Ragnheiður Sverrisdóttir (f. 1954) sest við Gestaglugga Kirkjublaðsins.is. Hún var vígð til djákna 1981 og starfaði bæði í sænsku og íslensku kirkjunni. Ragnheiður lét af störfum 2021. Hún sinnir núna sjálfboðastarfi.

Oft verður kirkjubygging á vegi manns. Flest kannast við að hafa farið að kirkju og ekki komist inn það er að segja þegar ekki er helgihald. Á ferð um landið langar mann oft að skoða þær en það eina sem er í boði er að tylla sér á tá og gægjast inn um glugga. Þetta er engin ný frétt. Oft hefur verið spurt hvort ekki sé hægt að hafa kirkjur opnar svo maður komist inn, í þær og sjái dýrðina. Undirrituð veit um ýmis vandkvæði þessu tengd og hefur enga töfralausn.

Saurbæjarkirkja á Rauðasandi

Skilaboð til þeirra sem freistuðu inngöngu í Saurbæjarkirkju

Það sem fær mig til að skrifa þessa punkta er að ég kom í sumar að Saurbæjarkirkju á Rauðasandi og gekk að henni í forvitni minni án þess að búast við að komast inn. Hins vegar rak mig í rogastans þegar skilti blasti við mér á kirkjuhurðinni. Á því stóð Vinsamlegast reynið ekki að opna dyrnar þar sem kirkjan er lokuð. Auðvitað æsti það upp löngun mína til að ryðjast inn sem ég gerði auðvitað ekki. En hvers vegna var þörf á að setja upp svona skilti? Því hef ég ekki svör við. Hefur verið brotist inn? Hefur eitthvað verið skemmt? Hefur einhverju verið stolið?  Hefur einhver gist í kirkjunni?

Þingeyrakirkja

Á ferð minni um þjóðveg 1 um Húnavatnssýslu hef ég margoft horft í áttina að Þingeyrarkirkju og séð hana upphafna í fjarska. Í hvert sinn hef ég sagt „Ég verð að sjá þessa kirkju.“ Í sumar ákvað ég að nú skyldi verða af því – og svo varð! Það var stórkostlegt að koma í kirkjuna og sjá hversu falleg hún er jafnt utan sem innan.

Altaristafla Þingeyrarkirkju

Þingeyrarkirkja er frá 1877 og er ein af þeim kirkjum sem eru með gamla muni eins og altaristöflu, prédikunarstól og skírnarfont. Listasaga og kirkjusaga í hnotskurn.

En hvernig komst ég inn? Ég fór á netið, fann upplýsingar um að kirkjan væri opin en til öryggis ákvað ég að hringja í númer sem var á heimasíðunni. Það var hjá sóknarnefndarformanninum. Hann sagði að kirkjan væri almennt lokuð en hann væri fús til að sýna mér og manninum mínum kirkjuna og gerði sér ferð sérstaklega fyrir okkur. Við mættum á tilsettum tíma og spjölluðum heilmikið. Í ljós kom að sum sumur hafði kirkjan verið opin en í ár fékkst ekki styrkur til að launa umsjónarfólk. Á netinu eru hins vegar gamlar upplýsingar.

Kirkjan í Húsafelli

Altari Húsafellskirkju

Við vorum í Húsafelli í maí og gengum þar um. Þar er kirkja sem við ákváðum að kanna hvort væri opin – og það var hún! Í henni eru margs konar listaverk eftir Pál Guðmundsson myndhöggvara. Þar áttum við bæna- og kyrrðarstund.

Opnið kirkjur allar.

Fyrirsögn þessa pistils er upphaf sálms 229 í sálmabókinni. Hún skýtur sannarlega skökku við, ekki síst í ljósi skiltisins á Saurbæjarkirkju á Rauðasandi.  Hér er fyrsta erindi sálmsins sem er eftir Gylfa Gröndal.

Opnið kirkjur allar!
Opnið huga minn!
Kristur til mín kallar:
Kom þú hingað inn!
Hér í helgidómi
hans ég návist finn.
Breytir brag og hljómi
blíður lausnarinn.

Viltu deila þessari grein með fleirum?