Hólaneskirkja er á Skagaströnd í Húnavatnsprestakalli í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi.

Kirkjan var vígð 20. október 1991 af sr. Ólafi Skúlasyni (1929–2008) biskupi og er önnur kirkjan sem reist er á Hólanesi en sú fyrri var frá 1927 og tekin ofan 1991. Gamla kirkjan hafði verið flutt frá Spákonufelli og endurbyggð á Hólanesi, steypt.  Allt frá 14. öld stóð kirkja á Spákonufelli.

Hólaneskirkja býr að nokkrum gömlum kirkjumunum úr gömlu kirkjunni á Spákonufelli og má þar nefna kaleik og patínu sem og þríarma altarisstjaka. Árið 1951 var Hólaneskirkja talin vera með „vönduðustu og fegurstu kirkjum landsins“.

Á vesturhlið kirkjuskips yfir gömlu altari er altaristafla sem gefin var kirkjunni á Spákonufelli 1838 af Peter Duus (1795–1868), höndlunarfaktor á Skagaströnd. Taflan er dönsk. Við altaristöfluna er skírnarsár úr gömlu kirkjunni og tvær söngtöflur.

Arkitektarnir Ormar Þór Guðmundsson (1935–2024) og Örnólfur Hall (1936–2020) teiknuðu kirkjuna. Innankirkjuhönnun var í höndum Gunnars Guðmundar Einarssonar (1929–2010) og byggingarstjóri var Helgi Gunnarsson (f. 1952) á Skagaströnd.

Kirkjan rúmar á annað hundrað manns, 150 í kirkjuskipi og um 50 á kórsvölum.

Hólaneskirkja er steinsteypt hús og form hennar nokkuð hefðbundið. Gengið er til hliðar að sunnanverðu inn í forkirkju en kirkjuturn með klukkum er á vinstri hönd og síðan kirkjuskip ásamt kór á hægri hönd. Kirkjuturn er með gluggum sem minna á biðjandi hendur. Kirkjan snýr austur-vestur.

Málaður kórgluggi, þrístrendur, er eftir Leif Breiðfjörð (f. 1945) og kom í kirkjuna fyrir vígslu hennar.

Skírnarsár og altari eru úr marmara sem Gunnar Guðmundur Einarsson hannaði en fyrirtækið S. Helgason steinsmiðja vann.

Orgel kirkjunnar var vígt við guðsþjónustu á aðfangadag 2018 og er af gerðinni Ahlborn Harmonium III, 57 raddir, þýsk-ítalskt. Kirkjan á og flygil.

Kirkjan á ræðustand, skorinn út af Erlendi Finnboga Magnússyni (f. 1941) útskurðarmeistara.

Flísar á gólfum eru kínverskar.

Horft inn kirkju frá forkirkju

Horft frá altari út kirkju

Altaristaflan er málaður gluggi eftir Leif Breiðfjörð – efri hluti

Málaði glugginn í kór – altari úr marmara og sömuleiðis skírnarfonturinn

Skírnarfonturinn úr marmara og með kúptri skírnarskál

Orgel kirkjunnar er norðanmegin í kirkjunni, nær kór

Fögur hurð fyrir dyrum forkirkju inn í kirkjuskip

Kirkjan er stílhrein

Gamla altaristaflan frá 1838, söngtöflur tvær, skírnarfontur – á altari þríarma kertastjakar

Altaristaflan gamla segir frá Getsemanestund Jesú

Söngtafla – önnur af tveimur

Hér sjást báðar kirkjurnar, sú eldri og hin nýja – skjáskot: Kirkjublaðið.is – Dagblaðið Vísir – DV, 4. nóvember 1991

Hólaneskirkja er nútímaleg kirkja í útliti  og mikil umhverfisprýði

Feisbókarsíða Hólaneskirkju

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir