Helgafellskirkja er í Stykkishólmsprestakalli í Vesturlandsprófastsdæmi.
Kirkja hefur staðið frá fornu fari á Helgafelli.
Á Helgafelli var Ágústínaklaustur frá 1184–1551 og var auðugt mjög. Hið merka handrit Skarðsbók sem geymir meðal annars Jónsbók er talið hafa verið ritað á Helgafelli. Einnig Skarðsbók postulasagna sem er með hinum glæsilegustu miðaldahandritum.
Núverandi kirkja á Helgafelli var byggð 1903 af Sveini Jónssyni (1847–1909), snikkara frá Djúpadal. Kirkjan var vígð á nýársdag 1904.
Á altari kirkjunnar eru tveir vandaðir koparstjakar frá 1693 með áletrunum.
Altaristafla kirkjunnar er eftir danska listakonu, Andreu Birgittu Taftrup (1825–1914). Á sönglofti er gömul altaristafla með kvöldmáltíðarstefinu frá 1701.
Prédikunarstóllinn er sjöstrendur og með myndum af Kristi og postulunum. Stólsins er fyrst getið í vísitasíu Jóns Vídalíns (1666–1720) biskups árið 1701.
Kirkjuna prýðir veglegur ljósahjálmur frá 1756.
Skírnarfonturinn er mjög útskorinn og er úr ljósri eik. Sveinn Ólafsson (1925–2010) myndskeri skar hann út.
Allstór minningarskjöldur úr kopar er fyrir ofan innri kirkjudyr og er frá því á 18. öld en hann var minningargjöf um danskan kaupmann, Nicolai Hoffgaard (f. 1723), sem lést um borð í skipi sínu í Stykkishólmshöfn 1763.
Kirkjuklukkur Helgafellskirkju eru tvær auk bjöllu á sönglofti frá 1547.
Kirkjuklukkur Helgafellskirkju – af vefnum: Kirkjuklukkur Íslands.

Horft inn kirkju frá forkirkju

Horft frá altari fram kirkju

Prédikunarstóll – á spjöldum hans sem sjást eru myndir af Jóhannesi postula og Kristi

Altaristafla – Jesús á bæn – hún er eftir danska listakonu að nafni Andrea Birgitta Taftrup (1825–1914)

Altari – koparstjakarnir frá 1693 eru mikil prýði

Skírnarfontur er fallega útskorinn

Sálmatafla

Ljósahjálmurinn er veglegur og er frá 1756 – efst á hjálminum er mynd af Maríu guðsmóður sem heldur á Jesúbarninu

Guðbrandsbiblía – búið vel að henni

Altarisstjakar úr kopar með áletrun – frá árinu 1693

Minningaskjöldur yfir forkirkjudyrum úr kopar til minningar um danskan kaupmann sem lést í skipi sínu í Stykkishólmshöfn árið 1763 – grafskriftin er á dönsku og á skildinum eru útgrafnar englamyndir

Forkirkja

Minnisvarði nálægt kirkjudyrum

Helgafellskirkja er myndarlegt guðshús og vel við haldið

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: