Steindór Haraldsson í ræðustól kirkjuþings

Í Gestaglugga Kirkjublaðsins.is er að þessu sinni Steindór Haraldsson (f. 1949). Hann sat á kirkjuþingi í sextán ár og hefur um áratugaskeið tekið virkan þátt í málefnum þjóðkirkjunnar.  Samhliða starfaði hann í rúma fjóra áratugi við stjórnun, nýsköpun, atvinnuuppbyggingu ogstefnumótun, bæði hér á landi og erlendis. Hann hefur að mestu sest í helgan stein en gegnir enn ýmsum trúnaðar- og stjórnunarstörfum, meðal annars sem stjórnarmaður í Byggðastofnun. Í skrifum sínum leggur hann áherslu á framtíðarsýn, endurskoðun skipulags og hvernig stofnanir geti þróast í takt við breytt samfélag án þess að glata grunngildum sínum. Greinin byggir á reynslu höfundar og er hugsuð sem innlegg í umræðu um framtíðarskipan þjóðkirkjunnar:

Á síðustu áratugum hefur stjórnsýsla þjóðkirkjunnar tekið miklum breytingum. Ný samskiptatækni hefur gjörbreytt þeim aðstæðum sem áður réðu því hvernig kirkjan starfaði og hvernig biskup gat sinnt forystuhlutverki sínu. Sú þróun vekur upp mikilvæga spurningu:

Þessar hugleiðingar eru ekki settar fram sem fullmótuð tillaga heldur sem innlegg í umræðu um hvernig þjóðkirkjan geti best lagað stjórnskipan sína að breyttum tímum.

Er stjórnsýslulegt hlutverk prófastsins orðið tímaskekkja eða hefur það þróast yfir í annað hlutverk?

Til að svara þeirri spurningu er nauðsynlegt að líta til sögunnar.

Upphaflega var prófasturinn fulltrúi biskups í héraði. Þegar samgöngur voru erfiðar og samskipti takmörkuð gat biskup aðeins heimsótt kirkjur með löngu millibili. Þá varð prófasturinn í raun augu, eyru og rödd biskups í héraðinu. Hann hafði eftirlit með prestum, kirkjum og kirkjueignum, fylgdist með því að kirkjulegum reglum væri fylgt og veitti biskupi upplýsingar um stöðu mála. Það var eðlilegt skipulag á sínum tíma og þjónaði mikilvægu hlutverki í stjórnsýslu kirkjunnar.

Í dag eru forsendurnar allt aðrar.

Biskup getur átt fund með öllum prestum landsins með nokkurra mínútna fyrirvara. Regluleg samskipti fara fram með tölvupósti, síma og fjarfundabúnaði. Upplýsingar berast samstundis og ferðalög um landið taka aðeins brot af þeim tíma sem áður var.

Þær aðstæður sem mótuðu embætti prófastsins á miðöldum eru því ekki lengur fyrir hendi.

Það þýðir þó ekki að embættið hafi misst gildi sitt. Þvert á móti. Spurningin er fremur hvort hlutverk þess hafi þróast.

Að mínu mati eru sterkustu rökin fyrir prófastsembættinu í dag ekki lengur þau að prófasturinn sé milliliður upplýsinga milli presta og biskups. Miklu fremur felast þau í leiðtogahlutverki hans. Góður prófastur þekkir prestana á sínu svæði, styður þá í starfi, aðstoðar við lausn ágreiningsmála, veitir ráðgjöf og stuðlar að samræmingu kirkjulegs starfs innan prófastsdæmisins.

Ef embættið byggist hins vegar fyrst og fremst á því að miðla upplýsingum milli biskups og presta hefur tæknin að verulegu leyti tekið við því hlutverki.

Ég hef starfað innan þjóðkirkjunnar í áratugi og setið á kirkjuþingi í sextán ár. Á þeim tíma hef ég séð stjórnsýslu kirkjunnar breytast verulega. Því finnst mér eðlilegt að spyrja hvort skipulag þjóðkirkjunnar eigi að endurspegla stjórnsýslu og samskiptatækni 21. aldarinnar fremur en að varðveita óbreytt skipulag sem varð til við allt aðrar aðstæður á 13. öld.

Þessi umræða snýst ekki um að gera lítið úr próföstum eða störfum þeirra. Hún snýst um að spyrja hvort hlutverk embættisins og skipan þess eigi að þróast í takt við breytt samfélag.

Er eðlilegt að sami einstaklingur gegni jafnframt embætti sóknarprests?

Sögulega hefur það verið sjálfsagt. Prófasturinn var ekki sérstakur embættismaður heldur sóknarprestur sem biskup fól jafnframt prófastsembættið. Hann gegndi því tveimur hlutverkum samtímis.

En samfélagið hefur breyst.

Prestaköll hafa víða verið sameinuð og sóknir stækkað. Kröfur til stjórnunar, starfsmannamála og skipulags hafa aukist. Um leið hefur þjónusta við söfnuði orðið fjölbreyttari og flóknari.

Hvert gæti þróunin legið?

Ég hallast að því að tímabært sé að endurskoða þessa skipan í heild sinni.

Að mínu mati ætti prófastur fyrst og fremst að gegna leiðtogahlutverki á svæðisvísu í fullu starfi. Hann bæri ábyrgð á handleiðslu presta, starfsmannamálum, stefnumótun, samræmingu kirkjulegs starfs og þróun þjóðkirkjunnar innan prófastsdæmisins. Slík ábyrgð er orðin það umfangsmikil að eðlilegt er að hún sé aðalstarf en ekki aukahlutverk samhliða embætti sóknarprests.

Á sama tíma tel ég að tímabært sé að endurskoða embætti sóknarprests eins og það er skilgreint í dag.

Með sameiningu prestakalla hafa orðið til mun stærri starfseiningar en áður. Innan margra þeirra sinna prestar í meginatriðum sambærilegum verkefnum, óháð því hvort þeir bera titilinn sóknarprestur eða prestur. Í slíkum aðstæðum má velta því fyrir sér hvort leiðtogahlutverk innan prestakalls ætti fremur að vera tímabundið verkefni sem skiptist milli presta, til dæmis til eins árs í senn, en varanlegt embætti.

Ég tel að slík skipan gæti stuðlað að aukinni samábyrgð, jafnræði og samvinnu innan prestakallanna. Hún myndi jafnframt skýra betur muninn á leiðtogahlutverki prófastsins annars vegar og daglegri þjónustu prestanna hins vegar.

Slík þróun myndi jafnframt kalla á endurskoðun launakerfis kirkjunnar. Ef prestar sinna í meginatriðum sambærilegum verkefnum er eðlilegt að velta því fyrir sér hvort launakjör þeirra eigi einnig að endurspegla það. Mismunur í ábyrgð ætti þá fyrst og fremst að ráðast af þeim leiðtogaverkefnum sem viðkomandi sinnir á hverjum tíma.

Reynslan kallar á endurmat

Á þeim sextán árum sem ég sat á kirkjuþingi fékk ég einstakt tækifæri til að kynnast stjórnskipan þjóðkirkjunnar innan frá. Sú reynsla hefur styrkt þá sannfæringu mína að tímabært sé að endurmeta ýmsa þætti stjórnsýslunnar.

Kirkjuþing fer með æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar og þar situr fjölbreyttur hópur fulltrúa með ólíkan bakgrunn, reynslu og hlutverk. Það er styrkleiki kirkjunnar að ólík sjónarmið fái þar að heyrast. Jafnframt getur slíkt skipulag gert ákvarðanatöku flókna og tímafreka.

Sem dæmi má nefna að endurskoðun þjóðkirkjulaga tók rúman áratug. Slík reynsla vekur eðlilega upp spurningar um hvort stjórnskipanin, fundarsköpin og verkferlarnir séu nægilega vel aðlöguð þeim kröfum sem nútímasamfélag gerir til skilvirkrar stjórnsýslu.

Ég tel að tímabært sé að ræða þessi mál af yfirvegun. Ekki vegna þess að kerfið hafi brugðist heldur vegna þess að allar stofnanir sem starfa til langs tíma þurfa reglulega að endurmeta skipulag sitt í ljósi breyttra aðstæðna.

Að mínu mati þarf framtíðarskipulag þjóðkirkjunnar að byggjast á aukinni ábyrgð og sjálfstæði safnaða og prestakalla. Þróunin ætti að leiða til minni miðstýringar og meiri ákvörðunarréttar nær fólkinu sem starfar í kirkjunni og sækir þjónustu hennar.

Þjóðkirkjan hefur í aldanna rás sýnt að hún getur tekið breytingum þegar samfélagið breytist. Spurningin er því ekki hvort breytingar eigi sér stað heldur hvernig við mótum stjórnskipan kirkjunnar þannig að hún þjóni sem best hlutverki sínu á 21. öld.

Lokaorð

Markmið þessara hugleiðinga er ekki að breyta þjóðkirkjunni vegna breytinganna sjálfra heldur að stuðla að því að stjórnskipan hennar verði jafn öflugur grunnur undir starf kirkjunnar á 21. öld og hún var á sínum tíma þegar prófastsdæmin voru stofnuð.

Kirkjan á að varðveita boðskap sinn en jafnframt hafa hugrekki til að endurskoða stjórnskipan sína þegar samfélagið breytist. Stofnanir sem lifa öldum saman verða að hafa kjark til að þróast í takt við samfélagið ef þær eiga áfram að þjóna hlutverki sínu.

Ég legg þessar hugmyndir fram í þeirri von að þær verði upphaf málefnalegrar umræðu um framtíð þjóðkirkjunnar. Slík umræða á ekki að snúast um embætti eða einstaklinga heldur um það hvernig kirkjan getur best sinnt köllun sinni og þjónustu við söfnuði landsins á komandi áratugum.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir