Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Hann var einn þeirra sem töluðu ekki um annað en sjálfan sig og taldi sig alltaf vera númer eitt alls staðar svo að flestum ofbauð sjálfhælnin. Lúther gamli sagði manninn vera kengboginn inn í sjálfan sig og gæti ekki rétt úr sér með skynsemi sinni vegna þess að hún væri myrkvuð heimatilbúinni vesöld sjálfhverfunnar. Meðvirkt vinafólk hans sagði honum ekki að sjálfshrifningin og rembingurinn færi honum illa. Dag nokkurn fannst honum einhver kalla til sín og sem græðandi hönd stryki honum. Hann gat skyndilega rétt úr þjakandi sjálfhverfu sinni, hlustað á aðra, séð annað fólk og lofað almættið fyrir dýrðarverkið.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: