Hanne Kragh Pahuus
Við Gestaglugga Kirkjublaðsins.is að þessu sinni sest danski presturinn Hanne Kragh Pahuus. Hún gaf ritstjóra Kirkjublaðsins.is góðfúslegt leyfi til að þýða grein sína úr bókinni Det forvandlende blik – Om a se på billeder i sjælesorg sem fjallað var um hér fyrir skömmu.
Hanne Kragh Pahuus (f. 1947) starfaði sem sóknarprestur í þrjátíu ár og gaf sig mjög að sálusorgun í starfi og fræðimennsku. Eftir að hún lauk störfum sem sóknarprestur starfaði hún við sálusorgun og sem leiðbeinandi presta í þeim efnum. Hún hefur samið bækur og greinar um sálusorgun og ritstýrt greinasöfnum: Samtaler om eksistensen (2017), Álaborg, útgef. Universitetsforlag; Fenomenologi (2922), ritstj. og skrifaði grein í þá bók: Eksistentiel fænomenologi i den støttende samtale, útgef. Fagbokforlaget Bergen. Með Lone Vesterdal skrifaði hún bókina Det medfølende vidne – Sjælesorg og traumer (2023), útgef. Forlaget Ekistensen. Í tímaritið Tidsskrift for sjelesorg 1-2 (2024) skrifaði hún greinina Bevægelse og bevægethed. Enheden mellem krop og ånd, útgef. ModumBad.
Hlátur minn og tárvot augu eru hvort tveggja fáni minn og skjöldur
Sársaukablandin fegurðarupplifun andspænis málverkum Mark Rothko
Eftir Hanne Kragh Pahuus
Það var býsna algengt þegar ég fæddist árið 1947 að mæður saumuðu sjálfar föt á börnin sín. Móðir mín saumaði og prjónaði á mig föt eins og enginn væri morgundagurinn. Þar voru kjólar með vandlega saumuðum skrautlíningum í ýmsum litum, sokkar sem pössuðu við lit kjólanna, prjónapeysur og fleira.
Þegar ég varð aðeins eldri sagði móðir mín stundum sögu af mér tveggja ára gamalli. Ef hún lét mig í sokka sem fóru ekki við lit kjólsins sagði ég: „Þeir passa ekki við litinn.“ Litir hafa enn áhrif á mig. Ég verð fyrir sterku áreiti af þeim og bregst enn líkamlega við þeim. Mér geta fundist litir ljótir og óviðeigandi, eða að þeim sé raðað saman með þeim ósköpum að þeir magni upp einhvern ömurleika með þeim. Ef „ljótum“ og „óviðeigandi“ litum skolar inn á heimili mitt, eða ef þeir blasa við augum mínum þar sem ég er stödd, reyni ég hið skjótasta að reka þá af höndum mér. Þeir geta fyllt mig depurð og gremju. Ég er óvenju hörð í horn að taka þegar kemur að litum og hrósa mér svo sem af því. Litir geta auðvitað haft allt önnur áhrif á þau sem standa mér nærri.
Ég vel fötin mín í þeim litum sem mér finnast fallegir og sömuleiðis húsmuni og annað sem prýðir heimili mitt. Ég get glaðst yfir þeim. En sterkust áhrif hafa þó á mig litir sem búa yfir meiri dýpt og sérkennilegu formi fegurðar. Fegurð sem hefur grípandi tilfinningaleg áhrif á mig og sem vekur hjá mér þrá eftir því sem er hlaðið merkingu.
Mark Rothko er einn þeirra listamanna sem hafa náð að heilla mig hvað mest með litavali sínu. Hann fæddist árið 1903 í gyðingafjölskyldu í rússnesku borginni Dvinsk, sem nú heitir Daugavpils í Lettlandi. Tíu ára gamall fluttist hann með foreldrum sínum til Bandaríkjanna, þar sem hann bjó og starfaði allt til dauðadags árið 1970. Ásamt Jackson Pollock[1], Barnett Newman[2] og Clyfford Still[3] hratt Rothko af stað listastefnu sem kölluð er abstrakt expressjónismi.
Einkenni málverka Rothkos eru stórir, fljótandi litafletir sem geyma oft mynd rétthyrninga. Engin skýr eða hvöss lína skilur þá að, sem gerir þá ófullkomna. Myndefnið er ekki endurtekið heldur fleytir áfram sífelldum tilbrigðum við sama grundvallarformið. Spurningin er því: hvers vegna hafa myndir hans haft svo sterk áhrif á mig og svo marga aðra? Þeirri spurningu ætla ég nú að reyna að svara.
Ég hef séð Rothko-málverk nokkrum sinnum á söfnum. Fyrir um tuttugu og fimm árum heimsótti ég Tate Modern í London. Þar var sérstakt herbergi eingöngu með málverkum eftir Mark Rothko. Fyrir þá heimsókn þekkti ég verk hans aðeins af ljósmyndum. Mér fundust þær ljósmyndir fallegar, en það var auðvitað allt önnur upplifun að standa frammi fyrir málverkum hans í salnum í Tate Modern. Á málverkum Rothkos í þessum sal voru að mestu rauðbrúnir rétthyrningar í mismunandi litbrigðum, bæði láréttir og lóðréttir, en einnig ljósfjólubláir rétthyrningar á mjög dökkum bakgrunni.

Án titils (svart yfir svart og rautt), eftir Mark Rothko. Stærð 205 cm x 193 cm. Frá 1964. Mynd: Centre Pompidou, MNAM-CCI, Dist. GrandPalaisRmn / Georges Meguerditchian
Ég heillaðist af sýningunni og sat um stund í salnum. Það var eins og titringur færi um litina. Ég dróst inn í myndirnar og vildi á einhvern hátt halda í þær, en það var ómögulegt. Í janúar 2025 heimsótti ég aftur salinn með málverkum Rothkos í Tate Modern, en þau voru ekki þar lengur. Í ljós kom að þau höfðu verið lánuð til Tate St Ives í Cornwall.
Á Fondation Vuitton-safninu í París upplifði ég árið 2023 enn á ný þá hrifningu sem fylgir því að horfa á málverk Rothkos. Þar var stór sýning á verkum hans. Ég var þar ásamt barnabarni mínu. Við urðum bæði gagntekin af sérstæðu myndmáli Rothkos, af litunum og samsetningu þeirra.
Þriðji staðurinn þar sem ég sá málverk eftir Rothko var árið 2024 á Musée national d’Art moderne í París.
Undir þessari mynd gat að líta texta um manneskju sem hafði fundið huggun í kynnum sínum af myndum Rothkos:
Catherine Meurisse[4] gaf út bókina La Légèreté árið 2016. Þar segir hún frá hinni mannskæðu árás sem íslamskir hryðjuverkamenn gerðu á háðsádeilublaðið Charlie Hebdo þann 7. janúar 2015. Þegar hún náði loks að hefja sig upp úr myrkrinu og hyldýpinu uppgötvaði hún að fegurðin var eina leiðin aftur til lífsins. Þegar öllu var á botninn hvolft var það eilífðin í landslagi og einnig í hinum mest abstrakt málverkum sem veitti henni huggun. Málverk eftir William Turner[5] og Mark Rothko sköpuðu með krafti ljóssins í hringiðu hins myndræna efnis og litasveiflum, svífandi léttleika þyngdarleysis sem áhorfendur gátu tekið þátt í. (Þýð. mín).
Einhvers konar samband eða samspil skaut rótum milli Catherine Meurisse og þeirrar fegurðar sem hún upplifði þegar hún horfði á myndir Rothkos. Hér er ekki átt við yfirborðslega fegurð heldur fegurð sem í sumum málverka hans er samofin myrkri og einhverju framandlegu. Að þessari andstæðu mun ég snúa aftur síðar.
Strax við fyrstu sýn vaknar hjá manni knýjandi þörf til að túlka myndir Rothkos og reyna að skilja hvað hann hafi viljað tjá með þeim. En þó er nær réttara lagi að lýsa þeim hughrifum sem myndirnar kalla fram, líkt og Catherine Meurisse gerir í tilvitnuninni hér að framan. Þegar staðið er um stund frammi fyrir málverkunum getur maður orðið bergnuminn og tilfinningalega snortinn. Eins og sonur Rothkos, Christopher Rothko, segir í fyrirlestri sem birtur hefur verið á YouTube (Christopher Rothko and the Inner World, Kunsthistorisches Museum Wien 2019) er það áhorfandinn sem er í brennidepli. Mark Rothko heldur á spegli fyrir framan okkur. Skýrt dæmi um þetta er kapellan í Houston í Bandaríkjunum, þar sem hanga stór málverk eftir Rothko í svörtum og dökkfjólubláum litum. Christopher Rothko segir að sumir þoli ekki málverk föður síns í kapellunni; þeim finnist þau köld. Að hans mati gefa þessir gestir sér hins vegar alls ekki nægan tíma í kapellunni til að leyfa málverkunum að hafa áhrif á sig. Þegar hann heimsótti kapelluna í Houston í fyrsta sinn fannst honum hann vera sem örlítill punktur í rýminu. Hann fann fyrir einsemd og vanlíðan. Smám saman áttaði hann sig á því að þessi vanlíðan snerist ekki um málverkin sjálf heldur um þær margvíslegu tilfinningar sem þau vöktu innra með honum.
Í heimsókn á Museo Nacional Thyssen-Bornemisza í Madríd árið 2025 rakst ég enn á ný á málverk eftir Mark Rothko.

Án titils (grænt á rauðbrúnu). Stærð: 258 cm x 229 cm. Mynd: Wikiart/Thyssen-Bornemisza Museum, Madríd, Spánn
Ég settist í sófa fyrir framan þetta málverk og sat þar mjög lengi og fór þar að ráðum Christophers Rothko. Þá gerðist eitthvað undarlegt.
Fyrst fór græni liturinn í myndinni að titra og bylgjast. Sums staðar var græni liturinn ljósari en annars staðar. Fjólublái ramminn utan um græna litinn virtist mér í fyrstu vera sem dregin væri einsleit lituð lína. En eftir að ég hafði horft enn um stund á málverkið fór hið fjólubláa, og einnig skilin milli hins græna og hins fjólubláa, að titra. Stundum var það eins og ljós brytist fram í hinu fjólubláa.
Það er kannski eitthvað í verkum Rothkos sem vekur óþægilegar og dapurlegar tilfinningar. Kannski er ástæðan sú – eins og Lisbeth Smedegaard Andersen skrifar – að „[…] þær tala um hið óþekkta og leiða okkur augliti til auglitis við dauðann, hið óskiljanlega“ (Andersen 1996: 175). En um leið er í þeim einnig eitthvað lifandi og knýjandi, eitthvað sem getur rekið svartnætti hugans á flótta. Með því að horfa lengi á sum málverka Rothkos er hægt að bregða sér í ferð um veðrahvolf tilfinninganna þar sem myrkur og sorg geta snúist yfir í það sem lífgar og gefur kraft, sem sé í ferð frá vonleysi til vonar.
Í bókinni List og skilningur (Kunst og erkendelse) nefnir K. E. Løgstrup[6] rússneskt máltæki sem í stuttu máli tjáir þá tvíræðni sem getur verið í tilfinningum okkar, nefnilega að „bera hláturinn í skildi tára sinna“ sem mætti umorða: Hlátur minn og tárvot augu eru hvort tveggja fáni minn og skjöldur. Það var málarinn Paul Klee[7] sem skráði þetta í dagbók sína. Løgstrup skrifar enn fremur: „Frelsun skilningsins, hlátur hans ef svo má segja, getur verið samofinn sorginni“ (Løgstrup 1983: 54). Þetta má bera saman við þá upplifun sem maður verður fyrir þegar hlustað er á tónlist, hughrif sem erfitt er að lýsa með orðum. Christopher Rothko segir í fyrrnefndum fyrirlestri að faðir hans hafi ætíð hlustað á tónlist þegar hann málaði. Hann hlustaði einkum á Mozart, en tónlist hans getur samtímis ómað sársaukafullar tilfinningar, sigur á sársauka og djúpa gleði og unað. Tónlistin getur hitt mann beint í hjartastað. Dæmi um þetta má finna í öðrum þætti fyrsta fiðlukonserts Mozarts. Þar hljóma á sama tíma bæði sársauki og gleði, gleði sem ber merki þrauta.
Í bók eftir Hartmut Rosa[8] um þungarokk, sem þýdd hefur verið á dönsku og ber titilinn Når monstre brøler og engle synger. Heavy metal og resonans, skrifar hann um aðra tónlistarstefnu en klassíska tónlist en það sem hann segir þar um þungarokk má einnig finna í klassískri tónlist. Rosa hefur komist að því að með því að hlusta á texta og tónaheim þungarokks geti maður upplifað að farið sé frá myrkri til ljóss. Það uppbyggilega við þungarokk er að tónlistin bælir ekkert niður. Þar er bæði að finna hyldjúpa örvæntingu, hatur, einsemd og dauða – en einnig gleði og ljós. Í tónlistinni er stöðugt hyldýpi til staðar. Það leynist rétt undir yfirborðinu og getur brotist fram hvenær sem er. Þannig kemur þungarokk heiðarlega fram gagnvart því sem snertir tilveru okkar. Tónlistin tjáir hið brenglaða, hið illa, hið andstyggilega og dauðann.
Allt þetta má heyra í tónlistinni. Hyldýpið á þó ekki síðasta orðið að mati Rosa. Í hvirfilmiðju tónanna má nefnilega heyra forna kirkjulega hljóma: „Samt syngur heimurinn! Tónlistin varpar hljómum sínum gegn glötun heimsins. Út frá þessu sjónarhorni er hún mótmæli, en hún er líka fyrirheit, hún er von. Hún er sem leiftur af annarri leið til að vera til“ (Rosa 2024: 73).[9]
Í bókinni Resonans. En sociologi om forholdet til verden skrifar Rosa um hvernig hægt er samtímis að koma reynslu af firringu og fegurð áleiðis með listrænum hætti. Dæmi um þetta er að finna í laginu Hallelujah. Rosa skrifar:
Bæði Leonard Cohen[10] og Jeff Buckley[11] vöktu djúpa hrifningu hjá mörgum kynslóðum með söng sínum á laginu Hallelujah. Strax í fyrstu hendingum textans er kveikt þrá eftir leyndum samhljómi í orðunum „I heard there was a secret chord“, en samstundis fylgir staðhæfing sem slær öll vopn úr hendi: „But you don’t really care for music, do you“, en þessi afneitun herðir einmitt þrána og sá sem hlustar finnur samhljóminn og langar kannski strax til að svara: „Jú, auðvitað vil ég hlusta á tónlist.“ Þegar komið er að hápunkti lagsins: „And it’s not a cry, that you hear at night // It’s not somebody, who’s seen the light // It’s a cold and it’s a broken Hallelujah“, þá fléttast saman firring og samhljómur (Rosa 2021: 332 o.áfr.).
Titrandi stíláhrif í málverkum Rothkos eru í mínum augum ekki ólík tónlist með háttbundnum takti og sterkum hljómi, já, eitthvað sem hefur á sama tíma áhrif á mann bæði andlega og líkamlega. Þegar maður stendur andspænis þessum stærðarinnar málverkum geta þau á sama hátt og tónlist vakið upp ýmsar tilfinningar. Tilfinningar eru kvikar og hlaupa oft í gagnstæðar áttir. Þær geta breyst frá einni andrá til annarrar, frá sorg til gleði, frá reiði til sátta, frá ótta til hugrekkis. Myndir Rothkos geta hreyft við manni og þegar horft er á þær gefst tækifæri til að finna fyrir tilfinningum sem breytast með skjótum hætti. Með því að horfa á málverk hans drjúga stund getur maður fundið fyrir vanlíðan, fundið sjálfan sig á ný og um leið vaknar löngun til að tengjast einhverju sem og einhverjum utan við sjálfan sig. Segja má að þetta sé reynsla af endurlausn og djúpri merkingu sem getur kallað fram bæði tár og hlátur; reynsla sem rúmar bæði alvöru og eitthvað frelsandi, létti. Þegar hlustað er á annan þátt fyrsta fiðlukonserts Mozarts eða á þungarokkslagið I Believe með hljómsveitinni Savatage eða Hallelujah eftir Leonard Cohen geta með sama hætti og þegar horft er á myndir Rothkos brotist fram tár og þeim fylgir sú tilfinning að „bera hláturinn í skildi tára sinna“ (eða: Hlátur minn og tárvot augu eru hvort tveggja fáni minn og skjöldur).
.Á málverkum þeim sem Rothko málaði frá því um síðari heimsstyrjöldina og fram til dauðadags árið 1970 eru, eins og áður hefur verið nefnt, stórir litaðir rétthyrningar á bakgrunni. Í málverkum hans er ákveðin ófullkomnun sem ekki er að finna í strangaflatalist, til dæmis hjá Piet Mondrian (1872–1944)[12]. Hjá Piet Mondrian eru línurnar dregnar af mikilli nákvæmni, sem gefur myndunum yfirbragð samræmis og jafnvægis. Mér þykir gott að láta augun hvíla á þeim, og þær vekja hjá mér tilfinningu fyrir skýrleika.
Ófullkomnunin í málverkum Rothkos gerir þau hins vegar viðkvæmari og þar með mannlegri. Mér finnst einnig eitthvað vera lýðræðislegt við þau í þeim skilningi að það eina sem þarf er opinn hugur gagnvart þeim. Maður þarf hvorki þekkingu á listasögu né kunnáttu í goðsögnum og frásögnum Biblíunnar.
Allar götur frá því að ég sá málverk Rothkos fyrst í Tate Modern Gallery í London hef ég velt því fyrir mér hvers vegna þau hafi haft svona djúp áhrif á mig. Hér hef ég reynt að lýsa því með því að leggja áherslu á þá samfléttu sorgar og gleði sem málverk hans vekja hjá mér. Rothko heyrði sem barn um ofsóknir gegn gyðingum og fluttist, eins og áður hefur verið nefnt, tíu ára gamall ásamt foreldrum sínum frá Lettlandi til Bandaríkjanna.
Ég ímynda mér að þetta kunni að hafa verið undirliggjandi tónn, einkum í þeim málverkum þar sem myrkrið liggur þungt yfir, en um leið er í þeim eitthvað lýsandi, lifandi og titrandi.
Ég ólst upp á árunum skömmu eftir síðari heimsstyrjöldina. Ég var orðinn nokkuð stálpuð áður en ég vissi nokkuð um það sem hafði gerst á stríðsárunum, ekki síst það sem átti sér stað í fangabúðunum. Ég held að litirnir og hin fyrirmyndarlausu form í málverkum Rothkos snerti mig og líklega einnig marga aðra vegna þess að þau fela ekki myrkrið en geyma jafnframt ljós og líf. Andstæða málverka hans er málverk hinnar hátimbruðu fegurðar, hinnar hugmyndafræðilegu fegrunar sem nasistar aðhylltust. Þar var myrkrinu ekkert rúm gefið. Enga afhjúpun á myrkri og illsku var þar að finna.
Í málverkum Rothkos felst viðurkenning á hinu sanna, að myrkrið sé til staðar, en einnig á því að ljósið geti gripið mann mitt í myrkrinu. Myndir hans hafa með öðrum orðum sálusorgunarlegt gildi fyrir mig, rétt eins og þær höfðu fyrir Catherine Meurisse, sem lifði af hryðjuverkaárásina á háðsádeilublaðið Charlie Hebdo.
Auðvitað þarf maður ekki að hafa komist í kynni við hina skelfilegu illsku sem reið húsum í fangabúðunum til að verða snortinn af þeirri tvíræðni sem felst í samspili myrkurs og ljóss í list Rothkos. Tilveran rúmar almennt bæði líf og dauða, gleði og sársauka. Í lífi hvers manns knýja dyra hvers kyns armæða og erfiðleikar. Á okkar tímum komumst við heldur ekki hjá fréttum um stríð og ofsóknir; jafnvel börn eru fórnarlömb stríðsátaka eða heyra af þeim hörmungum.
Í bókinni Det medfølende vidne skrifum við Lone Vesterdal[13] um daginn milli föstudagsins langa og páskadags, nefnilega laugardaginn, sem dag myrkurs og dauða. Út frá tilvistarlegu sjónarhorni er það tjáning þess að maður getur ekki stokkið yfir myrkrið og komist beint til ljóssins. Maður getur ekki stigið beint út úr myrkri og sorg föstudagsins langa yfir í ljós og gleði páskadags. Myrkrið verður maður að viðurkenna og að erfitt sé að vera umlukinn því. Í sálusorgarsamtali getur maður horfst í augu við viðurkenningu á því að lífið geti falið í sér erfiðleika, sorg, örvæntingu, tilfinningu firringar, iðrun, kjarkleysi og óhamingju. En það er einnig hægt að upplifa að manni sé gefin tilfinning fyrir því að finna sjálfan sig á ný og geta snúið sér að heiminum með endurnýjuðu hugrekki og einlægni.
Í kynnum mínum af sumum málverkum Rothkos hef ég einnig rifjað upp sérstakar minningar frá því þegar vetrarlandslagið skartar hvítum klæðum. Hreinleikinn í snævi þöktu landslaginu og ísnum á skautasvellinu og tærleiki kuldalegs himins og umhverfis minnir mig á þær gleðifylltu og áhyggjulausu taktbundnu hreyfingar sem fylgdu skautahlaupunum. Hvítleiki og kuldi vetrarlandslagsins geyma í augum mínum fegurð sem vekur þrá eftir því að gefa sig henni á vald. Skelfing og illska hafa ætíð verið til í heiminum og eru þar enn, en gegn hvoru tveggja er gengið á hólm með því að tjá fegurð, eins og hana er að finna í náttúrunni – og eins og hana er að finna í málverkum Rothkos. Rothko tengir mig við hið fagra á þann hátt að ég eflist og styrkist. Að verða hrærður af kynnum við litina í málverkum Rothkos, af titringi litanna og hinum ófullkomnu skilum milli rétthyrninganna, felur fyrir mér í sér dýpt og reynslu af því að „bera hláturinn í skildi tára minna“ (eða: Hlátur minn og tárvot augu eru hvort tveggja fáni minn og skjöldur).
Tilvísanir
[1] Bandarískur listmálari (1912-1956), abstrakt expressjónisti og kunnastur fyrir slettumálverk (e. drip technique) sín.
[2] Bandarískur listmálari (1905-1970), abstrakt expressjónisti.
[3] Bandarískur listmálari (1904-1980), abstrakt expressjónisti.
[4] Frönsk listakona (f. 1980) sem fæst við bókaskreytingar og teiknimyndagerð.
[5] Enskur listmálari (1775-1851) sem hóf landslagsmálverk til vegs og virðingar.
[6] Danskur guðfræðingur og heimspekingur (1905-1981).
[7] Svissnesk-þýskur listamálari (1879-1940).
[8] Þýskur félagsfræðingur (f. 1965).
[9] Umfjöllun um lýsingu Hartmuts Rosa á þungarokki birtist í grein eftir Lone Vesterdal og Hanne Pahuus í Kristeligt Dagblad 30. apríl 2024.
[10] Kanadískur tónlistarmaður, söngvari, ljóðskáld og tónskáld (1934-2016).
[11] Bandarískur tónlistarmaður (1966-1997).
[12] Hollenskur listmálari og listfræðingur.
[13] Prestur í dönsku þjóðkirkjunni og rithöfundur (f. 1967).
Allar tilvísanirnar eru þýðandans nema nr. 9 sem er höfundarins.
Heimildir
Andersen, Lisbeth Smedegaard (1996): Ikoner i moderne kunst. Samlerens forlag.
Løgstrup, K.E. (1983): Kunst og erkendelse. Gyldendal.
Rosa, Hartmut (2021): Resonans. En sociologi om forholdet til verden. Eksistensen.
Rosa, Hartmut (2024): Når monstre brøler og engle synger. Heavy metal og resonans. Eksistensen.
Vesterdal, Lone og Hanne Pahuus (2023): Det medfølende vidne – sjælesorg og traumer. Eksistensen.
Vesterdal, Lone og Hanne Pahuus: Kronik i Kristeligt Dagblad den 30. april 2024.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: