Það er bjart yfir bænabókinni sem ber það ágæta nafn Bænabókin okkar. Hún fer vel í hendi og er skínandi hvít með gullletruðu heiti sem kallast á við persónulega rithönd höfundarins. Í hringiðu lífsins sem kápan endurómar sést ljós á kerti sem kveikir von.
Bænabækur eru ákveðið bókmenntaform og það form er vandmeðfarið eins og öll önnur form. Einhver tekur sér það fyrir hendur að orða bænir sem hann eða hún hefur jafnvel notað um lengri tíma eða skemmri og býður öðrum að gerast ferðafélagi sinn í bæninni. Slík bænareisa getur orðið mörgum hjálparhella til að færa í orð sínar eigin bænir. Stundum víkur fólk að því að það eigi erfitt með að setja bænir sínar í orð en þær hvíla einhvers staðar djúpt í hugskoti viðkomandi og eru vitaskuld bænir í sjálfu sér. En manneskjan vill stundum biðja upphátt og þá er gott að grípa til bænabókar ef þannig stendur á og gera bæn sem annar hefur samið að sinni eigin bæn. Þó má skilja þetta svo að vel orðuð bæn sé betri bæn en klaufalega orðuð, að minnsta kosti ekki í einrúmi. Sumar bænir hafa lifað frá öndverðu og eru sígildar og þar er Faðir vorið að sjálfsögðu þekktust. Fornar bænir geta aldrei orðið úreltar því að í þeim er falið bænaandvarp sem margur nútímamaðurinn getur gert að sínu. Bæn í einrúmi er einkaathöfn eins og sagt er í nútímanum og kemur engum öðrum við nema þeim sem biður og þeim sem bæninni er stefnt til. Í raun og veru er bæn aldrei gagnrýnisverð hvernig sem hún er orðuð. Bænaandinn kemur yfir manneskjuna í ólíkum aðstæðum. Sumir biðja reglulega og aðrir sjaldan og jafnvel aldrei þótt um það megi svo sem efast. Þakkarbænir um það sem fengið er í lífinu og telja má gæfu og gengi eru kannski ekki það sem býr efst í huga hins kappsama nútímamanns. Þegar heilsuógn og nauð stefnir að fer ólíklegasta fólk að safna orðum í bæn og ef bænin gengur eftir er vissulega efni í þakkarbæn fyrir endurheimt heilsu. En hvað ef bið verður á bænheyrslu að mati þess sem biður? Blasir við uppgjöf eða vaknar reiði í brjósti biðjandans? Kannski reynir hann að leita svarsins í einhverju öðru en bættri heilsu.
Bænabókin okkar er tileinkuð bænahópi kvenna í Vídalínskirkju. Sóknarpresturinn í Garðaprestakalli er skrifaður fyrir bókinni en henni til liðs hafa verið kölluð þau Dagur Fannar Magnússon, Hildur Eir Bolladóttir, Bjarni Karlsson, Halla Jónsdóttir, Kristján Valur Ingólfsson, Bolli Pétur Bollason, Jóhanna Magnúsdóttir og Guðmundur Brynjólfsson. Bænir og trúarjátningar sem koma frá þeim eru merktar með fangamarki þeirra. Þetta er einvalalið.
Í formála Jónu Hrannar er lesandi ávarpaður sem fyrirbiðjandi og þar með er sleginn sá fallegi tónn að bænirnar séu ætlaðar fólki sem vill líka biðja fyrir öðrum en sjálfu sér. Hún segir að bænirnar hafi verið henni trúarleg uppörvun þegar alvarleg heilsuógn steðjaði að lífi hennar.
Bænabókin okkar er vel uppbyggð og geymir alls 22 kafla. Fyrstu kaflarnir, 1–21, hefjast á tilvitnun í guðspjallstexta, síðan koma bænakveikjur og í lokin getur lesandi skrifað sín eigin bænaorð. Síðasti kaflinn, 22, geymir trúarjátningar eftir höfunda sem nefndir hafa verið ásamt fleirum og þá eru þar sæluboðin og boðorðin tíu ásamt gagnyrtum orðum um þá grundvallartexta.
Enginn vafi er á því að hér er einstaklega hjálpleg bók á ferð og við hæfi nútímafólks. Bók sem upplögð er til nota í bænalífi einstaklinga og hópa. Gagnlegt hefði verið að hafa efnisyfirlit til glöggvunar en hér skal því skotið að:
Formáli bls. 5
1. kafli Gleði, bls. 11.
2. kafli Gestrisni, bls. 21.
3. kafli Foreldraábyrgð, bls. 29.
4. kafli Endurfæðing, bls. 37.
5. kafli Seigla, bls. 45.
6. kafli Skömm, bls. 55.
7. kafli Fyrirgefning, bls. 63.
8. kafli Reiði, bls. 71.
9. kafli Skilyrðislaus kærleikur, bls. 79.
10. kafli Sorg, bls. 87.
11. kafli Jaðarsetning, bls. 97.
12. kafli Samlíðun, bls. 105.
13. kafli Virðing og vinátta, bls. 113.
14. kafli Hugrekki, bls. 121.
15. kafli Innsæi, 129.
16. kafli Samfélag, 139.
17. kafli Angist, 149.
18. kafli Friður, 157.
19. kafli Ofbeldi, 165.
20. kafli Krossinn, 175.
21. kafli Upprisa, bls. 185.
22. kafli Trúarjátningar og friðarorð, bls. 195.Bænabókin okkar, Jóna Hrönn Bolladóttir. Kápu hannaði Halla Sólveig Þorgeirsdóttir. Útgefandi Skálholtsútgáfan 2026, 206 bls.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: