Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Hann hafði aldrei verið fyllilega sáttur við þessa daufu trú sína sem rökvís efinn nærði í ástarörmum skynseminnar. En hann tók undir í hjarta sínu með þeim sem hrópuðu í örvæntingu sinni að þeir tryðu þegar vakin var von um að sigrast yrði á einhverjum skelfilegum sjúkdómi hjá þeirra nánustu. Það var líka rökrétt að leita þráðlausra lausna við að reita illgresið úr trúarbeðnum svo trúin fengi nú að blómstra. Vantrúin var eins og boðflenna og hann bað daglega í lyftunni um að hún snáfaði burt og vonaði innilega að meistarinn frá Nasaret hæfi störf í sálargarði hans samkvæmt kærleikstaxta.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: