Höskuldsstaðakirkja er í Húnavatnsprestakalli, Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi.
Hún var steypt upp á árunum 1958–1963 og sá er hafði yfirumsjón með smíði hennar var Einar Adolv Evensen (1926–2008) byggingameistari á Blönduósi. Kirkjuna teiknaði þýskur arkitekt hjá embætti Húsameistara ríkisins, Jens Peter Matull. Tvær systurkirkjur hennar eru Reykhólakirkja og Lundarkirkja í Borgarfirði.
Höskuldsstaðakirkja var vígð 31. mars 1963 af Sigurbirni Einarssyni (1911–2008) biskupi.
Kirkja hefur staðið á Höskuldsstöðum frá 11. öld eftir því sem sagnir herma.
Höskuldsstaðakirkja á ýmsa merka gripi eins og íslenskan silfurkaleik og patínu frá 1804.
Altaristaflan er eftirmynd af verki danska listmálarans Carl H. Bloch (1834–1890) og gerð af Þórarni B. Þorlákssyni (1867–1924) listmálara. Taflan heitir Cristus Consolator, (Kristur huggar) og frumtaflan er frá 1875 en eftirmyndin kom í Höskuldsstaðakirkju 1907. Myndefni þessarar töflu var mjög vinsælt eins og fjöldi eftirmynda af henni sýnir en þær er að finna í Grafarkirkju í Suðurprófastsdæmi, Garpsdalskirkju í Vestfjarðaprófastsdæmi, Flateyrarkirkju í Vestfjarðaprófastsdæmi og eru þær allar eftir Brynjólf Þórðarson (1896–1938) listmálara. Þá er eftirmynd hennar í hinni eldri Reykholtskirkju í Vesturlandsprófastsdæmi, og hún er gerð af danska listmálaranum Anker Lund (1840–1922). Eftirmyndir þessa verks er einnig að finna í Fríkirkjunni í Reykjavík, Grenjaðarstaðakirkju og Grenivíkurkirkju í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi en ekki er vitað hverjir gerðu þær. Frummyndin er í
Hörupskirkju í Hörup í Svíþjóð.Tvær eru klukkur Höskuldsstaðakirkju. Önnur er frá 1733 og hin frá 1737.
Í kirkjugarði Höskuldsstaðakirkju er að finna tveggja metra langan stuðlabergsdrang með rúnaáletrun frá 14. öld.

Horft inn að altari

Horft frá altari og fram kirkju

Horft frá kórlofti og niður

Altaristafla – eftirmynd Þórarins B. Þorlákssonar af dönsku listaverki

Horft yfir bekki að altari og eins og sjá má er kirkjan teppalögð

Prédikunarstóllinn

Gömul sálmatafla

Legsteinn séra Stefáns Ólafssonar prests á Höskuldsstöðum 1722–1748 er við turnstigann

Grafskriftin á legsteini séra Stefáns Ólafssonar

Vígsla Höskuldsstaðakirkju 1963. Frá vinstri: Pétur Þ. Ingjaldsson (1911–1996), Þorsteinn B. Gíslason (1897–1980) og biskupinn Sigurbjörn Einarsson (1911–2008) með mítur á höfði sem var fremur sjaldgæft. (Skjáskot úr Húnavöku, 54. árg. 2014, bls. 106)

Höskuldsstaðakirkja er reisulegt guðshús og sveitarprýði

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: