Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Hún opnaði bjórflöskuna og var sem laufblað í vindi. Síðan kveikti hún á útvarpinu og kom inn í miðja sunnudagsmessu og guðspjallið ómaði. Hún nauðþekkti þessa nafnlausu vinkonu sína sem gaf meistaranum frá Nasaret hjarta sitt til að láta í ljós kærleika sinn til hans. Táraflaumur eins og kröftug á í leysingum og hár hennar sem handklæði. Jarðneskir kossar hennar og ilmefni fyllt elsku. Hún blés grábláum sígarettureyknum frá sér og hugsaði til drembilátra nágrannanna sem sögðu ólifnað hennar og vafasama næturgesti varpa skugga á menningarsvip hverfisins. En meistarinn hafði samt oft sagt við hana að trúin hefði frelsað hana.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: