Fólki í margvíslegum sálarvanda gefst kostur á mörgum tilboðum sem eiga að hjálpa því að greiða götu þess til að öðlast sálarró og betra líf. Það er eflaust gott að hafa í mörg hús að venda þegar svo stendur á í lífi fólks og hver og einn velur ráðgjöf við sitt hæfi. Sálfræðingar gegna mikilvægu hlutverki í þessu efni, prestar og djáknar sinna sálusorgun. Fjölskylduráðgjafar leggja sömuleiðis sitt lóð á vogarskálarnar sem og félagsráðgjafar, læknar og kennarar – þannig mætti lengi telja. Svo eru auðvitað vinir og ættingjar sem liðsinna fólki sem glímir við þrautir sem það stendur frammi fyrir á vettvangi dagsins. Öll þessi ráðgjöf byggir á ólíkum fræðagrunni og mannlegri reynslu sem á það kannski eitt sameiginlegt að finna leiðir til að auka lífsgæði.

Bókarkápa er með myndhluta úr málverki eftir Vincent Van Gogh

Fyrir nokkru kom út athyglisverð bók á dönsku sem fjallar um nytsemi listar til að hjálpa fólki sem ýmsar tilverufræðilegar raunir sitja um. Höfundar hennar eru prestar, listfræðingar, listamenn og heimspekingar. Bókin heitir Det forvandlende blik – Om at se på billeder i sjælesorg.

Í fyrri hluta bókarinnar er kynnt aðferð til að nota listaverk í sálgæslustörfum en í seinni hlutanum er að finna sjálfstæða kafla með greinum sem tengjast sálgæslu af þessu tagi og leggja þar ýmsir fræðimenn hönd á plóg. Kirkjublaðið.is mun birta á næstunni þýðingu á einni greinanna lesendum til fróðleiks og ánægju.

Ritstjórar bókarinnar benda á ríkulegan arf myndlistar sem fylgir kirkjum og allir kannast við. Ekkert guðshús er svo aumt að það eigi ekki listaverk sem höfða með einum eða öðrum hætti til trúar og lífs. Kirkjan hefur ætíð stuðst við myndlist til að koma fagnaðarerindinu til skila. Vissulega hafa listaverk verið umdeild í kirkjum á umliðnum öldum og kirkjuleg yfirvöld stundum látið eyðileggja þau hafi múgurinn verið farinn að tigna þau í stað almættisins. Sú saga er flestum kunn. Sjálfur Marteinn Lúther leit á fagnaðarerindið sem mynd sem almættið setti fram af sjálfu sér í Jesú frá Nasaret.

Listaverk geta hreyft við áhorfandanum og vakið upp ýmsar tilfinningar. Það á við myndlist, tónverk og hvað annað sem fellur undir list. Samband verður til og endurómur fer um sálarkynnin sem skapar merkingu í huganum. Þetta getur vakið tilefni til einhverra breytinga, skrefa í nýja átt og skilnings á því sem var og verður.

Strax í aðfaraorðum fullyrða ritstjórarnir að list geti dýpkað skilning mannsins á sjálfum sér og öðrum. Jafnframt geti listin aukið skilning á kristinni trú. Þessi yrðing er nokkurs konar leiðarstef aðferðarinnar sem kynnt er til sögunnar. Ritstjórarnir kalla aðferðina sálgæslusamtöl út frá listaverkum.

Aðferðina má nota í einkasamtölum eða með mörgum í hópi. Myndlistin opnar augu fólks fyrir blæbrigðum lífsins og hversdagslegum aðstæðum. Sá sem er í forsvari fyrir meðferðina, sálusorgunina, þarf ekki í sjálfu sér að vera menntaður í listfræði. Hins vegar þarf hann að skoða vel þau listaverk sem hann hyggst nýta sér, lesa um þau og setja sig inn í sitthvað sem þeim tengist. Sé meðferðin, sálusorgunin, á kristnum grunni þarf viðkomandi að vera útsjónarsamur við að sjá kristin stef í listaverkunum og koma þeim heim og saman við kjarnann í samtali sínu við skjólstæðinginn. Ritstjórar nefna hins vegar að svo virðist sem það fjari undan allri guðfræði í sálusorgun nútímans en það er kannski annað mál.

Ýmsar hagnýtar leiðbeiningar eru gefnar þeim er kjósa að nýta sér þessa sálgæsluaðferð þar sem stuðst er við listaverk. Þar er fyrst að nefna liti og merkingu þeirra. Flestir þekkja liti kirkjuársins og vita til hvers þeir skírskota. En fleiri eru nú litirnir en kirkjuársins og er farið yfir merkingu þeirra í stuttu máli. Gult er litur gleði, ljóss og hins heilaga sem og tvöfeldni. Appelsínugulur litur stendur fyrir gleði, hlýju og vinsemd. Rauður vísar til kærleika, þjáningar, hugrekkis, andans heilaga, lífs, dauða og reiði. Fjólublár stendur fyrir andann, dulúð, föstu og sorg. Sannleikur og öryggi íklæðast bláum lit, hann er og litur himinsins, hafsins, þrár, kulda og einsemdar. Grænn er litur vaxtar og þroska, lífs, heilsu og öfundar. Sorgin á svarta litinn, dauðann og óttann, dóm og synd. Trygglyndi, jörð og heimili vísa til brúna litarins. Þá er hvítur litur gleðinnar, hreinleika, sakleysis, sigurs, vináttu, gæsku og blessunar.

Margt fleira þarf vissulega að athuga en litina í myndum og blöndun þeirra. Hvernig eru pensilstrokur listamannsins – eða handbragð? Fínlegt eða groddalegt? Eru einhver stef endurtekin í verkinu og ef svo er þá hver? Birtan, ljósið, hvernig nýtir listamaðurinn sér það? Svo er það náttúrlega hin fræga kompósisjón í listfræðinni – uppbygging verksins sjálfs. Hvernig er hún?

Í mörgum listaverkum má finna tákn. Til eru handbækur um merkingu tákna í list og sér í lagi í trúarlegri list. Þar er um mjög svo auðugan garð að gresja. Örfá dæmi má nefna. Tré stendur fyrir líf, hringur er eilífðin, fugl er andi og sál, bátur stendur gjarnan fyrir kirkjuna eða lífsferðina, tímaglas fyrir lífsins stund og hið forgengilega, hauskúpa, merkir dauðann. Gluggi er frelsið, útsýni, von og nýtt upphaf.

Sá sem hyggst nýta sér sálgæsluaðferðina þar sem listaverk eru skoðuð er hvattur til að koma sér upp dágóðu myndaúrvali sem hægt er að sækja á netið eða úr eigin ranni. Heppilegt er að hafa um fjörutíu verk og verða það að vera listaverk sem góður veigur er í. Í hópsamtölum er talið ráðlegt að hafa fimm til sjö einstaklinga og gerð sú krafa að þeir séu tilbúnir til að ræða um líf sitt og vanda í hópnum, til dæmis hjónaskilnað, missi, kulnun, einsemd og svik. Ráðlegt er að hópurinn hittist fjórum til fimm sinnum. Hver velur sér sitt verk og umræður skapast síðan um það og hvers vegna viðkomandi verk var valið. Samtal milli þess sem stýrir hópnum og einstaklinganna fer fram og verður tími að vera rúmur. Listaverkið er í forgrunni í fyrstu og umræða um hvað verkið sýni og hvaða tilfinningar það veki hjá hópnum.  Hið sama á við um einkasálgæslu með hjálp listaverka að breyttu breytanda.

Í bókinni má finna lista yfir fjörutíu listaverk sem hægt er að nota við sálgæslu af þessu tagi og er biblíuvers við hvert verk sem hægt er að heimfæra út frá myndefninu. Hverjum og einum er svo í sjálfsvald sett að velja aðrar myndir. Höfundar leggja þó þunga áherslu á að myndefni listaverkanna eigi sér einhverja skírskotun til trúar og mennsku. Myndefnið þarf ekki endilega að vera biblíulegt því að mörg listaverk geyma margvísleg tákn sem vakið geta ýmsar andlegar hugrenningar hjá fólki, til dæmis ljós og myrkur, klettur, fjall og vatn.

Hér skal eitt dæmi tilfært um hvernig samtal gæti farið fram í sálgæslu þar sem stuðst er við listaverk.

Línudansarinn, eftir Paul Klee (1879-1940)

Konan sem valdi þetta listaverk er spurð hvers vegna hún hafi valið einmitt þetta verk. Hún svarar því til að línudansarinn sé ekki svo ólíkur henni sjálfri. Þegar hún er beðin um að útskýra það ögn nánar segir hún frá því að líf hennar sé oft einhvers konar línudans. Það sé svo margt í lífi hennar sem hún þurfi að gæta að til að jafnvægi haldist og allt fari vel.

„En hvað er þá undir línunni ef þú ert línudansarinn?“ spyr sálgætirinn.

Hún segist vinna í blómabúð og svörtu reitirnir á myndinni og strikin séu það sem reyni á jafnvægislist hennar. Flestir viðskiptavinanna sem koma í blómabúðina séu ósköp indælir og kurteisir. En sumir þeirra eru óþolinmóðir og það hvín í þeim ef blómin sem þeir vilja kaupa eru ekki til. Þegar mikið er að gera getur verið erfitt að vera þolinmóð gagnvart fúlum viðskiptavinum.

„En hvernig líður þér þarna uppi á línunni þegar allt gengur vel í blómabúðinni?“ spyr sálgætirinn.

„Frábærlega,“ svarar hún, „þá finnst mér þetta vera heimsins besti vinnustaður og mig dreymir um að eignast blómabúð einhvern tímann.“

„Auðvitað vonum við að línuansarinn geti gengið línuna út á enda án þess að falla,“ segir sálgætirinn, „en hvað ef hann fellur ofan í þessa svörtu reiti og strik?“

„Ég óttast oft að misstíga mig og falla, kvíðafull yfir því að ráða ekki við vinnuna þegar álagið er mest,“ svarar hún, „og hrapa ofan í svarthol.“

Sálgætirinn vekur athygli hennar á því að sjá megi stiga á myndinni og nái hann alveg upp að línunni. Stiginn sé tækifæri til að stíga af línunni og fara niður á öruggari stað í stað þess að hrapa ofan.

„Já, ég tók eftir honum og gaf mér öryggi og von sem ég fæ þegar ég tek frídag og fer með dóttur minni í bæinn,“ segir hún og bætir því við að það sé svo sem ekki vel séð að taka frídaga en þeir séu henni nauðsynlegir bæði til að sinna dótturinni betur en hún gerir og til að slaka á.

Sálgætirinn rifjar upp söguna úr Biblíunni sem oft er nefnd Jakobsstiginn og sé býsna lærdómsrík. Maður að nafni Jakob var á flótta og lagðist kvöld eitt til svefns og hafði kodda sem stein. Þá dreymdi hann merkilegan draum og fannst sem hann sæi stiga sem næði frá jörðu og til himins. Um stigann fóru englar Guðs og það var bara þó nokkur umferð þeirra upp og niður. Kannski sýnir stiginn að það var einhvers konar samband milli þessa manns sem var á flótta og Guðs. Stiginn væri tákn um návist í erfiðleikum og sýni að það er alltaf einhver tenging við almættið ef vel er að gáð.

Hún hugsar sig um og segir síðan: „Áttu við að eitthvað gott gerist þegar við hvílum okkur og hvíldin hjálpi og styrki í hversdagslegum önnum?“
(Bls. 33–39, Um Jakobsstigann svokallaða má lesa hér: I. Mósebók 28.10–22).

Í seinni hluta bókarinnar er að finna eins og áður er getið sjálfstæða kafla sem tengjast sálgæslu með stoð í myndlist og þetta eru heiti þeirra og höfundar:

Til eru myndir sem gera okkur kleift að sjá það sem við getum ekki séð 
eftir Lone Vesterdal

„Öll merking verður til í augnaráðinu, allur tilgangur í hjartanu“ 
um Sigrun Gunnarsdóttur, Karl Ove Knausgård og hæfileika listarinnar til að opna heiminn
eftir Line Louise Peters

„Hlátur minn og tárvot augu eru hvort tveggja fáni minn og skjöldur“ 
Sársaukablandin fegurðarupplifun í kynnum við málverk Marks Rothko
eftir Hanne Kragh Pahuus

Ógleymanlegar og uppbyggilegar myndir lífsins 
Lífsspekileg myndlist J. F. Willumsens
eftir Mogens Pahuus

Form og litur í myndlistinni 
eftir Hans Jørgen Frederiksen

Det forvandlende blik – Om at se på billeder i sjælesorg, ritstjórar: Lone Vesterdal og Line Louise Peters. Útgefandi: Eksistensen 2025, 132 bls.

Viltu deila þessari grein með fleirum?