Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Hún sagðist ekki sjá lengur fram úr öllu því sem biði hennar á vettvangi dagsins. Gæti hún fengið hvíldarinnlögn hjá meistaranum frá Nasaret? Svarið var að hún gæti sennilega sótt um hvíldarinnlögn en skynsamlegast væri að taka beint á móti hvíldartilboði meistarans. Hún velti vöngum yfir því hvað fælist í þeirri hvíld. Og fékk svar að bragði um að þá kæmist hún að því hver hún sjálf væri. Þyrfti ekki að sanna sig í erli dagsins og hógværðin yrði leiðarljós hennar. Hversdagsleg angist hennar yrði sett í miskunnsamar hendur meistarans og sömuleiðis nagandi óttinn við lífið sjálft og rafrænan dauðann.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: