Bókartitlar draga til sín athygli og því er mikilvægt að þeir séu vel heppnaðir og fangi hugsanlegan lesanda á augabragði. Titill þessarar bókar sem hér verður farið nokkrum orðum um er einn slíkra. Það var einkum síðasti hluti titilsins sem vakti vangaveltur, það er að segja heilagur andi, í ljósi yfirstrikaðra orða: aumingi, mella, syndari. Síðan kemur heilagur andi í kjölsogið. Þetta er býsna hressilegur titill sem ýtir við þeim er hann sér. Höfundurinn, Lilja Ósk Snorradóttir, sendi frá sér í fyrra ævisögulega bók sem bar líka sláandi heiti, Heimsins besti dagur í helvíti. Góðir titlar á bókum og grípandi eru gulls ígildi.

Söguþráður þessarar bókar er spunninn út frá sorg sjö ára gamallar stúlku sem ber það hljómmikla nafn Salka Álfheiður Randversdóttir. Fangamark hennar er því SÁR og gefur þar af leiðandi margt til kynna. Þetta er engin venjuleg stúlka þar sem hún er óvenju þroskuð miðað við aldur. Hún er í afar sterku og nánu sambandi við móður sína sem Sólbjört heitir og fæst við listsköpun, er geðhvarfasjúklingur og á við áfengisvandamál að stríða. Salka er með myndir af Guði og Jesú í herberginu sínu en þær málaði mamma hennar (bls. 9). Saman máluðu þær stóra Jesúmynd á húsvegginn hjá skólastjóranum, Sigríði, vegna þess að hana „vantaði smá kærleika í hjartað“ (bls. 9). Sjálf átti Salka eftir að mála Jesúmynd á kirkjuvegginn sem sneri út að kirkjugarðinum og fékk bágt fyrir (bls. 139-140). Sigríður skólastjóri reynist Sölku vel þegar upp er staðið og þær eiga sitthvað sameiginlegt. Hún skilur stúlkuna sem bar „allt taugakerfið utan“ á sér (bls. 36). Salka verður augljóslega fyrir einelti í skólanum en hin börnin vilja ekki tala við hana (bls. 55). Sigríður heldur föður Sölku fjarri sem hægt er því að sorg hans er skyld hennar sorg sem hún hefur geymt í „kassa uppi á háalofti“ og nær bara í hana á hátíðisdögum (bls. 40). Þær mæðgur eru svo nánar að Salka Álfheiður sefur í sama rúmi og móðirin þó að hún sé orðin sjö ára (bls. 30 og bls. 59). Faðirinn, Randver, sefur annars staðar í húsinu en hjónaband þeirra Sólbjartar er liðið undir lok þó að þau búi undir sama þaki. Þau áttu sína hamingjudaga sem sagt er frá en þeir eru sem sagt liðnir þegar saga Sölku er rakin. Randver saknar þeirra á köflum (bls. 146).  Sagan snýst um stúlkuna og sorgina sem knýr dyra í lífi hennar og fjölskyldunnar þegar móðirin verður úti. Þau hjónin höfðu rifist og eiginkonan rokið út í vetrarnæðinginn á náttsloppnum. Sigríður skólastjóri sagði að hún hefði aldrei passað við „gráan hversdagsleikann“ í litla bænum (bls. 106).

Höfundur er það sem kallað er alvitur og kaflar bókarinnar bera heiti aðalpersónanna sem eru hérna megin lífs og koma við sögu, bein ræða fyrstu persónu og vangaveltur þeirra reifaðar, meðal annars um aðrar nafngreindar persónur sögunnar. Það er svo lesandans að ráða í frásagnirnar og draga ályktanir sínar um samband og áhrif þeirra á stúlkuna Sölku. Söguþráðurinn er hispurslaus og vekur forvitni hjá lesanda.

Titillinn á bókinni um Sölku Álfheiði á sér þá skýringu að hún setur saman lista með hugsanlegum ástæðum þess að Guð yfirgaf hana.

Guð kemur mjög við sögu stúlkunnar en hún hefur verið í beinu sambandi við hann, ef svo má segja, frá fjögurra ára aldri. Salka telur þetta hafa verið besta dag lífsins þegar hún náði þessu andlega sambandi fjögurra ára gömul og vildi sækja sunnudagaskólann en ekki voru tök á því. En skjótt skipast veður í lofti. Salka er sjö ára gömul þegar hún hættir að heyra í Guði – það var næstversti dagurinn í lífi hennar (bls. 5). Sá versti var þegar pabbi hennar sagði að mamma hennar væri dáin – þann dag sveik Guð hana (bls. 8).

Þetta óvenjulega samband stafar að hyggju móðurinnar af því að Salka Álfheiður er útvalin og með innbyggt beint samband við almættið. Fólk skiptist í tvo hópa, þau sem heyrðu og þau sem ekki heyrðu. Fyrri hópurinn þyrfti ekki að fara í kirkju en sá síðarnefndi, sem í væru aumingjar, syndarar og embættismenn, þyrfti á kirkjuferð að halda til að fá fyrirgefningu syndanna (bls. 5). Ekkert skal nú sagt um skýringar sem þessar því þær eiga fullan rétt á sér og fólk hefur frelsi til að setja fram trúarþanka sína þótt einkennilegir séu og jaðri jafnvel við trúarbrjálsemi. Þessar kjarnaupplýsingar koma umbúðalaust á fyrstu blaðsíðu bókarinnar. Ætla mætti að einhvers konar heimatrúboðssaga fylgdi í kjölfarið, eða trúarstagl, en svo er ekki.

Kirkjuferðir Sölku snúast um að ná augnsambandi við prestinn en hún telur það vera mikilvægt til þess að ná tengslum við almættið; það er „besti möguleikinn á að heyra í Guði“ (bls. 7). Hún biður til hans en fær engin svör og veltir því fyrir sér hvort hann vilji frekar tala við stráka (bls. 60). Móðir hennar hafði útskýrt fyrir henni að „karlar væru betri en konur og að það væri ástæðan fyrir því að bæði Guð og Jesús væru karlmenn“ og allar konur væru vondar vegna Evu formóðurinnar sem óhlýðnaðist forðum daga og borðaði af ávextinum í aldingarðinum en Salka væri, eins og móðirin (Sólbjört), útvalin og því ekki vond. Þess vegna segir Salka að hún verði að ná aftur sambandi við Guð til þess að „verða útvalin aftur“ (bls. 84). Kalla má hugmyndir af þessu tagi trúargrillur og fráleitt eru þær til eftirbreytni í barnauppeldi þó að leyfilegar séu.

Þegar foreldrar hennar rífast – sem er býsna oft – fer Salka með bænir til að fá móður sína aftur heim sem stormað hefur út eftir rifrildi. Fjölskyldulífið er órólegt og móðirin stundum hátt uppi. Hún sturlast nánast þegar pabbi hennar þvær rúmfötin eftir lát móðurinnar því þá var mömmulyktin farin (bls. 27). Randver, faðirinn, er bæjarstjóri í litla samfélaginu, tók við af föður sínum. Hann er ráðalaus í þessum erfiðu heimilisaðstæðum, hinn besti maður augljóslega en dálítið gufulegur á köflum. Þær mæðgur stjórna heimilinu með hátterni sínu og nánu sambandi – þar var engin regla, heldur ríkti óreiðan ein (bls. 21). Eftir lát móðurinnar er Salka nánast drifkraftur sögunnar en faðirinn reynir að koma böndum á líf þeirra, stöðugleika (bls. 21). Hann vill lítið tala um móðurina við dótturina (bls. 71). Hún lítur svo á að faðir hennar hafi drepið móðurina, Sólbjörtu, því hefði hann ekki rifist við hana hefði hún ekki hlaupið að heima og orðið úti (bls. 10). Hún hatar hann (bls. 27). Faðirinn, Randver, glímir sjálfur við vissa anga af sorginni og inn í hann fléttast sorgarviðbrögð Sölku og hinir góðu dagar sem þau Sólbjört áttu saman á sinni tíð en þó er sem fargi sé af honum létt eftir að hún dó og fyrir þá hugsun skammast hann sín: „Var ég í alvöru orðinn eins og frystikista, löngu búinn að drepa niður allar tilfinningar og gat ekki fundið fyrir neinu lengur, alveg tilfinningalaus, aftengdur og kaldur“ (bls. 115-116). Hann leitast við að gera sitt besta eins og sagt er en sálarháski og sorg dótturinnar eru honum ofviða. Salka Álfheiður er ekki eins og börn eru flest – hún er bráðskýr miðað við aldur, með talnaþráhyggju sem hún fékk frá móður sinni sem „miðaði allt út frá tölum“ (bls. 80). Sorgin og söknuðurinn stýra hugsunum hennar og gjörðum og er skiljanlegt. Lítill stuðningur fæst til að takast á við líðan hennar. Ljóst er að Salka þarf einhvers konar aðstoð til að takast á við missi sinn en hún fer sína eigin leið eins og margra barna er háttur; býr sér til hugarheim. Randver fer með hana til læknisins í plássinu sem gæti hjálpað henni að hætta að sakna mömmu (bls. 14) en það vill Salka ekki. Lyf fær hún til að draga úr reiði sinni – hún er ekki búin að fyrirgefa pabba sínum fyrir að vera morðingi (bls. 15). Hún hatar föður sinn og beitir hann ofbeldi (bls. 27).

Söguþráður af þessu tagi kann að vekja umræður um hvað hægt sé að gera til að koma til móts við fjölskyldur í vanda, upplausn og sorg. Vettvangur sögunnar er lítill bær á landsbyggðinni þar sem allir þekkja alla eins og gjarnan er sagt. Smábæjarlífið nýtur þess að hvers kyns kjaftasögur eru á kreiki um hvað eina og kannski ekki síst samlíf fólks.

Sögulok koma nokkuð á óvart og umskipti í samskiptum þeirra feðgina til hins betra gerast með nokkuð skjótum hætti. Frá því verður ekki greint hér heldur verður lesendum vísað á bókina.

Og hvað er um þessa sögu að segja?

Eins og fram hefur komið eru aðalpersónurnar, þær mægður Sólbjört og Salka, fráleitt hversdagslegar og ráða býsna miklu um framvindu sögunnar. Spyrja má auðvitað hver sé boðskapur sögunnar og svarið liggur kannski í augum uppi: persónuleg vandræði sem ekki eru rædd af einurð ala einatt af sér meiri vandræði. Það er ekki aðeins barnið Salka sem sorgin knýr dyra hjá heldur er það líka faðirinn Randver – og fleiri persónur í sögunni geyma líka sorgir sínar og hafa ekki unnið úr þeim. Nútíminn býður upp á margvíslega aðstoð þegar kemur að sorgarvinnu og segja má að þjóðkirkjan hafi þar vaska og þjálfaða sveit til að styrkja fólk sem sorgin bugar. Þess vegna getur bók af þessu tagi reynst fengur í sorgarvinnu einstaklinga og safnaða. Þetta er lipurlega skrifuð bók og afmörkuð kaflaskipti hennar, þar sem einstakar persónur sögunnar hafa orðið, falla nokkuð vel saman þegar á allt er litið. Söguþráðurinn er óvenjulegur eins og fram hefur komið og kannski ótrúverðugur. Aldrei má þó gleyma því að veruleikinn getur verið nokkuð ótrúverðugur þegar öllu er á botninn hvolft.

Lilja Ósk Snorradóttir, Aumingi mella syndari heilagur andi. Kápuhönnun: Bylgja Rún Svansdóttir. Útgefandi, Salka, 2026, 159 bls.

Viltu deila þessari grein með fleirum?