Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Þetta var dagurinn sem hún unni mest. Góðu minningarnar um hennar nánustu voru bjartar og ilmsterkar. Það minnsta sem hún gat gert var að kveikja á kertum í kirkjunni sinni í virðingarskyni við þá. Hún var þakklát gömlu kirkjunni sinni fyrir að halda þennan dag í heiðri og sat á kirkjubekknum umvafin hlýjum minningum. Fólkið hennar sem farið var á undan henni yfir móðuna miklu var í traustum höndum skaparans. Í hjarta sínu vissi hún að það hefði gengið inn í upprisuljós meistarans frá Nasaret sem sagði að hann væri upprisan og lífið. Annað ljós þurfti hún ekki í lífinu.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: