Fyrir nokkru lauk kirkjuþingi unga fólksins sem haldið var í Háteigskirkju 3.–4. október sl. Ár hvert er kirkjuþing unga fólksins haldið að hausti til og boðar biskup til þess.
Hlutverk kirkjuþings unga fólksins er að ræða stöðu og hlutverk ungs fólks í þjóðkirkjunni og í samfélagi kirkna um heim allan. Kirkjuþing unga fólksins er vettvangur ungs fólks til að hafa áhrif á starfsemi kirkjunnar.
Allt skipulag kirkjuþings unga fólksins og umsjón með því er í höndum Ingunnar Bjarkar Jónsdóttur, svæðisstjóra æskulýðsmála á höfuðborgarsvæðinu. Drífa Hjartadóttir, forseti hins almenna kirkjuþings, setti kirkjuþing unga fólksins og Guðmundur Þór Guðmundsson, lögfræðingur kirkjuþings þjóðkirkjunnar, kynnti fundarsköp fyrir hinum ungu kirkjuþingsmönnum. Um helgihald á þinginu sá Eva Björk Valdimarsdóttir biskupsritari.
Kirkjuþing unga fólksins er mikilvægt til að koma skoðunum og hugmyndum ungs fólks á framfæri. Ungt fólk sem starfar í kirkjunni er áhugasamt og hefur margt að segja um kirkju og kirkjustarf sem full ástæða er til að gefa gaum og greina frá störfum þess. Unga fólkið á kirkjuþingi mun flest allt láta að sér kveða á kirkjulegum vettvangi, ýmist heima í sínum sóknum eða síðar innan ýmissa stofnana kirkjunnar.
Hverjir sitja á kirkjuþingi unga fólksins?
a. Reykjavíkurprófastsdæmi vestra, 3 fulltrúar
b. Reykjavíkurprófastsdæmi eystra, 3 fulltrúar
c. Kjalarnessprófastsdæmi, 3 fulltrúar
d. Vesturlandsprófastsdæmi, 2 fulltrúar
e. Vestfjarðaprófastsdæmi, 2 fulltrúar
f. Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi, 2 fulltrúar
g. Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi, 2 fulltrúar
h. Austurlandsprófastsdæmi, 2 fulltrúar
i. Suðurprófastsdæmi, 2 fulltrúar.
Tveir fulltrúar KFUM og KFUK á Íslandi eiga seturétt á kirkjuþinginu með málfrelsi og tillögurétt. Fulltrúar skulu vera á aldursbilinu 16 til 35 ára, skráðir í þjóðkirkjuna og með tengsl við þjóðkirkjuna í því kjördæmi sem þeir sitja fyrir.
Um kirkjuþing unga fólksins gilda sérstakar starfsreglur sem má sjá hér.
Þegar rennt er yfir málaskrá unga fólksins sést að það er margt sem liggur því á hjarta og sumt af því má kannski rekja til eigin reynslu, eins og tillaga sem gengur út á að efla samstarf um barna- og æskulýðsstarf milli sókna og sérstaklega í ljósi þess að sums staðar hagar svo til að örfá börn eða ungmenni eru í sóknum (10. mál). Þá var athyglisverð tillaga rædd á kirkjuþingi unga fólksins sem lýtur að því að hugtakið æskulýðsleiðtogi verði skilgreint en það hlutverk er ábyrgðarmikið og mikilvægt að hver sem er geti ekki kallað sig æskulýðsleiðtoga. Lagt er til að þau sem rétt hafi til að kalla sig æskulýðsleiðtoga verði að vera 18 ára, hafa lokið Leiðtogaskóla þjóðkirkjunnar eða sambærilegri þjálfun, brunavarnarnámskeiði, vera með gild skyndihjálparréttindi og vera skráð í þjóðkirkjuna. Þau sem ekki hafa uppfyllt þessi skilyrði beri starfsheitið æskulýðsleiðbeinandi (9. mál). Auðvitað vilja ungmennin vera í sambandi við sóknarnefndir og þess vegna telja þau brýnt að sóknarnefndir fundi reglulega með æskulýðsleiðtogum (5. mál). Tillaga um fjölgun fulltrúa kirkjuþings unga fólksins á kirkjuþinginu hinu almenna upp í þrjá var samþykkt en nú situr þar aðeins einn. Hér er aðeins fátt eitt nefnt úr athyglisverðri málaskrá og lesendur hvattir til að kynna sér hana á vef kirkjuþings.
Þessi voru málin á dagskrá kirkjuþings unga fólksins og munu sum þeirra kannski rata inn á kirkjuþing þjóðkirkjunnar.
- mál – tilraunaverkefni um rafræna bókun skírna.
- mál – stofnun ungmennakirkju innan þjóðkirkjunnar og stefnumótun varðandi hana.
- mál – tillaga til þingsályktunar um sameiginlegt æskulýðsfélag fyrir ungmenni sem koma úr sóknum þar sem ekki er starfandi æskulýðsfélag.
- mál – niðurgreiðsla sunnudagaskólaefnis fyrir söfnuði.
- mál – reglubundnir fundir sóknarnefnda með æskulýðsleiðtogum og um breyting á starfsreglum um söfnuði og sóknarnefndir nr. 16/2021-2022.
- mál – biblíusögur fyrir svefninn fyrir börn á streymis- og hljóðbókaveitum.
- mál – fjölgun ungs fólks á kirkjuþingi þjóðkirkjunnar.
- mál – gerð kjarasamninga eða launaviðmiða fyrir æskulýðsfulltrúa og æskulýðsleiðtoga þjóðkirkjunnar sem hafa ekki lokið háskólaprófi.
- mál – skilgreining á æskulýðsleiðtogum innan þjóðkirkjunnar.
- mál – sameiginlegt barna- og æskulýðsstarf á milli sókna þar sem þess konar starf er ekki fyrir í boði.
- mál – starfsreglur um breytingu á starfsreglum um kirkjuþing unga fólksins nr. 42/2021-2022
- mál – aðgengi að tíðavörum í kirkjum landsin
- mál – framkvæmd samþykkta kirkjuþings um hlutdeild ungs fólks á kirkjuþingi.
Eins og sést eru þetta allt athyglisverð mál. Sérstaklega skal bent á þingsályktunartillögu sem unga fólkið samþykkti og snýst um að stofna ungmennakirkju innan þjóðkirkjunnar en hún hljóðar svo:Kirkjuþing unga fólksins 2026 hvetur stjórn Þjóðkirkjunnar og biskup Íslands til að hefja undirbúning að stofnun ungmennakirkju innan þjóðkirkjunnar. Unnin verði langtímafjárhagsáætlun sem tryggi nægt fjármagn og annað það sem þarf til undirbúnings, uppbyggingar og reksturs ungmennakirkju.
Greinargerðin sem fylgdi með var þessi: Kirkjuþing unga fólksins 2026 telur mikilvægt að innan þjóðkirkjunnar sé vettvangur sem er sérstaklega ætlaður ungu fólki. Ungmennakirkja getur orðið samkomustaður þar sem ungt fólk finnur til þátttöku, ábyrgðar og samfélags, óháð því úr hvaða söfnuði það kemur.
Með stofnun ungmennakirkju skapast tækifæri til að þróa helgihald, fræðslu og samfélagsstarf sem tekur mið af þörfum og reynslu ungs fólks. Mikilvægt er að verkefnið sé undirbúið með skýrum hætti og að tryggt sé fjármagn til uppbyggingar þess.
Tillagan var afgreidd úr nefnd með eftirfarandi hætti:
Nefndin leggur til breytingu á titli þingsályktunarinnar sem verði svohljóðandi:
Tillaga til þingsályktunar um mótun ungmennakirkju innan þjóðkirkjunnar og stefnumótun varðandi hana
Nefndin ítrekar að ungmennakirkja (sbr. U-kirken í Kaupmannahöfn) innan þjóðkirkjunnar í framtíðinni tryggi aðsókn ungs fólks innan kirkjunnar. Að öðru leyti leggur hún til að málið verði samþykkt með breytingum.
Svipmyndir frá kirkjuþingi unga fólksins

Margrét Heba Atladóttir í ræðustól

Frá vinstri: Thelma Rós Arnarsdóttir, Sigurður Óli Karlsson, Karen Sól Halldórsdóttir, Anna Lilja Steinsdóttir og Anton Bjarni Bjarkason

Frá vinstri: Ásmundur Máni Þorsteinsson, forseti kirkjuþings unga fólksins, Jóhannes Már Pétursson, varforseti, Margrét Heba Atladóttir, ritari, og Anna Lilja Steinsdóttir
Myndir tók Ingunn Björk Jónsdóttir.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: