Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Jesús sagði: „Hvað virðist ykkur? Maður nokkur átti tvo syni. Hann gekk til hins fyrra og sagði: Sonur minn, far þú og vinn í dag í víngarði mínum. Hann svaraði: Það vil ég ekki. En eftir á sá hann sig um hönd og fór. Þá gekk hann til hins síðara og mælti á sömu leið. Hann svaraði: Já, herra, en fór hvergi. Hvor þeirra gerði vilja föðurins?“ Þeir svara: „Sá fyrri.“ Þá mælti Jesús: „Sannlega segi ég ykkur: Tollheimtumenn og skækjur verða á undan ykkur inn í Guðs ríki. Því að Jóhannes kom til ykkar og vísaði ykkur á réttan veg og þið trúðuð honum ekki en tollheimtumenn og skækjur trúðu honum. Það sáuð þið en tókuð samt ekki sinnaskiptum og trúðuð honum.“

Matteusarguðspjall 21. 28-32

Hundrað orða hugleiðing

Hann kannaðist við margt sem hann hafði ekki viljað gera og skaust kænlega undan því með fáguðum hætti. Oftast sagðist hann vera á fundi og það tóku allir gilt. En iðulega sá hann sig þó um hönd og dróst af stað. Svo voru hin sem sögðust ætla að ganga í verkið en fóru hvergi. Safnaðarstörfin voru ekki öll jafnskemmtileg en alls staðar var þörf á kærleiksfullum hjálparhöndum. Hann vildi engum bregðast en ístöðuleysi hans var honum fjötur um fót. Fannst reyndar frekar súrt að alls konar lið, eins og hann orðaði það, fengi sæti á fremsta bekk en ekki hann.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir