Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Hann sagðist ekki vera neinn bókstafsmaður í trúmálum og heldur ekki tækifærissinni þótt oft glannalegur væri. Eitt var honum algjörlega ljóst og það var að upprisan frá dauðum væri kjarni trúarinnar en honum fannst eins og margir væru búnir að gleyma því. Hann vissi ekki betur en að upprisa meistarans frá Nasaret frá dauðum hefði stimplað kristindóminn inn í heiminn „forever“ og baðst afsökunar á enskuslettunni. Væri ekki hver sunnudagur upprisudagur ásamt öllum öðrum dögum og hann tryði orðum meistarans og væri því sestur í heiðursstúkuna með þeim sem myndu aldrei að eilífu deyja. Þess vegna þyrði hann að lifa.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: