Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir
Dr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir sest við Gestaglugga Kirkjublaðsins.is og ræðir um fyrirkomulag kosninga til kirkjuþings á Norðurlöndunum.
Hún er aðjunkt í hagnýtri guðfræði við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands.
Undanfarið hefur verið rætt á kirkjuþingi hvort taka eigi upp almennar kosningar til kirkjuþings og í biskupskjöri. Auður Thorberg Jónasdóttir kom inn á kosningar til kirkjuþings í nýlegri grein hér í blaðinu en hún átti sæti í nefnd sem skilaði skýrslu[1] um kosti og galla þess að rýmka kjör til kirkjuþings og biskups.
Hér verður ekki tekin afstaða til þess hvort og þá hvernig eigi að rýmka. Hins vegar er þetta tækifæri til að skoða hvernig vali á þingmönnum er háttað hjá nágrannakirkjum okkar og þeim sem við erum í mestu sambandi við, sem sagt hinum þjóðkirkjunum.
Danska kirkjan hefur ekki kirkjuþing sambærilegt hinum kirkjunum og verður því tekin út fyrir sviga hér. Hinar kirkjurnar hafa glímt við hvernig best sé að velja, hverjir eigi að hafa atkvæðisrétt og hvernig best sé að tryggja jafnvægi milli lýðræðislegrar þátttöku og þeirrar sérþekkingar sem kirkjulegt starf krefst. Svörin eru ólík.
Sænska kirkjan hefur almennar kosningar, norska kirkjan er með blandað fyrirkomulag og sú finnska hefur kerfi sem svipar til okkar.
Kirkjuþingskosningar á Norðurlöndum
Í Svíþjóð eru almennar kosningar grunnurinn að skipan kirkjuþings. Allir skráðir meðlimir þjóðkirkjunnar, skírðir og óskírðir, 16 ára og eldri, hafa kosningarétt. Frambjóðendur þurfa að vera skírðir kirkjumeðlimir og orðnir 18 ára. Þingið telur 251 fulltrúa sem eru kosnir í hlutfallskosningum um allt land. Biskupar sitja þingið með málfrelsi og tillögurétt. Sænska leiðin líkist því mest hefðbundnum stjórnmálakosningum og boðið er fram í flokkum, bæði hefðbundnum stjórnmálaflokkum og flokkum sem kirkjufólk hefur myndað. Í síðustu kosningum[2] fengu til dæmis Sósíaldemókratar rúm 28% og eru stærsti flokkurinn á kirkjuþingi með 71 sæti. Næststærstur er POSK sem er óháður stjórnmálaflokkum og vill m.a. draga úr flokkspólitískum áhrifum innan sænsku kirkjunnar. POSK hefur 45 sæti. Alls eru 11 flokkar eða listar (fylkingar) á sænska kirkjuþinginu.
Finnska kirkjan hefur farið aðra leið. Þar eru ekki almennar kosningar til kirkjuþings. Í stað þess eru fulltrúar valdir í nokkrum þrepum. Prestar eru 32, leikmenn 64 og allir tíu biskupar landsins sitja auk þess þingið. Að auki sitja þingið fulltrúi frá stjórnvöldum, herprestur og fulltrúi Sama. Prestar kjósa sína fulltrúa innan biskupsdæma og leikmenn eru kosnir af fulltrúum sem áður hafa verið kjörnir í sóknarnefndir eða önnur ráð á vegum kirkjunnar. Finnska kerfið byggir þannig á fulltrúalýðræði fremur en beinum kosningum. Þar er lögð áhersla á að þeir sem taka ákvörðun um skipan kirkjuþings hafi þegar öðlast umboð í kirkjulegu starfi í grasrótinni.
Norska leiðin er svo sambland af þessu. Alls sitja 117 á þinginu með atkvæðisrétt en að auki hafa þrír fulltrúar kirkjuþings unga fólksins málfrelsi og tillögurétt, leiðtogi samkirkjuráðsins (Mellomkirkelig råd) og einn fulltrúi frá hverjum háskóla sem útskrifar cand. theol.
Af þeim 117 sem hafa atkvæðisrétt eru 77 leikmenn kosnir í beinum kosningum. Kosningarétt hafa 15 ára og eldri í kirkjunni og kjósa í þeirri sókn sem þeir eru skráðir í. Fyrir framboð er aldurstakmark 18 ára. Prestar og aðrir kirkjulegir starfsmenn kjósa svo samtals 22 fulltrúa úr sínum röðum. Biskupar landsins, 12 talsins, hafa einnig atkvæðisrétt, sem og þrír fulltrúar frá Sömum auk leiðtoga samíska kirkjuráðsins, fulltrúa ungs fólks og fulltrúa frá söfnuðum heyrnarlausra.
Hvað beinu kosningarnar varðar er framboð ekki eftir stjórnmálaflokkum heldur hafa kirkjulegir listar orðið til. Að auki er einn listi sem uppstillingarnefnd hvers biskupsdæmis setur saman, tilnefningalisti. Hann á að tryggja breidd og fjölbreytni óháð ákveðnum kirkjupólitískum stefnum. Í kosningum 2023 fékk Opin þjóðkirkja (frjálslyndir) flest atkvæði og 34 sæti. Tilnefningalistinn fékk 26 sæti. Bænalistinn og Djörf kirkja (íhaldssamari) fengu samtals 17 sæti.
Norska leiðin er því blanda af almennum kosningum og fulltrúum starfsstétta eða hópa sem annaðhvort sitja í krafti embættis (biskupar) eða kjósa eða velja úr sínum hópi (prestar og kirkjustarfsmenn, fulltrúar ákveðinna hópa innan kirkjunnar).
Í þessari grein hef ég eingöngu fjallað um kirkjuþing en rétt er að geta þess að hjá öllum þessum kirkjum gildir fulltrúalýðræði þegar kemur að biskupskjöri.
Fjölbreyttar leiðir að lýðræði
Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru um fyrirkomulag nágrannakirknanna.
Allar þessar kirkjur myndu telja sig lýðræðislegar en þær skilgreina lýðræðið með ólíkum hætti.
Sænska þjóðkirkjan leggur mesta áherslu á beina þátttöku allra meðlima. Finnska þjóðkirkjan byggir á margþrepa fulltrúakerfi. Norska kirkjan hefur valið millileið þar sem almennar kosningar eru samofnar faglegri og kirkjulegri fulltrúaskipan.
Þegar við fjöllum um framtíð kirkjuþings er því mikilvægt að gera sér grein fyrir því að engin norræn samstaða er um eina rétta leið. Reynsla nágrannalandanna sýnir þvert á móti að hægt er að byggja upp öflugt kirkjulegt lýðræði með mjög mismunandi hætti.
Hvað þjónar best hagsmunum þjóðkirkjunnar í heild? Ef við viljum breytingar, hverjar ættu þær að vera, hverjir eru kostir þess og gallar? Hér er nokkuð öruggt að við komumst ekki öll að sömu niðurstöðu en vonandi getur þessi samantekt hjálpað umræðunni.
Tilvísanir
[1] Skýrsla um kosti þess og galla að rýmka ákvæði starfsreglna um kostningarrétt við kjör til kirkjuþings og kosningu biskups

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: