Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Við hvað á ég að líkja þessari kynslóð? Lík er hún börnum sem á torgum sitja og kallast á: Vér lékum fyrir yður á flautu og ekki vilduð þér dansa. Vér sungum yður sorgarljóð og ekki vilduð þér syrgja. Jóhannes kom, át hvorki né drakk, og menn segja: Hann hefur illan anda. Mannssonurinn kom, át og drakk, og menn segja: Hann er mathákur og vínsvelgur, vinur tollheimtumanna og bersyndugra! En spekin sannast af verkum sínum.“ Þá tók Jesús að ávíta borgirnar, þar sem hann hafði gert flest kraftaverk sín, fyrir að hafa ekki tekið sinnaskiptum. „Vei þér, Korasín! Vei þér, Betsaída! Ef gerst hefðu í Týrus og Sídon kraftaverkin, sem gerðust í ykkur, hefðu þær löngu iðrast í sekk og ösku. En ég segi ykkur: Týrus og Sídon mun bærilegra á dómsdegi en ykkur. Og þú, Kapernaúm. Verður þú hafin til himins? Nei, til heljar mun þér steypt verða. Ef gerst hefðu í Sódómu kraftaverkin, sem gerðust í þér, þá stæði hún enn í dag. En ég segi yður: Landi Sódómu mun bærilegra á dómsdegi en þér.“

Matteusarguðspjall 11.16-24

Hundrað orða hugleiðing

Meistarinn frá Nasaret renndi yfir kommentakerfið með þreytusvip. Þarna sagði einhver að Jóhannes frændi hans væri geðveikur. Annar kvað sjálfan meistarann vera átvagl og fyllibyttu sem umgengist svikahrappa og gjálífisfólk. Hann hugsaði með sér að sannleikurinn kæmi nú í ljós þrátt fyrir tryllingslegar athugasemdir í kommentakerfinu. Gat svo ekki annað en hugsað þeim þegjandi þörfina sem höfðu séð flest kraftaverkin og hlustað á boðskap hans en skeyttu engu um hvorugt. Sumum yrði steypt til heljar, engin miskunn þar. Mannlega taugin strekktist og sú guðlega skaut neistum. Hitamet Sódómu gömlu snarféll. Vonandi skánaði sláttur mannshjartans – eða var meistarinn skák og mát?

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir