Þetta segir Auður Thorberg í Gestaglugga Kirkjublaðsins.is:
Í vor var nýtt kirkjuþing kosið og í næsta mánuði kemur það saman í fyrsta sinn. Það eru spennandi tímar og mörg skemmtileg verkefni fram undan. Margt hefur gengið vel síðan nýju þjóðkirkjulögin voru samþykkt árið 2021. Óhætt er að segja að grettistaki hafi verið lyft í breytingum á starfsreglum til samræmis við breytta stöðu þjóðkirkjunnar, t.d. með tilkomu stjórnar og framkvæmdastjóra. Eitt grundvallaratriði situr þó enn eftir og það er að færa kosningar til kirkjuþings í lýðræðisátt.
Núna er kosið til kirkjuþings í tveimur deildum, leikmenn og vígðir, sem eitt og sér dregur úr trúverðugleika þingsins. Þetta fyrirkomulag er leifar gamla kerfisins sem var fellt úr gildi fyrir 5 árum. Það er liðin tíð að eðlilegt geti talist að um 150 starfsmenn þjóðkirkjunnar eigi yfir 40% þingsæta og kjósi bara hver annan. Leikmenn eru núna kosnir af sóknarnefndarfólki eftir prófastdæmum sem er því miður ekki þverskurður þjóðarinnar. Eðlilegast er að allir kjósi alla og við séum öll fulltrúar okkar kjördæmis og auðvitað þjóðarinnar í heild. Þannig tel ég að náist meiri fjölbreytni (t.d. í aldursdreifingu) og fleiri raddir heyrist. Aðrar þjóðkirkjur í nágrannalöndum okkar eru með almennan kosningarétt meðlima kirkjunnar til kirkjuþings og ég sé enga ástæðu til að aðrar reglur ættu að gilda um okkar kirkju.
Prófastsdæmin og byggðastefna
Þjóðkirkjunni ber að halda úti vígðri þjónustu á landinu öllu og tryggja að allir landsmenn geti átt kost á henni. Því verður að teljast eðlilegt og sanngjarnt að valdinu sé dreift um landið með einhverjum hætti. Kirkjuþing fer með æðsta vald í veraldlegum málefnum þjóðkirkjunnar og leikmenn sem þar sitja eru kosnir miðað við prófastdæmin. Getur verið að sú stjórnsýslueining sé góð til að dreifa valdinu um landið? Ég sé ekki hvaða önnur stjórnsýslueining ætti að henta betur. Vígðir kjósa hver annan í þremur umdæmum, Hólaumdæmi, Skálholtsumdæmi og á suðvesturhorninu, er það eðlilegri skipting? Ég tel farsælla að nota stjórnsýslueininguna sem prófastdæmin eru og að allir kirkjuþingsfulltrúar sæki umboð sitt þangað, bæði vígðir og leikmenn. Frá mínum bæjardyrum séð snúast prófastsdæmin ekki bara um prófastinn og mannaforráð hans, heldur líka um að dreifa valdinu um allt land.
Eftir kirkjuþingskosningarnar í vor er samsetning kirkjuþingsfulltrúa að sumu leyti óheppileg. Landsbyggðin, sem á mest undir högg að sækja, fékk fáa fulltrúa. Prófastdæmi Austurlands, Vesturlands og Vestfjarða fengu bara einn fulltrúa hvert og engan vígðan. Þetta eru viðkvæm og dreifbýl svæði sem hafa þurft að berjast við að halda úti þjónustu og auðvelt er að færa rök fyrir því að raddir starfsfólks þaðan séu ekki síður mikilvægar en af fjölmennari svæðunum. Kona spyr sig eins og stundum áður hver sé eiginlega byggðastefna þjóðkirkjunnar?
Framtíðarsýnin
Á síðasta kirkjuþingi var gefin út skýrsla um kosti þess og galla að rýmka ákvæði starfsreglna um kosningarrétt við kjör til kirkjuþings og kosningu biskupskosningar til kirkjuþings og mikil umræða fór fram um hana og tillögur sem voru lagðar fram upp úr henni. Sumar tillögurnar voru stórhuga en því miður hafði síðasta kirkjuþing ekki hugrekki til að taka nein skref í lýðræðisátt. Til að halda trúverðugleika sínum verður nýtt kirkjuþing að standa sig betur.
Ég vona að núverandi kirkjuþing hafi hugrekki til að taka skref í átt til lýðræðis og vera stolt af því hvernig kirkjan okkar er. Við búum við lýðræðislega uppbyggingu í kirkjunni og eigum alls ekki að skammast okkar fyrir það eða vera feimin. Reyndar tel ég að þjóðkirkjan sem eining beri meiri ábyrgð en margar aðrar á því að ala upp samfélagið okkar til lýðræðis. Það er ekki sjálfsagt að búa við lýðræði. Málefnaleg og yfirveguð umræða um lýðræði og kosningar er ekki sjálfsögð. Þetta eru allt atriði sem þarf að ala þjóð og samfélög upp í og þar getur þjóðkirkjan stigið fram með miklu hugrakkari hætti, t.d. með því að opna kosningar til kirkjuþings alveg.
Verum hugrökk og stolt, reynum að fá meiri þverskurð af þjóðinni inn á kirkjuþing og láta sig málefni hennar varða. Því við vitum öll að þegar á reynir er mikilvægt að kirkjan sé í nærumhverfi okkar, hvar sem við búum.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: