Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Hann leit á sig sem fjárfesti í andlegum efnum. Þegar meistarinn frá Nasaret varð á vegi hans spurði hann umsvifalaust á hvaða kjörum eilífa lífið fengist. Alla tíð hafði hann ástundað sómakært trúarlegt líferni og sinnt skyldum sínum við samfélagið. Samt fannst honum vera einhver holur hljómur í lífi hans og hversdagslegri trúariðkun. Þessi lífsstíll skilaði honum ekki inn í veislusali almættisins. Eignaframsal til fátækra var fráleitt enda átti hið opinbera að sjá um þá. Hann kvaddi meistarann daufur í dálkinn með verðlaus sjálfsréttlætingarbréf og missti fyrir vikið af vonarorðum hans um að almættinu væri ekkert um megn í eilífðarmálunum.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: