Glúmur Gylfason organisti
Það er organistinn Glúmur Gylfason (f. 1944) sem sest við Gestagluggann og skrifar grein um málefni sem honum er hugleikið. Glúmur hóf tónlistarnám ungur að árum og var í einkatímum 1955–1959. Hann nam við Tónlistarskólann í Reykjavík 1959–1962 og Tónskóla þjóðkirkjunnar, kirkjutónlistarfræði og orgelleik 1971–1977, Tónlistarskóla Árnessýslu og lauk þaðan klassískri hljómfræði og nam kontrapunkt og byrjunaratriði tónsmíða 1974–1977. Þá hlaut Glúmur styrk frá ítalska utanríkisráðuneytinu til orgelnáms í Róm 1986–1987. Glúmur var organisti við Selfosskirkju frá 1972–2006 og fékkst jafnframt við tónlistarkennslu. Hann var í fyrstu stjórn Ísleifsreglunnar 1981 og vann að útgáfu sígilds kirkjusöngs, „gregorssöngs“. Þá hefur Glúmur stundað rannsóknir á íslenskum tíðasöng um áratugaskeið og stóð ásamt öðrum að útgáfu bókarinnar Íslenskur tíðasöngur allra tíða: kirkjudagar & postula. Glúmur var settur söngmálastjóri þjóðkirkjunnar 1989.
Glúmur skrifar:
Þótt störf karla hafi breyst með vél- og tölvuvæðingu síðustu aldar þá breyttust störf og staða kvenna miklu meira.
Lengi áttu ungir karlar um það tvennt að velja: moka skít utandyra eða læra til innivinnu og þá einkum til prests, en konur að giftast eða verða innivinnandi hjú.
Á þeirri tíð varð kommúnisminn til og söng með laginu Eigi stjörnum ofar:
Enga presta poka
pennum skuluð loka
allir út að mokaán þess doka við.
Árið 1934 varð til Stjórn hinna vinnandi stétta, þ.e. þeirra sem unnu með handaflinu. Þá kom út tímaritið Vinnan og verkalýðurinn sem fjallaði um hlutverk og réttindi vinnandi stétta á Íslandi. Verk og vinna voru þá aðeins unnin með handafli.
Af því leiddi að veikara kynið hefði hálf laun karla, þ.e. þær sem unnu úti.
Í þúsund ár höfðu karlar séð um útiverk en konur innanhússverk.
En með tilkomu þéttbýlis á mölinni fóru konur t.d. að vinna við saltfiskþurrkun og annað utandyra. Varð þá til hugtakið að konur ynnu úti. Og nú er svo komið að konur vinna úti þótt innandyra sé og það sem enginn sá fyrir um miðja tuttugustu öld: að kona með hálft karlmannsafl fengi sömu laun og fílefldur karl, t.d. sem prestur. Þar með hvarf úr íslenskri tungu orðið kvenmannskaup og syrgir það enginn. Og þó?
Inni í orðinu „kvenmannskaup“ kemur fyrir orð sem sumir (sumar?) kvenprestar vilja ekki nota, þ.e. orðið maður. Þegar þetta orð kemur fyrir í Handbók kirkjunnar þá breyta þær því: Úr:
Játum syndir vorar og lifum í kærleika og sátt við alla menn.
Í:
Játum syndir vorar og lifum í kærleika og sátt við allar manneskjur.
Samkvæmt Orðabókinni er maður bæði kyn tvífætts og tvíhents spendýrs sem talar, býr til verkfæri og vinnur með þau og á við um tegundina Homo sapiens.
Þegar hjónaband var gert kirkjulegt með Kristnirétti 1275 hét það samningur á milli tveggja manna.
Í fornsögunum eru ótal dæmi þess að konur séu kallaðar menn. Eitt dæmi:
Í Þorgils sögu skarða segir að hann hafi átt bústýru, Þuríði Kolgrímsdóttur, sem var sæmdarmaður.
Í bókinni Sæmdarmenn, t.d. bls. 43–44, andmælir Sólborg Una Pálsdóttir þýskum fræðimanni sem telur íslenska samfélagið sambærilegt við evrópsk, sem byggja á einhliða ættrakningu í karllegg (sbr. ættarnöfn): „Í samfélagi með tvíhliða ættrakningu eins og tíðkaðist á Íslandi“ gegni öðru máli.
Þetta er sagt hér vegna þeirra sem vitna í þýsku til stuðnings herförinni gegn orðinu maður og fleiri karlkynsorðum í íslenskri tungu.
Þjóðverjar með sín ættarnöfn sem fylgja karlinum hafa nú myndað kvenmyndir allra karlkynsstarfsheita: kanslarinna, prófessorinna, doktorinna og e.t.v. pastorinna og biskupinna? Ekki hlýddum við þeirri fyrirskipun Friðriks 2. (d. 1588) að taka upp ættarnöfn en hann var þýskrar ættar sjálfur.
Þó að manneskjur sem titla sig séra vilji ekki ganga undir heitinu maður, þá mun undirritaður samt „játa syndir sínar og lifa í kærleika og sátt við alla menn“.
Uppfært 16. ágúst 2026 (ný fyrirsögn að beiðni höfundar)

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: