Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Á leið sinni sá Jesús mann sem var blindur frá fæðingu. Lærisveinar hans spurðu hann: „Rabbí, hvort hefur þessi maður syndgað eða foreldrar hans fyrst hann fæddist blindur?“ Jesús svaraði: „Hvorki er það af því að hann hafi syndgað eða foreldrar hans heldur til þess að verk Guðs verði opinber á honum. Okkur ber að vinna verk þess er sendi mig meðan dagur er. Það kemur nótt þegar enginn getur unnið. Meðan ég er í heiminum er ég ljós heimsins.“ Að svo mæltu skyrpti hann á jörðina, gerði leðju úr munnvatninu, strauk leðju á augu hans og sagði við hann: „Farðu og þvoðu þér í lauginni Sílóam.“ (Sílóam þýðir sendur.) Hann fór og þvoði sér og kom aftur sjáandi. Nágrannar hans og þeir sem höfðu áður séð hann ölmusumann sögðu þá: „Er þetta ekki sá er setið hefur og beðið sér ölmusu?“ Sumir sögðu: „Sá er maðurinn,“ en aðrir sögðu: „Nei, en líkur er hann honum.“ Sjálfur sagði hann: „Ég er sá.“ Þá sögðu þeir við hann: „Hvernig fékkst þú sjónina?“ Hann svaraði: „Maður að nafni Jesús gerði leðju og smurði á augu mín og sagði mér að fara til Sílóam og þvo mér. Ég fór og fékk sjónina þegar ég var búinn að þvo mér.“

Jóhannesarguðspjall 9. 1-11

Hundrað orða hugleiðing

Hann gat ekki ímyndað sér hvernig það væri fyrir blindan mann frá fæðingu að sjá skyndilega allt í kringum sig. Það hlyti að vera nánast eins og að færast inn í aðra vídd lífsins; kannski var trúin eins og forstofa slíkrar víddar þar sem fólk tæki af sér jarðneskar flíkur og stappaði af sér óhreinindum á mottunni. Meistarinn frá Nasaret virtist ætla að hafa skamma viðdvöl í þessari hversdagslegu vídd mannsins en meðan hann staldraði við skini vinnuljós kærleiksverkanna og nafnlaus blindfæddur ölmusumaður varð farvegur þess í listrænum trúargjörningi meistarans. Fyrrum blindingi, nú sjáandi, stundi hálfsturlaður: Maður að nafni Jesús.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir