Fram kemur í fundargerð stjórnar Þjóðkirkjunnar frá 18. ágúst síðastliðnum að biskup Íslands, Guðrún Karls Helgudóttir, muni flytja að Mosfelli í Mosfellsbæ.
Kirknaskrá Páls biskups Jónssonar frá því um 1200 getur um kirkju að Mosfelli.
Kirkjan sem stendur nú á Mosfelli var teiknuð af Ragnari Emilssyni arkitekt og vígð árið 1965,
Lengi vel var biskupsbústaður við Bergstaðastræti í Reykjavík en hann var seldur fyrir tveimur árum.
Tilvonandi biskupsbústaður á Mosfelli var byggður 1997 og standa endurbætur á honum fyrir dyrum sem áætlað er að ljúki um næstu áramót. Arkitektastofan Gláma Kím var fengin til að gera tillögur að efnisvali og öðrum endurbótum innanhúss ásamt breytingum á innra skipulagi hússins. Núverandi bílskúr yrði til dæmis breytt í herbergi og nýr bílskúr byggður við húsið. Þegar framkvæmdum verður lokið mun biskup flytja í húsið og jafnframt er horft til þess að hafa um hönd minni móttökur á vegum biskups í húsinu þegar fram líða stundir.
Mosfell í Mosfellssveit er fornfrægur kirkjustaður og stendur undir samnefndu fjalli. Kannski er frægasti ábúandi Mosfells Egill Skalla-Grímsson sem hafði þar heimilisfestu í elli sinni um árið 1000. Egill var heygður í dalnum, við Tjaldanes, en skömmu fyrir andlát sitt faldi hann silfursjóð í grennd við bæinn en sjóðurinn hefur aldrei fundist (Egils saga, 88. kafli).
Einhver kann að spyrja hvort það eigi fyrir Mosfellskirkju að liggja að verða dómkirkja. Dómkirkja vísar gjarnan til þess að um sé að ræða kirkju biskupsins.
Biskupar Íslands hafa setið á ýmsum stöðum frá því að biskupsdæmin Skálholtsbiskupsdæmi og Hólabiskupsdæmi voru sameinuð í eitt, Reykjavíkurbiskupsdæmi (Ísland er nú eitt biskupsdæmi samkvæmt lögum[1] en ekki kennt við Reykjavík). Hér gefur að líta stutt yfirlit yfir búsetusögu biskupanna [2]:
Geir Vídalín (1801–1823) bjó fyrst á Lambastöðum á Seltjarnarnesi en varð gjaldþrota og fluttist þá í Lækjargötu 10 í Reykjavík, Steingrímur Jónsson (1824–1845) bjó í Laugarnesi, Helgi G. Thordarsen (1846–1866) bjó þar einnig en síðan í Lækjargötu, Pétur Pétursson (1866–1889) í Austurstræti 15, Hallgrímur Sveinsson (1889–1908) bjó að Vesturgötu 19, Þórhallur Bjarnarson (1908–1916) bjó í Laufási, nú Laufásvegur 48, Jón Helgason (1917–1939) bjó við Tjörnina, Tjarnargötu 26, Sigurgeir Sigurðsson (1939–1953) bjó við Öldugötu 14 og Gimli við Lækjargötu, Ásmundur Guðmundsson (1953–1959) bjó við Laufásveg 75, Sigurbjörn Einarsson (1959–1981) bjó fyrst við Tómasarhaga 15 og síðar Bergstaðastræti 75 en þar bjuggu einnig eftirmenn hans Pétur Sigurgeirsson (1981–1989), Ólafur Skúlason (1989–1997), Karl Sigurbjörnsson (1998–2012) og Agnes M. Sigurðardóttir (2012–2024). Núverandi biskup, Guðrún Karls Helgudóttir, hefur búið í Grafarvoginum í Reykjavík.
Aðalstræti 10 í Reykjavík. Geir Vídalín, fyrsti biskupinn yfir Íslandi, bjó í þessu húsi 1807-1823, og var húsið þá kallað Biskupsstofa
Þess má geta að hin stórmerka kona, Ólafía Jóhannsdóttir (1863-1924) fæddist að Mosfelli. Skammt frá kirkjunni er bróststytta af henni. Kirkjublaðið.is fjallaði um Ólafíu 2024 þegar öld var liðin frá andláti hennar.
Fundargerð stjórnar Þjóðkirkjunnar
Tilvísun
[1] Á heimasíðu þjóðkirkjunnar segir: „Þjóðkirkjan er eitt biskupsdæmi…“ en í þjóðkirkjulögunum er talað um að Ísland sé eitt biskupsdæmi.
[1] Þetta búsetuyfirlit er sett saman í snarhasti og tekið skal fram að biskuparnir kunna að hafa búið áður eða síðar um skamma hríð á öðrum stöðum en hér eru nefndir.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: