Dr. Hjalti Hugason prófessor emeritus

Stefán Magnússon kirkjuþingsmaður
Hjalti Hugason og Stefán Magnússon setjast við Gestaglugga Kirkjublaðsins.is og ræða um skipulag kirkjuþjónustunnar og segja meðal annars: „Á nýbyrjuðu kjörtímabili hlýtur að verða eitt af fyrstu verkefnum kirkjuþings að leiða til lykta þær breytingar á vígslubiskupafyrirkomulaginu sem hófust á síðasta kirkjuþingi.“
Með nýjum þjóðkirkjulögum frá 2021 komst á tvískipt ábyrgðarlína í þjóðkirkjunni. Samkvæmt 7. gr. þeirra fer kirkjuþing með æðsta vald í málefnum hennar, þar með talið fjárstjórnarvald, að undanskildum þeim málum sem lúta að kenningu kirkjunnar. Samkvæmt 10. gr. laganna fer biskup aftur á móti með kenningarleg mál.[1] Á síðasta kjörtímabili útfærði kirkjuþing þann hluta línunnar sem undir það heyrir og tekur einkum til stofnunarlegra málefna en þau kallast frá fornu fari ytri mál kirkjunnar. Í umboði þingsins starfar nú sérstök stjórn og framkvæmdastjóri sem tryggja skulu virka og vandaða stjórnsýslu.
Ójafnvægið
Öðru máli gegnir um þann hluta ábyrgðarlínunnar sem heyrir undir biskup og tekur til þess sem kallað hefur verið innri mál en þau fela í sér helgihald, boðun og þjónustu kirkjunnar. Þar er að mestu byggt á fyrirkomulagi frá því fyrir gildistöku nýju þjóðkirkjulaganna.
Helstu ástæður þessa ójafnvægis eru að sitjandi biskupar hafa hingað til reynst áhugalitlir eða jafnvel óviljugir til að vinna með kirkjuþingi að frekari útfærslu á sínum hluta ábyrgðarlínunnar. Kirkjuþing hefur heldur ekki tekið frumkvæði að frekari þróun hans. Það getur stafað af því að þingið hefur skort myndugleika gagnvart biskupi eða hefur keypt sér vinnufrið við að koma á umbótum á sínum armi kirkjuskipanarinnar.
Þar sem skórinn kreppir
Í ábyrgðarlínu innri málefna reikna núgildandi starfsreglur einungis með biskupi Íslands og vígslubiskupum. Í starfsreglum um biskup er ágætlega kveðið á um ábyrgðarsvið hans/hennar út frá hefðbundnum skilningi á biskupsembættinu. Á hinn bóginn er hvergi nefnt samráð eða samstarf sem honum/henni er ætlað að viðhafa nema þegar um fjárhagsáætlun fyrir vígða þjónustu er að ræða (10. gr.).[2] Vera má að starfsreglum um biskupafund sé ætlað að bæta úr þessu en til hans á biskup að kalla vígslubiskupa a.m.k. ársfjórðungslega. Fundinum er þó ætlað mjög takmarkað hlutverk. Hið helsta er að „fjalla um málefni sem starfsreglur, ályktanir og samþykktir kveða á um varðandi trú og kenningu kirkjunnar, helgisiði og helgihald“ og búa slík mál í hendur kirkjuþings. Hér er veikt tekið til orða þar sem ekki er kveðið skýrt á um samþykki eða staðfestingu vígslubiskupanna. Orðalagið bendir frekar til að umsagnar þeirra skuli leitað. Þá er fundinum ætlað að skipuleggja vísitasíur og gera tillögur um breytingar á skipan prestakalla, prófastdæma og sókna.[3] Ekki er því hægt að líta á biskupafundinn sem sjálfstætt kirkjulegt stjórnvald né að verksvið hans sé nægilega vítt til að tryggja stjórnsýslu á þessu sviði.
Auk þessa er staða vígslubiskupanna gagnvart biskupi Íslands veik. Til skamms tíma sagði í starfsreglum um þá að þeir starfi í umboði biskups Íslands, séu honum til aðstoðar og annist þau biskupsverk er biskup feli þeim. Hlutverk þeirra voru því einkum á sviði tilsjónar sem þeir ræktu innan fyrrgreinds umboðs frá biskupi.[4] Vígslubiskupar voru þar með ekki sjálfstæðir í embættum sínum heldur undirsettir samstarfsmenn biskups. Þetta kemur enn skýrar fram í nýjum starfsreglum. Þar segir aðeins um hlutverk þeirra: „Vígslubiskupar vígja presta, djákna, kirkjur og kapellur og framkvæma önnur biskupsverk hvor í sínu umdæmi í forföllum biskups eða þegar biskup felur þeim það hlutverk.“[5]
Nauðsyn á mótvægi
Oft hefur verið bent á að eftirsjá sé að vígslubiskupum í þeirri mynd sem komst á undir lok aldarinnar sem leið. Er sagt að þeir eða a.m.k. annar þeirra gæti veitt biskupi landsins aðhald og jafnvel myndað mótvægi við hann/hana yrði slíkt nauðsynlegt.
Ljóst er að starfsreglurnar í hvorri myndinni sem er gera ekki ráð fyrir þessu. Alls er líka óvíst að vígslubiskupskjör hverju sinni skili þeirri niðurstöðu að ofangreind „dynamík“ komist á milli biskupanna, ekki síst ef sitjandi biskup hlutast með einhverjum hætti til um — formlegum eða óformlegum — hver verður fyrir kjöri.
Núverandi skipan virðist því frekar festa einráðan biskup í sessi en að veita honum/henni aðhald.[6] Er raunar áhorfsmál hvort einráðari biskup en biskup Íslands sé að finna í gjörvallri kristninni!
Myndug og lýðræðisleg stjórn
Stóru, lúthersku kirkjunum á Norðurlöndum er oft skipt í svokallaðar vestur- og austurnorrænar kirkjur. Munurinn er margvíslegur og kemur bæði fram í kirkjuskipan og helgisiðum og á rætur að rekja allt aftur til siðaskiptatímans. Lengst af flokkaðist íslenska þjóðkirkjan ásamt dönsku og norsku kirkjunum til vesturnorrænu kirknanna. Með breyttum helgisiðum upp úr 1980 og þjóðkirkjulögunum 1997 hófst á hinn bóginn breytingaferli sem veldur því að nú líkist hún meira sænsku og finnsku kirkjunum. Það er því eðlilegt að horft sé til þeirra þegar þróa skal þá ábyrgðarlínu kirkjuskipanarinnar sem fellur undir biskup.
Bæði í Svíþjóð og Finnlandi starfa biskupsdæmisráð eða -stjórnir sem kallast því eldforna nafni dómkapítular og má rekja uppruna þeirra langt aftur í kirkjusöguna. Undir þá heyra margs konar innri mál kirkjunnar sem lúta að kenningu, helgisiðum, kirkjuaga og tilsjón. Ráðin starfa undir forsæti biskups og í þeim sitja kjörnir fulltrúar bæði vígðra og óvígðra. Þá situr lögfræðingur í ráðinu eða starfar með því.
Hér á landi mætti hugsa sér fimm manna „biskupsdæmisráð“ undir forsæti biskups þar sem kjörnir fulltrúar yrðu fjórir. Á sama hátt og eðlilegt er að leikmenn séu í meirihluta í framkvæmdastjórn á vegum kirkjuþings er nauðsynlegt að vígðir fulltrúar séu í meirihluta í dómkapítulanum, hvaða nafni sem hann kann að nefnast á íslensku. Hér er því reiknað með þremur vígðum fulltrúum að meðtöldum biskupi og tveimur óvígðum. Með tilkomu slíks „biskupsdæmisráðs“ kæmist á myndug stjórn á sviði innri málefna þjóðkirkjunnar í stað einvalds biskups. Auk þess kæmist á gott innra jafnvægi í kirkjuskipaninni. Slík samkoma hefur auðvitað mun meiri möguleika á að stuðla að festu og vönduðum vinnubrögðum en biskupafundurinn í anda þjóðkirkjulaganna sem gera ráð fyrir að grundvallarreglna jafnræðis og lýðræðis sé gætt í stjórnar- og starfsháttum.[7]
Á nýju kjörtímabili
Á nýbyrjuðu kjörtímabili hlýtur að verða eitt af fyrstu verkefnum kirkjuþings að leiða til lykta þær breytingar á vígslubiskupafyrirkomulaginu sem hófust á síðasta kirkjuþingi. Stjórnsýsla á sviði innri málefna kirkjunnar er órofa hluti af því máli. Þar hlýtur að koma til álita hvort ekki ætti að stofna hér dómkapítula í einhverri mynd þótt auðvitað geti fyrirbærið alls ekki kallast því nafni á nútímaíslensku!
Nú er að vona að samstarf kirkjuþings og biskups verði farsælla en hingað til hefur verið raunin við þróun kirkjuskipanarinnar.
Tilvísanir
[1] Lög um þjóðkirkjuna, sótt 21. ág. 2026.
[2] Starfsreglur um biskup Íslands , sóttar 21. ágúst 2026.
[3] Starfsreglur um biskupafund, sóttar 21. ágúst 2026.
[4] Starfsreglur um vígslubiskupa, sóttar 21. ágúst 2026.
[5] Starfsreglur um vígslubiskupa, sóttar 13. september 2026.
[6] Líta má svo á að einráðir biskupar hafi verið komnir fram um aldamótin 2000. Slíkt fyrirkomulag hæfir aftur á móti illa í kirkju sem hafa skal í heiðri grundvallarreglur jafnræðis og lýðræðis starfsháttum sínum.
[7] Lög um þjóðkirkjuna, sótt 13. september 2026.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: