Gilsbakkakirkja er í Borgarfjarðarprestakalli í Vesturlandsprófastsdæmi.

Kirknaskrá Páls biskups Jónssonar frá því um 1200 getur um kirkju á Gilsbakka.

Gilsbakkakirkja var reist 1908 og vígð fyrsta sunnudag í aðventu sama ár. Höfundur kirkjunnar var Ingólfur Guðmundsson (1856-1935) bóndi á Breiðabólsstöðum í Reykholtsdal. Töluverðar breytingar voru gerðar á kirkjunni 1953-1954 og höfundur þeirra var Björn Kristjánsson (1920-2007), smiður og kennari frá Steinum í Stafholtstungum. Kirkjan var upphaflega járnklædd timburkirkja en 1953 var steypt utan um hana og reist steinsteypt forkirkja með turni. Þá var gluggum breytt og í kirkjuna komu oddbogalagðir gluggar. Kirkjan tekur um fimmtíu manns í sæti.

Gilsbakkakirkja var endurvígð 4. júlí 1954 og það gerði séra Ásmundur Guðmundsson (1888–1969), þáverandi biskup Íslands.

Altaristafla kirkjunnar er eftir Ásgeir Bjarnþórsson (1899-1987) listmálara og sýnir brúðkaupið í Kana. Taflan kom í kirkjuna 1966 en áður var þar altaristafla eftir Eyjólf Eyfells listmálara.

Altarisbrún er útklippt og á henni kappmellaður kross, bikarar og einfalt skraut – altarisklæði er rautt flauel með gullnum krossi – frá 1944 og Kvenfélag Hvítársíðu gaf.

Skírnarfontur er hannaður af Sigrúnu Jónsdóttur (1920–2001) kirkjulistakonu en Páll Eyjólfsson smíðaði hann. Kirkjan á einnig batíkhökul eftir Sigrúnu.

Gilsbakkakirkja er búin ágætum messuklæðum og kirkjugripum.

Á vesturgafli beggja vegna við kirkjudyr hanga perlukransar úr vír- og plastperlum. Kransar af þessu tagi voru nokkuð algengir í kirkjum hér á landi á fyrri hluta 20. aldar. Þeir munu vera ættaðir úr Suður-Evrópu.

Í forkirkju er geymdur rúnalegsteinn Gils Jónssonar Gilssonar frá Kalmanstungu og er hann talinn vera frá fyrri hluta 15. aldar. Á hann er letrað með rúnum: „Hér hvílir Gils Jónsson Gilssonar.“

Kirkjuklukkur eru tvær, sú minni frá 1742 en ekki er vitað um aldur hinnar stærri. Hér má heyra hljóm þeirra á vefnum Kirkjuklukkur Íslands.

Horft inn að altari

Altarisklæði og altarisbrún

Altaristaflan er eftir Ásgeir Bjarnþórsson listmálara

Horft frá altari og að forkirkjudyrum

Orgel Gilsbakkakirkju er gamalt og virðulegt

Guðbrandsbiblía Gilsbakkakirkju er geymd á óvenjulegum stað

Skírnarfonturinn er stílhreinn og svipsterkur í einfaldleika sínum

Perlukrans úr vír- og plastperlum á kirkjuvegg

Prédikunarstóllinn

Legsteinn frá 15. öld er geymdur í forkirkju

Gilsbakkakirkja er traust guðshús og vakir yfir sveitinni

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir