Þetta er ein af þeim bókum sem verður að gefa sér nokkuð drjúgan tíma til að lesa eigi hún að gagnast lesanda. Ekki vegna blaðsíðufjölda eða óskýrleika heldur er ástæðan sú að hér er um að ræða safn frásagna fólks úr ýmsum áttum þar sem tekist er á við djúpa sorg og margs konar áföll. Hér er sár kvika tilfinninga opnuð af fólki sem trúir lesendum fyrir sögu sinni og ekki um annað að ræða en að aðgát skuli höfð í nærveru sálar svo ekki sé nú meira sagt. Þetta er hvorki skemmtilestur né heldur spennist lesandinn upp við lestur hennar. Hins vegar geta frásagnirnar og heilráðin orðið öðrum stuðningur í baráttu við margvíslegar raunir sem lífið færir þeim. Huggun er manni mönnum að, sagði skáldið.

Frásagnirnar eru alls sextán og streyma fram, hver með sínu sniði. Þær eru býsna yfirvegaðar og vel settar fram enda eðli máls samkvæmt hafa þær verið áður raktar í lífi fólksins og sumar þeirra eru kunnar úr öðrum miðlum. Hver frásögn kallar á ígrundun lesandans hvort heldur hann er að lesa erfiða reynslusögu fólks eða umfjöllun fagfólks á vettvangi sorgar og áfalla. Þarflaust er að rekja söguþráð frásagnanna eða stikla á einhverju sérstöku í þeim heldur er lesendum eftirlátið það verkefni. Það er mikill kostur að frásagnirnar eru hlaðnar hlýju og lesandi fær á tilfinninguna að sögumaður vilji með frásögn sinni og reynslu rétta fram hjálparhönd til þeirra sem glíma við áþekkan vanda eða jafnvel gerólíkan. Það getur orðið öðrum lærdómsríkt að kynnast því hvernig aðrir hafa tekist á við voveifleg tíðindi af eigin heilsu eða nákominna og hvernig brugðist var til varnar eftir því sem hægt var. Einhver lausn eða sátt kemur upp á yfirborðið, von og aukinn sálarstyrkur sem stundum er ekki hægt að útskýra. Þó er öllum ljóst að til dæmis sorgin sem knýr dyra hjá fólki kemur ekki alltaf fram í sömu klæðum enda þótt vissir drættir í þeim frá einu máli til annars séu áþekkir. Það kemur vel fram í sorgarfrásögnum sem snerta skyndidauða, sjálfsvíg eða dauða sem á sér aðdraganda af völdum sjúkdóma. Hið sama á við um sorg sem stingur sér niður við skilnað fólks og tilfinningalegar upplifanir eins og einsemd.

Skipulag bókarinnar er með þeim hætti að í upphafi hverrar frásagnar fer Vigfús Bjarni Albertsson fáeinum orðum um sögumann til að kynna hann fyrir lesendum. Það er bráðsnjallt og opnar dyr lesandans til þess sem á orðið hverju sinni. Þegar sögumaður hefur lokið máli sínu stígur Vigfús Bjarni aftur fram og áréttar sitthvað sem fram hefur komið í frásögninni og er stundum persónulegur í ummælum sínum um sögumenn. Loks er að finna spurningar í blálok hvers kafla, oft aðeins eina og stundum fleiri en þó aldrei fleiri en þrjár. Þetta skipulag gefur til kynna að nota megi bókina sem einhvers konar sjálfshjálparbók eða í sorgarhópum – eða tilfinningahópum því að almennar tilfinningar ber allnokkuð á góma í bókinni sem kemur ekki á óvart í sjálfu sér því að allar manneskjur eru tilfinningaverur og oft kveður býsna mikið að þeim þegar alvarleg áföll dynja yfir í lífi einstaklinga og fjölskyldna.

Vigfús Bjarni skrifar inngangsorð og þakkar þeim sem lagt hafa fram sinn skerf til bókarinnar í frásögnum sínum. Hann ræðir um starf sitt sem sálusorgari en hann býr að mikilli reynslu í þeim efnum. Inngangsorðin eru einkar upplýsandi um viðhorf hans og starfsaðferðir. Það er mjög áhugavert að líta á manneskjuna sem heimkynni frásagna (bls. 21) eins og hann kemst að orði. Það er gjarnan sagt að stysta leiðin milli manna sé saga og má það til sanns vegar færa. Hver manneskja er saga og sögusmiður og eys af sagnabrunni sínum: lífsreynsla, minningar, leiftur, túlkanir, sögubrot o.s.frv. Flest allt er nokkuð hversdagslegt og kunnuglegt. En sorgir og áföll opna innstu sálarfylgsni þar sem manneskjan er kannski veikust fyrir og sjálfur hversdagsleikinn hverfur í einu vetfangi og í stað hans er eitthvað komið sem þú vildir aldrei sjá. Unnið er úr málum með því að kafa ofan í söguþráð og í sálardjúpin. Úrvinnslan er lykilatriði í allri sálusorgun; hún er meðal annars samvinna þess sem segir frá og þess sem hlustar.

Guð kemur fyrir í nokkrum frásögnum bókarinnar og af sjálfu leiðir þegar menn standa andspænis dauðans alvöru – er það ekki? Aðferðir trúarbragða, eða öllu heldur það sem þau hafa upp á að bjóða þegar hel og dauði sækir mannfólkið heim ásamt annarri óáran, eru ekkert svo ósvipaðar þegar upp er staðið. Bæn og íhugun, leið helgunar, ganga veginn í fótspor meistara o.s.frv. Leiðirnar eru margar og kristin sálusorgun er nú ein aðferð, ef svo má segja, af mörgum til að styrkja fólk í andlegum og líkamlegum háska. Hér geta allir lært af öðrum ef vilji er fyrir hendi. Andleg leit getur hafist þegar lífstafli þínu er skyndilega snúið við og þú virðist vera skák og mát. Trúarlegt lífsviðhorf sem er kannski gruggugt að áliti einhverra sem þykjast vita betur getur orðið tært og dýpkað þegar farið er að vinna úr áföllum sem skekið hafa lífið.

Einhverjir telja það kannski sérstakt umhugsunarefni ef kristin sálusorgun, consiliatio in persona Christi (sálusorgun í Krists stað) sem byggir meðal annars á Biblíunni, orðum Jesú og fordæmi, bíður lægri hlut í samkeppni sálusorgunaraðferðanna. Kjarni málsins er hins vegar umhyggja fyrir hrelldri sál og ætti kannski ekki að skipta máli hvaða trúarkerfi mannanna kemur henni til bjargar og segir: Trú þín hefur gert þig heila. Það hefur auk þess ætíð verið öllum sálusorgurum til sóma að virða trú og lífsviðhorf skjólstæðinga sinna.

Sem sagt í stuttu máli: Afbragðs góð bók sem kemur almenningi og sálusorgurum að notum. Frásagnir eru vel orðaðar og mjög svo umhugsunarverðar. Það er nefnilega vandasamt að segja frá átakanlegri lífsreynslu og frásögnin verður aldrei væmin eða dæmandi.

Vigfús Bjarni Albertsson, Von að láni – Lífsreynslusögur samferðafólks, Skálholtsútgáfan – Kirkjuhúsið, 192 bls. Halla Sólveig Þorgeirsdóttir hannaði bókarkápu. Útgáfuár: 2026.

Viltu deila þessari grein með fleirum?