Samfélag heilagra er kröftug bók og endurspeglar nútímalíf með einkar næmum hætti, hlýrri kímni og á stundum kaldhæðni. Það kemur lesanda á vissan hátt í opna skjöldu hvað bókartexti er samstæður og gæti þess vegna verið eftir einn höfund en svo er ekki því að þeir eru nokkrir. Bókin er afrakstur meistaranema í ritlist, hagnýtri ritstjórn og útgáfu, við Háskóla Íslands. Í henni er að finna stuttar frásagnir og ljóð.
Titill bókarinnar vekur vissulega athygli sem og hönnun bókarkápunnar. Hvít og blá bókarkápa minnir á kirkjuglugga og skírskotar þar með til einhvers heilagleika eða trúarstarfsemi. Þó að andblær kirkju og kristni svífi yfir vötnum í sumum köflum bókarinnar þá er það hvort tveggja í senn tilvísun til siðmenningarstofnunar sem kirkjan er í hugum margra og hins veraldlega ramma sem hún býr til fyrir opnum leiktjöldum trúar og kristni. Hugtakið heilagur er svo náttúrlega trúarbragðafræðilegt hugtak í sjálfu sér en öllum hugtökum er hægt að gefa nýja merkingu ef út í þá sálma er farið.
Ungt par ákveður að ganga í hjónaband í kirkju. Brúðguminn hafði aldrei í hyggju að gifta sig í kirkju. En brúðurin vildi hefðbundið brúðkaup, „enga eftirlíkingu“ – mannsefnið hennar var að áliti hennar bæði „kommúnisti og á móti trúarbrögðum“ en hann gekkst ekki við því enda var hann mannfræðingur og sakir þessa fannst honum það vera fráleit athugasemd frá konuefninu. Þrátt fyrir allt vildi hann hafa „smá mýstík“ og líka „ritúal“ (bls. 37) í kringum brúðkaupið og vildi að presturinn tryði á heilagleika athafnarinnar; sjálfur sagðist brúðguminn trúa því líka í „smá stund, innst inni“ (bls. 38). Feður brúðhjónanna voru svaramenn en þeir voru báðir utanþjóðkirkjumenn og það var þeim „prinsippmál að þegja yfir faðirvorinu og trúarjátningunni í kirkjunni.“ Brúðguminn taldi hins vegar að hann yrði að spila eftir „leikreglunum“ fyrst að þetta var kirkjubrúðkaup og taldi það vera hræsni af sinni hálfu að sleppa faðirvorinu og trúarjátningunni: Jesús verður að vera með. Amen“ (bls. 51). Brúðkaupið fór fram með pompi og prakt í Silfrastaðakirkju í Skagafirði. Þeir sem trúðu „raunverulega á Guð“ fengu að vera inni í kirkjunni (enda hún lítil) og trúleysingjar þurftu að fylgjast með athöfninni í gegnum útvarpið úti á kirkjuplaninu (bls. 54). Þegar þau eignuðust fyrsta barnið af þremur báðu þau prestinn að „halda biblíutalinu í lágmarki“ (bls. 52) í skírninni og hann varð við því þegar skírninni var lokið. Skírnarvatnið setti föðurinn í vanda því hann vissi ekki hvað ætti að gera við það. Fannst það óvirðing að hella því í klósettið (sem það og er) og notaði því eldhúsvaskinn (bls. 53). Hafði augljóslega aldrei heyrt um að hella ætti skírnarvatni við kirkjuvegg eða húsvegg í jörð niður.
Frásögnin af lífi og samskiptum þessa unga fólks sem gekk að eiga hvort annað í Silfrastaðakirkju er í tveimur þáttum, Silfrastaðir og Galdrastund. Viðhorf unga fólksins til kirkju í tengslum við hjónavígslu og skírn sýna að hið trúarlega form, eða kirkjulega, lifir sem siður eða venja þar sem hinn trúarlegi þáttur er býsna fjarlægur og sé hann til staðar þá er hann mótaður af persónulegu viðhorfi fólks þar sem kenningar kirkju og kristni eru oft léttvægar fundar – að minnsta kosti ekki látnar trufla. Eða kannski mætti segja að trúarleg umgjörð verði nokkurs konar hýsill fyrir veraldleg sjónarmið og fyrir vikið kemur ekki styggð að neinum. Yfirborðið er slétt og fellt. Allir eru sáttir. Hver túlkar umgjörðina með sínum hætti. Einhverjir myndu kannski segja að þetta kunni að vera eftirgjöf af hálfu kirkjustofnunarinnar meðan aðrir segja að hún aðlagist og jafnvel samlagist að einhverju leyti ríkjandi viðhorfum til samfélagsins – hún er ekki lengur fleinn í samfélagsholdinu og röddin spámannlega orðin hás og kennivald hennar horfið enda gefið undir fótinn með það af henni sjálfri að hver og einn eigi að trúa á sinn hátt. Sumir hafa í þessu sambandi bent á að í mörgum útförum heyrist varla sálmar sungnir og jafnvel ekkert vikið að upprisuboðskap trúarinnar heldur talað um Sumarlandið – sem enginn veit hvar er en þrátt fyrir það eru allir býsna sáttir við landið sem geymir sumarið eilífa og segja kannski með þunga á regnvotum og svölum sumardögum: Það kom þó sumar!
Krossfesting er heiti á frásögn sem segir frá fæðingum. „Eitthvað var tekið úr líkamanum og höndunum var stillt upp eins og Jesú á síðustu metrunum“ (bls. 125). Svo er að skilja sem litið sé á fæðingu sem einhvers konar vígslu til lífsins eða persónulega – faðir sem fær upphringingu í vinnuna þar sem honum er tilkynnt um að konan sé komin að því að verða léttari og þar með var vígslan að hefjast: „Nú skyldi hann verða að manni“ (bls. 127). Báðar þessar konur sem sagt er frá, móðir og dóttir sem fæðist, mættu „hugdjarfar“ á fæðingardeildina með það í huga að fá „fyrstu einkunn“ fyrir fæðinguna. Höfundur (dóttirin) metur það svo að fæðingin hafi verið „fullkomin niðurlæging“ fyrir þær báðar. Þær gáfust upp sem var ekki í „samræmi við guðlega áætlun“ (bls. 129). Þjáning þeirra er einhvers konar tegund af krossfestingu og lætur höfundur fljóta með óbeina tilvitnun í orð Jesú á krossinum: „Faðir, fyrirgef þeim því að þeir vita ekki hvað þeir gera“ (Lúkasarguðspjall 23.34). Á sama hátt og krossdauði hans (þjáning) er guðfræðileg forsenda upprisunnar (gleði) samkvæmt kristinni trú er fæðingin að mati höfundar vígsla í heiminn, samfélag manna og dýra. Hún er kraftaverk. Bætir því við að hún sé líkamlega refsivert kraftaverk. Mæðgurnar upplifðu báðar krossfestingu þegar þær ólu börn sín.
Ein frásögnin geymir hugleiðingar um fermingu eða manndómsvígslur, Til Sítu, frá einum umskiptingi til annars. Þar skrifar fermingarfræðari til fermingarbarns – og sá fræðari er ekki á vegum kirkjunnar heldur borgaralegrar fermingarstofnunar. Engu að síður kemur kirkja þar við sögu og viðhorf fræðarans til hennar. Þó að hann sé á móti trúarbrögðum þá fettir hann fráleitt fingur út í að fólk sé trúað. Mestu máli skiptir í hans huga að fólk standi við sannfæringu sína. Trúarjátningin postullega er gagnrýnd og sögð bera keim af því að vera „ónákvæmir minnispunktar af vinnufundi“ eða nokkurs konar „aðgerðaráætlun“ sem enginn beri ábyrgð á og hann spyr: „Hvernig geta svona mörg heilög orð verið jafn innantóm, jafn andlaus?“ (bls. 139). Það er dálítið þunglyndislegur tónn í frásögninni þó að leitast sé við að setja sig inn í aðstæður manndómsvígslunnar, fermingarinnar, hvort sem hún er nú kirkjuleg eða á vegum annarra stofnana og félaga. Blásið er á að fermingin sé einhver „helvítis tímamót“ eins og það er orðað (bls. 142) þar sem framheilinn nái ekki fullum þroska fyrr en við 25 ára aldur. Höfundur segir að flestum sé fram að þeim aldri hlíft við:
„köldum veruleika fullorðins lífs – borga reikninga, skutla og sækja, svara tölvupóstum. Þetta grín með að vera tekinn í fullorðinna manna tölu [sé] álíka þreytt stef eins og að stíga til heljar og að rísa upp á þriðja degi“ (bls. 142).
Fermingarathöfnin sé ekki annað en hluti af ævafornum hugmyndum um manndómsvígslur og í huga höfundar eru þau tengsl mögnuð. Táknræn athöfn er síðasta versið í manndómsvígsluferlinu (fermingunni) því að þar með er barninu „hleypt inn í hringinn“ – í samfélag fullorðinna. Orðið samfélag skiptir höfuðmáli í huga höfundar því að „besta fermingargjöfin – er stuðningsnet“ (bls. 145).
Öllum þeim sem annt er um líf manneskjunnar í erli dagsins, gleði og sorg, vonir og vonbrigði, heilindi og brigð ættu að lesa þessa bók. Hún er sem opinn gluggi inn í líf nútímafólks við ýmsar aðstæður þar sem hversdagsleikinn er heilagur (og það guðfræðilega og mannfræðilega hugtak er notað) ekki að hætti „heilagra manna og kvenna, ekki heilags anda eða orða, heldur tengsla sem binda okkur hvert við annað, sem þjappa okkur saman þrátt fyrir breyskleika hverrar og einnar manneskju“ (bls. 147). Höfundur segir í lok þessarar hugleiðinga sinna til Sítu að „vandamálið með fermingar“ felist ekki í því að þær séu tilgangslausar í nútímasamfélaginu heldur að fólk viti ekki hvað samfélagið sé. Hann býður fermingarbarnið velkomið í „samfélag heilagra“ burtséð frá því hvaða skoðun barnið hafi á því samfélagi.
Frásögnin Hreinsun segir frá feðginum sem eru viðstödd skírn í dómkirkju á Sikiley. Hún er á ferð með föður sínum og þau eru í sorgarorlofi því kona hans og móðir hennar var nýlátin. Inni í þessa sögu er ofið nokkuð listilega hugleiðingum dótturinnar sem rifjar upp með sér við skírnina fóstureyðingu sem hún gekkst undir fyrir margt löngu en hvorki fyrr né síðar efaðist hún um ákvörðun sína (bls. 29). Móðir hennar áfelldist ekki dóttur sína fyrir ákvörðunina og studdi hana. Þau fylgjast með skírn þessa ókunna barns í dómkirkjunni og það rennur upp fyrir henni að hún hafði aldrei sagt föður sínum frá þessu atviki sem hún hafði aldrei náð að gleyma: „… þegar ég rifja upp fortíðina sem býr innra með mér þarna í kyrrðinni þar sem himnaríki og helvíti vega salt, þessa meintu vanhelgun mína á kjarna lífsins – móðurhlutverkinu…“ (bls. 29). Þó að þessi minning sæki á hana með ágengum hætti í skírnarathöfninni þá heldur hún ró sinni og staðfestu: „Hugsanir eru kannski líka það eina sem maður á fullkomlega sjálfur“ (bls. 27). Orðið hreinsun er í ákveðnu samhengi guðfræðilegt, skírn er hreinsun: skíra merkir að gera eitthvað hreint, hreinsa. Einhverjir kunna og að líta á fóstureyðingu sem einhvers konar hreinsun á ótímabæru lífi (eða ekki lífi samkvæmt læknisfræðinni) burtséð frá hugmyndum og skilgreiningum á lífi og réttmæti slíkra félags- og læknisfræðilegra inngripa.
Það er athyglisvert við lestur þessara frásagna í umræddri bók hvað hefðbundin orða- og hugtakanotkun í tengslum við trú og trúarbrögð er lifandi um leið og reynt er að skrifa sig frá fyrirbærinu trú og því sem henni fylgir. Trúarbrögð eru vissulega ákveðin kerfi sem eru lábarin á strönd aldanna og kannski er illmögulegt að tala um lífið og tilveruna með veraldarvæðinguna að vopni án þess að henda á lofti orð og hugtök sem eitt sinn voru sögð. Þetta er kannski líka spurningin hvernig hægt sé að tala um guð án trúarbragðanna?
Kirkjublaðið.is mælir með þessari bók, Samfélagi heilagra, sem hér hefur verið farið fáeinum orðum um. Hún er bráðlifandi með safaríkum texta beint úr kviku mannlífsins. Lesandi er vakinn til umhugsunar um eitt og annað í darraðardansi nútímans og kannast eflaust við margt það sem leitar á huga þess fólks sem kynnt er til sögunnar.
Samfélag heilagra, höfundar: Ingunn Eyþórsdóttir, Lovísa Rut Kristjánsdóttir, Patricia Anna Þormar, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Steinunn Ýr Einarsdóttir og Sturla Óskarsson.
Natalia Vish sá um umbrot og hannaði bókarkápu.
Birtingur er með útgáfuréttinn en útgáfan er á vegum Króníku, 2026, bókin er 175 bls.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: