Í kvöld verður kertafleyting á Reykjavíkurtjörn kl. 22.30 til að minnast þess að 81 ár eru liðin frá því að kjarnorkusprengjum var varpað á Hírósíma og Nagasakí í Japan.

Kertafleytingin er höfð um hönd til að minnast fórnarlamba þessa skelfilega atburðar

Á þessu ári eru liðin 81 ár frá því að kjarnorkusprengja var sprengd í háloftunum yfir borginni Hírósíma. Á annað hundrað þúsund manns féllu og mestur hluti borgarinnar varð að ösku og eimyrju. Sprengjan var kölluð Litli drengurinn og óhætt er að fullyrða að það heiti sé viðurstyggileg tenging gereyðingarvopnsins við börn. Þremur dögum síðar var kjarnorkusprengja sprengd yfir Nagasakí og féllu hátt í eitt hundrað þúsund manns. Fórnarlömb þessara árása voru fyrst og fremst almennir borgarar.

Notkun kjarnorkusprengju í styrjöld olli ákveðnum straumhvörfum í stríðsbrölti mannkynsins. Síðan tók hvert stórveldið á fætur öðru að koma sér upp slíkum vítissprengjum í hergagnabúr sín því ekkert þeirra mátti vera slakara en hitt ef til stríðs kæmi auk þess sem fælingarmáttur kjarnorkusprengjunnar væri mikill. Sem betur fer hefur þessu djöfullega vopni ekki verið beitt síðan í lok heimsstyrjaldarinnar, gegn áðurnefndum borgum.

Það er ekki friður í heiminum. Því miður. Innrásarstríð Rússa í Úkraínu stendur enn og ekkert lát er á mannfalli. Gasasvæðið var lagt í rúst, Hamas og Ísrael berast á banaspjótum.  Stigvaxandi ófriður ríkir milli Bandaríkjamanna og Írana. Fleiri staði í veröldinni mætti svo sem nefna en hér er ekki tóm til þess. Viðurstyggð eyðileggingarinnar blasir hvarvetna við en almennum borgurum er fórnað af stríðsherrunum. Mæður og feður þeirra gráta um allan heim líkt og María guðsmóðir forðum við líkbörur sonar síns, meistarans frá Nasaret. Stríð er sturlun.

Fyrir nokkrum áratugum voru friðarmál iðulega á dagskrá þjóðkirkjunnar og mikið um þau rætt og ritað. Sú umræða hefur því miður nánast þagnað og önnur mál orðið frekari til rúmsins. Full þörf er að taka friðarmálin aftur upp á vettvangi kirkjunnar. Oft var þörf en nú er nauðsyn. Minna má á að Lútherska heimssambandið heldur vöku sinni í friðarmálum. Einnig Alkirkjuráðið.

Friður er oft nefndur á nafn í trúarriti kristinna manna, Biblíunni. Þó að lesa megi um hernað og ofbeldi í þeirri ágætu bók er líka að finna draumsýnina um frið í veröldinni og frið milli manna. Á öllum tímum hefur mannkynið séð hvílíkt böl fylgir stríðsátökum en hefur ekki getað losað sig enn undan þeim hörmungum. Mannkynið hefur oft þráð að geta smíðað nytsama hluti úr stríðstólum eins og plógjárn úr sverðum sínum og kornljái úr spjótum.

Og [þjóðirnar] munu smíða plógjárn úr sverðum sínum
og sniðla úr spjótum sínum.

(Spádómsbók Jesaja 2.4).

Draumurinn var og er:

Engin þjóð skal sverð reiða að annarri þjóð
og ekki skulu þær temja sér hernað framar.

(Spádómsbók Jesaja 2.4).

Meistarinn frá Nasaret, friðarhöfðinginn sjálfur, sagði eitt sinn á góðum degi: „Minn frið gef ég yður“ (Jóhannesarguðspjall 14.27). Hvort við honum hefur verið tekið er svo annað mál.

Friðarhöfðinginn var svo tekinn af lífi og hefur orðið að tákni samlíðunar með öllum sem beittir eru órétti og drepnir saklausir, hvort heldur af einstaklingum eða ríkisvaldi.

Þrátt fyrir allt ómar friðarkveðja hans enn í hjörtum mannanna þar sem er að finna hörmungar Hírósíma og Nagasakí: „Minn frið gef ég…“

Minnumst þeirrar kveðju í kvöld við kertafleytingu í Reykjavík, á Akureyri, Ísafirði,  Patreksfirði, Reyðarfirði og Seyðisfirði.

Hér sést hvar við Reykjavíkurtjörn kertafleytingin verður:

Kertafleytingin er þar sem staðsetningarmerkið sést — skjáskot: Kirkjublaðið.is 

Viltu deila þessari grein með fleirum?