Sagnfræðingurinn dr. Jón Þ. Þór (f. 1944) hefur verið afkastamikill á ritvellinum. Eftir hann liggja á níunda tug verka á langri fræðimannsævi. Hann hefur einstaklega gott lag á að rita sagnfræðirit sem henta fróðleiksfúsum almenningi um menningu og sögu. Gjarnan hafa þær bækur verið gefnar út í kiljuformi eins og Winston S. Churchill – ævisaga, Heimsstyrjöldin síðari, Bauka – Jón: saga frá sautjándu öld, Katrín mikla – konan sem breytti Rússlandi. Þetta er aðeins lítið brot af verkum dr. Jóns en ótalin eru önnur í svipuðum dúr sem og hin stærri, til dæmis þau er lúta að sjávarútvegssögu landsins. Hann er einkar lipur penni og skýr. Þessi viðmótsþýði stíll grípur lesandann þó að efnið geti á köflum verið býsna flókið. Höfundur leiðir lesandann af miklu öryggi og umhyggju um leyndarstigu sögunnar svo brúnir lyftast iðulega og hann segir með sjálfum sér: „Þetta vissi ég ekki“ eða „Já, var þetta svona, var búinn að gleyma þessu“ o.s.frv.

Krossferðirnar voru hernaðarleiðangrar, margar þeirra farnar að undirlagi rómversk-kaþólskra kirkjuyfirvalda og juku um tíma áhrif páfastóls í samfélaginu þar sem þær þjöppuðu kristnu fólki saman gegn sameiginlegum óvini. Skuggi krossferðanna er þó þungur af blóði enda gengu margir krossfarar hart fram fyrir málstað sinn og drápu ekki einasta múslima heldur og kristið fólk og gyðinga. Landsvæði sem þeir unnu töpuðust síðar. Segja má að krossferðirnar hafi komið óorði á kristna trú og orðið henni síst til framdráttar.

Þótt það sé kannski annað mál þá er afar sennilegt að margir þessara páfa, kónga, fursta og höfðingja sem æstu lýðinn með múgsefjun og von um fyrirgefningu syndanna yrðu dregnir fyrir stríðsglæpadómstól hefðu fólskuverk þeirra verið framin í nútímanum.

Sú bók sem Kirkjublaðið.is vekur athygli á að þessu sinni er í flokki rita eftir Jón sem gefin er út í kiljuformi og heitir „Guð vill það!“ – Saga krossferða og heilags stríðs í Botnalöndum á miðöldum og kom út á þessu ári. Þetta er ekki einföld saga en höfundur setur allt upp einkar skipulega og fer sér engu óðslega þó að texti sé knappur. Auðvitað hafa allir heyrt einhvern tíma um krossferðirnar á skólagöngu sinni og kunna að hafa sínar skoðanir á þeim sögulegu viðburðum sem eru tengdir þeim.

Höfundur rekur í stuttu máli forsögu krossferðanna ef svo má segja. Enda þótt krossferðatími miðalda sé löngum talinn hafa staðið yfir 1095-1291 þá höfðu ýmsir látið að sér kveða áður í því skyni að rétta við hlut kristinnar kirkju í Mið-Austurlöndum. Persar náðu til dæmis Jerúsalem á sitt vald 614 og nutu þar aðstoðar gyðinga sem bjuggu innan borgarmúranna og voru „kristnir borgarbúar, karlar, konur og börn, bókstaflega brytjaðir niður“ (bls. 12). Annar þáttur sem tengist krossferðum með mjög óbeinum hætti í fyrstu er pílagrímsferðir til landsins helga allt frá fjórðu og fimmtu öld. Á tímabili var það hættuleg för vegna sjóræningja á Miðjarðarhafi og auk þess var islömskum ráðamönnum í nöp við kristna pílagríma af ótta við að þeir hefðu óæskileg áhrif á trú síns fólks. Landið helga dró til sín fólk sem vildi berja nestið þar í landi. Þá voru þau sem skriftafeður höfðu skikkað til að fara í pílagrímsferð þangað til að friðþægja fyrir syndir. Svo auðvitað trúað fólk sem þráði að koma til landsins eina (bls. 22).

Höfundur rifjar það upp að samkvæmt Sturlunga sögu hafi Nikulás Bergsson farið í pílagrímsferð til Jerúsalem (Jórsala) á tólftu öld. Hann varð síðar ábóti í klaustrinu á Þverá í Eyjafirði.

Segja má að ýmsu hafi ægt saman í þessu sögulega fyrirbæri, krossferðum. Kristin trú gegndi þar að sjálfsögðu ákveðnu lykilhlutverki þar sem markmiðið eða hugsjónin var að frelsa borgina helgu, Jerúsalem, úr höndum heiðingja. Stjórnmál réðu líka miklu um gang mála og verslunarhagsmunir sem þar sem til sögu kom kristið fólk, múslimar, gyðingar og valdastofnanir eins og kirkjan. Almenningur var æstur upp til að taka þátt í krossferðum. Kennilýðurinn lofaði múgnum fyrirgefningu syndanna og eldmóður hinna viljugu bálaðist enn frekar þegar þeim var sagt að krossferðirnar væru til þess að verja kristið fólk og endurheimta helga staði sem komnir voru í hendur heiðingja. Svo voru náttúrlega alls konar lukkuriddarar sem héldu af stað í krossferðir og ólu með sér von um auðæfi og virðingu.

Það var Urban II páfi sem olli straumhvörfum í sögu krossferðanna. Höfundur segir að hann hafi flutt í nóvember 1095 „eina frægustu predikun sem um getur í gjörvallri sögu rómversk-kaþólsku kirkjunnar“ (bls. 31) og hún hafi verið upphaf skipulegra krossferða á vegum páfa þar sem kóngar og furstar voru í forystu (bls. 26). Eitt það áhugaverðasta við þessa prédikun er að hún var skráð af fjórum samtíðarmönnum páfans nokkru eftir að hún var flutt. Orð páfans vöktu feikna hrifningu og múgurinn æpti hvað eftir annað upp „Deus le vult“ (Guð vill það). Viðbrögð mannfjöldans komu páfa í opna skjöldu. Síðan var hafist handa við að safna liði í leiðangurinn. Páfinn fór í nokkurs konar liðsöfnunarleiðangur til að afla sér fylgis meðal fursta og höfðingja. Leiðangurinn skilaði skjótum árangri en „enginn hörgull var á óbreyttum borgarbúum og sveitafólki sem var reiðubúið að yfirgefa allt sem það átti og halda í Austurveg gegn því að fá syndir sínar fyrirgefnar“ (bls. 32). Rauður kross var saumaður á yfirhafnir þeirra sem hugðust halda í leiðangurinn og heit unnið að því að fara til Jerúsalem. Liðhlaupar skyldu bannfærðir.

Krossfaraherirnir komu til Konstantínópel áður en haldið var lengra. Þetta voru:

fimm fjölmennir herir, misvel vopnum búnir, illa agaðir, hofmóðugir og uppivöðslusamir og þeim fylgdi hjörð af bláfátækum pílagrímum, alls kyns flækingum og vandræðagemlingum og þar að auki fjölmargar konur sem margar höfðu börn með sér (bls. 48)

Þó að krossfaraherirnir hafi ekki verið álitlegir í augum Alexios I Býsanskeisara í Konstantínópel 1096 tókst þeim þó að hertaka borgina helgu, Jerúsalem. Borgin var ekki auðunnin og lá við að árásin á hana rynni út í sandinn en krossförunum til happs komu skip með vistir og efnivið í hertól. Heimamenn gáfust upp og opnuðu borgarhliðin. Krossfararnir gengu nánast berserksgang og slátruðu fólki og brenndu samkunduhús gyðinga sem höfðu leitað sér skjóls í þeim.  „Margir fræðimenn hafa furðað sig á framgöngu krossfaranna gegn gyðingum í Jerúsalem, og reyndar víðar, talið að þeir hefðu frekar átt að líta á þá sem hugsanlega bandamenn í stríðinu gegn múslimum,“ segir höfundur en bendir á að gyðingahatur hafi ráðið þar för og margir krossfaranna litið svo á að gyðingar bæru ábyrgð á dauða Krists (bls. 55-56). Mannfall í liði krossfaranna var gífurlegt. Það voru sjö tíu þúsund hermenn sem héldu til borgarinnar helgu en um tólf þúsund lifðu þá för af.

En ástandið í Botnalöndum var ekki tryggt. Blásið var til annarrar krossferðar 1147-1149 og í henni tóku þátt Frakkar, Englendingar og Konráð III Þýskalandskóngur (þ.e. konungur Hins heilaga rómverska ríkis þýskrar þjóðar). Þetta var gríðarlega fjölmenn krossferð en allt kom fyrir ekki og beið krossfaranna ósigur við Damaskus. Einn þeirra sem gengið höfðu hvað harðast fram í áróðri fyrir krossferðinni misheppnuðu var ábótinn Bernharður í Clairvaux og fékk rækilega á baukinn. Hann brást hins vegar við með því að segja að krossfararnir hefðu ekki verið „hjartahreinir“ og ekki nálgast verkefni sitt „með trúna að leiðarljósi“ (bls. 78).

Ein ástæða þess að hernaður krossfaranna gekk vel var sú gamalkunna staðreynd að ef óvinurinn er sundraður eru sigurlíkur meiri en ella. Múslimar voru tvístraðir í trúarstefnum og áttust oft hatrammlega við. Þegar sterkir múslimskir leiðtogar komu á sjónarsviðið sem sameiningarafl gátu krossfararherirnir búist við harðari mótstöðu. Ekki reyndist alltaf liðsauki af þeim fjölda kristinna manna sem bjuggu í múslimskum ríkjum vegna þess einfaldlega að þar nutu þeir ákveðinna réttinda og höfðu aðlagast samfélaginu. Sama er að segja um gyðinga sem höfðu lagað sig að hinu múslimska samfélagi en krossfarar létu þá finna fyrir afli sínu. Þess vegna var enginn sérstakur fögnuður í huga allra þegar sigursælir krossfarar tóku borgir og bæi með herskildi – sjá til dæmis bls. 60 og 89 um þetta.

Það kom í hlut Saladins soldáns í Egyptalandi að ná Jerúsalem aftur úr greipum krossfaranna. Þetta var árið 1187. Hann leyfði meðlimum rétttrúnaðarkirkjunnar að vera áfram í borginni gegn því að þeir lytu lögum múslima. Rómversk-kaþólskum íbúum sem komið höfðu frá Vesturlöndum var gert að taka pokann sinn. Á ný flykktust múslimar til borgarinnar helgu.

Stjórn fjórðu krossferðarinnar var í höndum Innócentíusar III páfa. Hernaðarlegum undirbúningi þeirrar ferðar er lýst nokkuð vel og sýnir að það var svo sem ekki einfalt mál að leggja upp í slíkar krossfarir enda þótt menn þættust vera búnir að læra af þeim fyrri. Flutningur hergagna, vista og mannafla krafðist gífurlegs undirbúnings og samninga við erlend ríki. Þegar krossfararnir komu til Konstantínópel runnu á þá tvær grímur því keisarinn leit á þá sem „villutrúarmenn á vegum páfans í Róm, engu betri en múslimana í austri – jafnvel verri“ (bls. 131). Fór þó svo að krossferðarmenn náðu Konstantínborg á sitt vald 1204.  Aldrei komust þeir til Jerúsalem eins og til hafði staðið en þess í stað lögðu þeir með hertöku Konstantínópel eldivið í deilu milli rétttrúnaðarmanna og rómversk-kaþólsku kirkjunnar. Höfundur metur það svo að Austrómverska ríkið hafi staðið veikara eftir hernám borgarinnar (bls. 133).

Fimmta krossferðin var misheppnuð og mikillar sundrungar gætti í liði krossfaranna. Það var Innocentíus III sem ýtti ferðinni úr vör með falsáróðri og ósannindum (bls. 138) þess efnis að kristið fólk sætti kúgunum í Mið-Austurlöndum (Botnalöndum) en svo var alls ekki heldur bjuggu flestir saman í góðu samlyndi. Auk þess hafði enginn óskað eftir nýrri krossferð því friður hafði ríkt í Landinu helga.

Frásögnin af sjöundu krossferðinni er athyglisverð. Þar var það bannfærður keisari þýsk-rómverska ríkisins, Friðrik II, sem tókst að samkomulagi við múslima um Jerúsalem. Samningur var gerður til tíu ára og fékk Friðrik yfirráð yfir Jerúsalem, Betlehem og Nasaret en múslimar fengu að ráða yfir ákveðnum helgistöðum eins og musterinu og moskunni á fjallinu (bls. 146). Friðrik II var frjálslyndur keisari og vildi „heyra bænaköll múslima kvölds og morgna“ en múslimunum þótti hann of umburðarlyndur (bls. 146-147).

Loks skal getið tveggja síðustu krossferðanna, þeirrar sjöundu og áttundu, sem báðar voru misheppnaðar. Sérstaklega sú áttunda, sem virðist hafa verið blekkingaleikur því aldrei var haldið til Landsins helga heldur til Túnis. Pest kom upp meðal krossfaranna og Loðvík IX Frakkakonungur andaðist í ferðinni.

Höfundur ræðir í eftirmála um viðhorf til krossferða á umliðnum öldum. Þær nutu mikillar hylli á miðöldum og krossfararnir taldir vera hetjur og guði þekkir. Upplýsingaöldin leit krossferðirnar öðrum augum og taldi skúrka hafa ráðið för í þessum hernaði. Rómantík nítjándu aldar hóf þær aftur upp og mærði mjög. Tuttugasta öldin mat krossferðirnar svo með enn öðrum hætti og þær hafa verið hervirki óvandaðra manna. En fleiri viðhorf hafa og komið fram á seinni tímum og menn leitast við að rannsaka krossferðirnar frá ýmsum sjónarhornum. Þó er alltaf stutt að sækja rómantíkina um krossferðir og hinn rétttrúaða mann eins og höfundur bendir á er hann vísar til orða eins Bandaríkjaforseta um að stríðið gegn Írak og Afganistan væri krossferð. Höfundur segir þetta vera sögufölsun (bls. 158).

Aftast í bókinni er listi yfir helstu heimildir.

Niðurstaða

Einkar læsileg bók um sögu sem kann að virðast í fljótu bragði þurr og flókin. Í ljós kemur strax að höfundur er yfirvegaður og vandaður í skrifum sínum og fer sér í engu óðslega. Allt er sett í skýrt samhengi án málalenginga sem gerir hina sagnfræðilegu frásögn nokkuð hraðlesna og áhugaverða. Hann hefur líka næmt auga fyrir hinu spaugilega í sögunni sem gleður lesandann. Öll þau sem vilja kynna sér sögu og menningu ættu að lesa þessa bók. Þá vekur bókin lesanda til umhugsunar um misbeitingu valds trúar- og samfélagsstofnana í því skyni að ná fram vilja sínum til misviturra athafna.

Jón Þ. Þór, „Guð vill það!“ – Saga krossferða og heilags stríðs í Botnalöndum á miðöldum. Útgefandi Urður – bókafélag, 2026, 159 bls. Kápuhönnun: Ásdís Ívarsdóttir. 

Viltu deila þessari grein með fleirum?