Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Hann gat ekki elskað óvini sína og það truflaði hann sem stjórnmálamann. Já, hvernig í ósköpunum var það hægt? Svo þung orð höfðu óvildarmenn hans látið falla um hann og grafið vægðarlaust undan honum sem manneskju með ófrægingarherferðum og stundum veist lævíslega að fjölskyldu hans. Þó að hann liti á sig sem kristinn mann og styddist oftast við heilræði meistarans frá Nasaret þá var þetta honum gersamlega ofviða. Hann vildi gera samfélaginu meira gagn sem ófullkominn maður en fullkominn og bað almannatengla sína að taka saman minnisblað um tímabundið undanhald frá stefnu meistarans en hafa samt gluggann opinn til öryggis.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: