Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Á ferð þeirra kom Jesús í þorp nokkurt og kona að nafni Marta bauð honum heim. Hún átti systur er María hét og settist hún við fætur Drottins og hlýddi á orð hans. En Marta lagði allan hug á að veita sem mesta þjónustu. Og hún gekk til hans og mælti: „Drottinn, hirðir þú eigi um það að systir mín lætur mig eina um að þjóna gestum? Seg þú henni að hjálpa mér.“ En Drottinn svaraði henni: „Marta, Marta, þú ert áhyggjufull og mæðist í mörgu en eitt er nauðsynlegt. María valdi góða hlutskiptið. Það verður ekki frá henni tekið.“

Lúkasarguðspjall 10. 38-34

Hundrað orða hugleiðing

Hún fagnaði meistaranum frá Nasareti og hlakkaði til þess að hlusta á hann. Allt annað gat beðið. Systir hennar færi örugglega í sinn tryllta eldhúsham af mikilli þjónustulund og töfraði fram dýrindis kræsingar. Þannig var hún, óstöðvandi. Þegar hún kom inn með fullt fat af feitu rófubeini og ilmandi hrísgrjónum skaut hún því sisona að meistaranum með orðum og svip að hjálparhönd systurinnar væri nú vel þegin enda hnéð farið að gefa sig. Henni fannst meistarinn skilja húsmóðuráhyggjur sínar en hann áréttaði mjúklega að betra væri að hlusta á sig en týnast í áhyggjum. Meistarinn sagðist skyldi panta næst pizzu.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir