar tengist sögu og kirkju með ýmsum hætti. Sýningarnar marka upphaf listahátíðar kirkjunnar þar sem sjónlist og tónlist eru í fyrirrúmi. Kirkjurýmið er enda prýðilegt sýningarsvæði og hljómburður góður.
Kirkjublaðið.is skoðaði listsýningu í Oude kerk í síðustu viku þegar hitabylgjan reið yfir Evrópulöndin. Kirkjurýmið er á margan hátt einstakt og þá sérstaklega kirkjugólfið því legsteinarnir tvö þúsund eru nánast sem hverjar aðrar gólfflísar hlið við hlið enda hvíla þar undir um 60.000 manns. Hætt var að taka grafir í kirkjunni á miðri 19. öld. Þeir sem betur máttu sín í samfélaginu hlutu legstað inni í kirkjunni en almúginn var grafinn fjær.
Breska listamanninum Jesse Darling (f. 1981) var boðið að setja upp sýningu í kirkjunni . Hann er myndhöggvari og innsetningarlistamaður.
Það er áhrifamikið að koma inn í þessa gömlu kirkju og sjá gólf kirkjunnar þakið alls konar drasli og braki sem augsýnilega hefur verið sótt á byggingarsvæði. Enda er það svo að listamaðurinn sótti efniviðinn í rústir húsa í Amsterdam sem verið var að rífa því að byggja átti ný. Þessi byggingarúrgangur hefur fengið nýtt hlutverk í kirkjunni og í innsetningunni. En það er ekki aðeins grjót og sandur sem listamaðurinn nýtir sér í innsetningunni heldur líka löskuð húsgögn og biluð heimilistæki sem eru á víð og dreif í kirkjurýminu og úr þeim hefur hann gert nokkurs konar skúlptúra.
Eins og í mörgum kaþólskum kirkjum var að finna í Oude kerk hliðarölturu, eða hornölturu, og voru þau fjörutíu alls. Þegar mótmælendur tóku kirkjuna á sitt vald voru þau rifin niður sem og mörg líkneski af dýrlingum sem voru tilbeðnir. Listamaðurinn sótti meðal annars innblástur sinn í söguna um þessi hornölturu og vísar til þess að hið heilaga felist einnig í hinu hversdagslega lífi almúgamannsins og varnarleysi hans gagnvart misvitrum veraldlegum yfirvöldum. Lífið er ekki bein braut og þess vegna er innsetning listamannsins í kirkjunni óreiðukennd og allt á rúi og stúi. Allt er breytingum háð og siðferðileg gildi koma og fara – Oude kerk stendur nánast í miðju Rauða hverfinu í Amsterdam.
Það er ákveðin bjartsýni sem hvílir þó yfir hrífandi ringulreið innsetningarinnar sem kemur fram í tilvísunum til þess að einhvers konar mótun á lífi og framtíð sé í bígerð úr efni sem átti að fleygja en er orðið að hornsteinum – afar biblíulegt stef! Eða með öðrum orðum: efnið gamla sem var afskrifað verður grunnur nýrrar hringrásar lífsins, fær nýja merkingu.
Innsetningarverkið í Oude kerk hefur orðið að þátttökuverki í þeim skilningi að gestir hafa komið með blóm eða fræ og sett í jarðveginn, vökvað og hlúð að því lífi sem þar býr um sig. Á vissan hátt er þetta upprisutákn þar sem lífið mun rísa af aldagömlum legsteinum kirkjunnar.
Kirkjublaðið.is hefur iðulega hvatt forystufólk í íslenskum söfnuðum til að opna kirkjurnar í enn ríkara mæli fyrir listamönnum og hleypa þeim einnig inn í kirkjuskipið með til dæmis með innsetningarverk sín en það hefur verið sjaldan gert. List og kirkja haldast í hendur sem systur tvær eins og sést vel á sýningu Jesse Darling í Oude kerk í Amsterdam.
Hér koma nokkrar myndir frá sýningunni:

Skófla á kirkjugólfi – byggingarsvæði nýs lífs

Kommóða sem átti að fleygja en blómstrar

Staður í kirkjunni þar sem var hornaltari – jarðvegsefni og verkfæri – efni í vinnupalla

Gamall jarðvegur hlykkjast víða um kirkjuna

Tafla hulin með pokadræsum

Þegar komið er inn í kirkjuna hvarflar strax að gestinum að framkvæmdir standi yfir

Kannski er þetta náttborð öreigans eða hins heimilislausa

Hér er eitthvað í aðsigi

Þessum skáp hefur listamaðurinn komið fyrir í kirkjunni – altari Bakkusar?

Byggingarplast, flöskur og vinnuvettlingar – hornaltari?

Gul vesti byggingaverkamanna sjást víða í kirkjunni

Upplýstur legsteinn í kirkjugólfi – Oude kerk stendur í miðju Rauða hverfinu í Amsterdam

Gult vesti á vængjuðum krossi með viðvörunarflautu

Hér er mynd af Jesse Darling í Oude kerk tekin af Instagram-reikningi hans

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: