Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Þegar ungi maðurinn snaraði sér út úr fjármálamusterinu sá hann meistarann frá Nasaret út undan sér bleikfölan og úrvinda af þreytu. Hann hafði greinilega notað síðustu kraftana til að hjálpa öðrum. Ungi maðurinn var sammála meistaranum um að aukastyrkur þyrfti að koma inn á vettvang dagsins úr miðlæga stjórnunargeiranum. Það þyrfti hins vegar að fara rétta leið hjá bráðaaðgerðahópnum á mannauðssviðinu. Alls staðar var kallað á hjálparhraðar hendur og hjartaprúða menn til að draga úr eymd og þjáningu sem virtist engan endi ætla að taka. Sjálfur var ungi maðurinn reiðubúinn til að leggja hönd á plóg eftir einkatímann í líkamsræktinni.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: