Dagverðarneskirkja er í Dalaprestakalli, Vesturlandsprófastsdæmi. Kirkjan tilheyrir nú Staðarfellssókn en var áður sóknarkirkja Dagverðarnessóknar.

Ástand Dagverðarneskirkju var búið að vera alldapurt í nokkuð langan tíma og mörgum rann það til rifja.

Ritstjóri Kirkjublaðsins.is skoðaði kirkjuna fyrir þremur árum og höfðu vindar og veður leikið guðshúsið grátt sem reist var 1934.

En Dalamenn eru stórhuga og tóku sig saman. Gerð var nákvæm kostnaðaráætlun um allsherjarendurbætur á kirkjunni og síðan var hafist handa. Stofnað var Hollvinafélag kirkjunnar og leitað var fjár til að kosta framkvæmdir.

Í gær rann svo stóra stundin upp, fyrsta guðsþjónustan í kirkjunni frá 2019 og nú eftir viðamikla uppgerð. Sól skein í heiði og hlýja umvafði viðstadda. Dagverðarnes í Klofningi skartaði sínu fegursta og öll náttúran ilmaði. Kirkjan var þétt setin og þar þjónuðuðu prestarnir Snævar Jón Andrésson, sóknarprestur í Dalaprestakalli, og María Guðrúnar Ágústdóttir, prófastur Vesturlandsprófastsdæmis. Við orgelið var Eyþór Ingi Jónsson.

Eftir messuna var kirkjukaffi á Laugum þar sem boðið var upp á ljúffengar veitingar. Ræður voru haldnar þar sem gerð var meðal annars grein fyrir framkvæmdum við kirkjuna. Ánægjusvipur var á hverju andliti og Dalamenn og stuðningsaðilar þeirra stoltir af verki sínu og skyldi engan undra.

Sigurður Rúnar Friðjónsson gerði grein fyrir framkvæmdum. Í máli hans kom fram að nú þegar væri búið að verja til verksins 56 milljónum en eftir væri að vinna að göngustígum og söguskiltum fyrir um fimm milljónir. Fé til framkvæmda hefur komið frá Jöfnunarsjóði sókna, Minjastofnun, Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og einstaklingum. EigendurDagverðarness eru bandarísk hjón, Daphne Recanati Kaplan (hún er með tvöfaldan ríkisborgararétt) og Thomas S. Kaplan, og gáfu þau 25 milljónir sem gerði útslagið um að hægt var að vinna verkið hratt og örugglega. Það skal tekið fram að þau hjón eiga ekki landið sem kirkjan stendur á né heldur kirkjugarðinn.

Strax í árslok 2023 var farið að huga að endurbótum, gerðar voru áætlanir, málin kynnt og undirbúin. Síðast hófst vinna í árslok 2024 og var rösklega unnið að framkvæmdum. Baldur Þorleifsson trésmiður í Stykkishólmi vann verkið í samvinnu við Minjastofnun en það samstarf var hið besta. Sigurður Breiðfjörð Sigurðsson sá um málningarvinnu en reynt var að grafast fyrir umupprunalega málningu og tókst það býsna vel. Karen Sigurkarlsdóttir forvörður sá um að hreinsa altaristöflurnar tvær. Fjölmargir aðrir ónefndir komu að framkvæmdum við kirkjuna.

Samtakahugur þeirra sem voru í forystu fyrir endurbótum á Dagverðarneskirkju er til mikillar fyrirmyndar og ætti að vera öðrum hvatning til að huga að gömlum kirkjum í sóknum sínum sem farnar eru að láta verulega á sjá. Sóknir hafa ekki burði til að standa straum af endurbótum nema að mjög litlu leyti og þá er að líta til þrautseigju Dalamanna við að sýna Dagverðarneskirkju fulla sæmd með viðeigandi endurbótum. Þar lögðust margir á eitt og þegar upp var staðið blasti við fagurt guðshús eftir endurbæturnar.

Hollvinasamtök kirkna eru sennilega góð leið til að vekja áhuga kirkjufólks á slæmu ástandi kirkna og brýnni þörf til að bæta þar úr. Slík samtök geta höfðað til margra sem áhuga hafa á varðveislu menningarminja eins og gamalla kirkjuhúsa sem og fólks sem á ættir að rekja til þeirra staða sem átt hafa sókn í kirkjur þar sem fólksfækkun hefur orðið umtalsverð. Viðhaldsleysið sárnar öllum en við því er eitt ráð: Að hefjast handa. Kirkjuhúsið geymir sögu um líf fólks og byggða sem tilfinningar eru tengdar við.

Framkvæmdir hófust formlega í júní 2025 og fyrsta verk var að rífa upp gólffjalir og skoða sökkulinn. Í ljós kom að honum þurfti að moka í burtu og steypa nýjan. Síðan tók hver verkþáttur við af öðrum. Myndir af skjávarpa voru sýndar í kaffisamsætinu á Laugum og þar sást að kirkjuhúsinu hafði nánast verið flett í sundur og allt lagfært sem hægt var. Á Feisbókarsíðu Hollvinafélagsins er hægt að sjá glögglega hvernig framkvæmdir gengu fyrir sig.

„Hollvinafélagi Dagverðarneskirkju er ætlað að styðja við uppbyggingu kirkjunnar, kirkjulegt og menningarlegt starf í Dagverðarneskirkju. Halda á lofti mikilvægi staðarins og varðveita þær minjar sem felast í kirkjunni og umhverfi hennar.“

Bára Sigurðardóttir er formaður sóknarnefndar Staðarfellssóknar og Hollvinafélags Dagverðarneskirkju. Hún var vakin og sofin yfir öllum málum sem snertu Dagverðarneskirkju.

Hér má heyra í klukkum Dagverðarneskirkju.

Hér koma nokkrar myndir frá gærdeginum í Dagverðarneskirkju

Prófastur og sóknarprestur fyrir altari

Sóknarprestur prédikaði

Altari og prédikunarstóll

Umhverfi Dagverðarneskirkju er ægifagurt

Viltu deila þessari grein með fleirum?