Nú er Kirkjublaðið.is að hefja sitt sjötta starfsár en það var stofnað 11. október 2020. Kirkjublaðið.is er frjáls miðill og kostaður af ritstjóranum, óháður öllum trúfélögum en stendur á lúthersk-evangelískum grunni.

Kirkjublaðið.is er einstaklingsframtak ritstjórans og hugmyndin var sú að auka umræðu um kirkjuleg málefni og annað sem þeim tengdist.

Nú horfir svo við að Kirkjublaðið.is er nánast eini fjölmiðlavettvangurinn þar sem umræða um málefni kirkjunnar fer fram. Þess vegna er Kirkjublaðið.is mikilvægur miðill og vettvangur skoðanaskipta um kirkjumál.

Kirkjublaðið.is fagnar sex ára afmæli sínu með kærum þökkum til lesenda blaðsins og allra þeirra sem láta ánægju sína í ljós með starf þess. Sömuleiðis og ekki síst færir Kirkjublaðið.is þakkir öllum þeim sem lagt hafa efni til blaðsins. Allt hefur það verið vandað og athyglisvert. Þá er allt kirkjufólk hvatt til að láta í sér heyra og nýta þennan vettvang sem miðillinn er.

Viltu deila þessari grein með fleirum?