Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Þeir spurðu hann þá: „Hvaða tákn getur þú sýnt okkur svo að við trúum? Hvað afrekar þú? Feður okkar átu manna í eyðimörkinni eins og ritað er: Brauð af himni gaf hann þeim að eta.“ Jesús sagði við þá: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Móse gaf yður ekki brauðið af himni heldur gefur faðir minn yður hið sanna brauð af himni. Brauð Guðs er sá sem stígur niður af himni og gefur heiminum líf.“ Þá sögðu þeir við hann: „Drottinn, gef okkur ætíð þetta brauð.“ Jesús sagði þeim: „Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra sem til mín kemur og þann aldrei þyrsta sem á mig trúir.

Jóhannesarguðspjall 6. 30-35

Hundrað orða hugleiðing

Andleg málefni höfðuðu alltaf sterkt til hans enda næmur maður. Á unglingsárunum var meistarinn frá Nasaret átrúnaðargoðið og uppfyllti allar hugmyndir hans um nýtt samfélag þar sem friður og kærleikur væru í hávegum höfð. Allir sem kæmu til meistarans fengju andlega fylli sína og svöluðu þorsta sínum eftir réttlæti og mildi. Meistari unglingsáranna hvarf í skuggann þegar brauðstritið tók við næstu áratugi og þeir hittust oftast í jarðarförum. Eitt vindasamt sumarkvöld fékk hann samviskustyrkjandi skilaboð frá meistaranum um að búið væri að taka saman afrekaskrána og hans væri þar getið auk annarra. Brauð lífsins biði hans sem fyrr og upprisusamloka.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir