Rauðamelskirkja er í Staðastaðarprestakalli í Vesturlandsprófastsdæmi.

Kirkjan er í Eyja- og Miklaholtshreppi á Ytra-Rauðamel og jafnan nefnd Rauðamelskirkja. Hún var byggð úr timbri árið 1886 og var vígð 10. október sama ár af séra Eiríki Kúld (1822–1893) prófasti og séra Árna Þórarinssyni (1860–1948) sóknarpresti. Hún er því 140 ára á þessu herrans ári.

Kirkja hefur líklegast staðið á Ytra-Rauðamel frá því 1570. Kirkjustæðið er afar tilkomumikið eins og myndir sýna en kirkjan stendur við suðurbrún Rauðamelshraun með Rauðamelskúlur að baki.

Altaristafla kirkjunnar er frá 18. öld og sennilega dönsk.

Kaleikur kirkjunnar og patína eru úr silfri og frá 19. öld. Altarisstjakar eru tveir og úr látúni frá 19. öld.

Skreyttur ljósahjálmur kirkjunnar er úr látúni og smíðaður af Alexander Einbjörnssyni (1922–2015) frá Borgarholti auk tveggja veggljósa.

Kirkjuklukkur eru tvær. Önnur minni sem er frá 1703 og hin stærri frá 19. öld.

Kirkjan tekur um 30 manns í sæti.

Horft frá kirkjudyrum til altaris

Horft frá altari og fram kirkju

Bekkir kirkjunnar eru bogadregnir – rafmagnsorgel

Altaristaflan er dönsk frá 18. öld

Söngtaflan skýr og einföld

Altarisbrún er útklippt og á henni kappmellaður kross, bikarar og einfalt skraut – altarisklæði er rautt flauel með gullnum krossi

Kaleikur er danskur og sömuleiðis patínan – frá 19. öld

Horft til afþiljaðs setulofts – hvelfing reitaskipt; ljósahjálmur úr látúni

Prédikunarstóll er stílhreinn og einfaldur

Grafskrift yfir Jón Jónsson (1805–1837) bónda á Rauðamel

Líkan af Rauðamelskirkju sem Daníel Brandur Sigurgeirsson (f. 1973) gerði en hann fermdist í kirkjunni – bréfaklemman gefur hugmynd um stærð líkansins

Rauðamelskirkja er einstaklega snoturt guðshús á fallegum stað

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir