Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Ætlið ekki að ég sé kominn til að afnema lögmálið eða spámennina. Ég kom ekki til að afnema heldur uppfylla. Sannlega segi ég yður: Þar til himinn og jörð líða undir lok mun ekki einn smástafur eða stafkrókur falla úr lögmálinu uns allt er komið fram. Hver sem því brýtur eitt af þessum minnstu boðum og kennir öðrum það mun kallast minnstur í himnaríki en sá sem heldur þau og kennir mun mikill kallast í himnaríki.

Matteusarguðspjall 5. 17-19

Hundrað orða hugleiðing

Hún var eldri en tvævetur og horfði úr fjarska á þennan umtalaða meistara frá Nasaret. Það höfðu svo sem ýmsir mannkynslausnarar stigið á sviðið og verið mærðir. Ljóminn hvarf svo furðu fljótt af þeim enda reyndust þeir margir vera lýðskrumarar. Mergsugu ráðagerðirnar og eitruðu hugsjónirnar. En nú var meistarinn frá Nasaret kominn í sviðsljósið og hugðist koma ýmsu í verk sem ógert var. Traustar húsreglur himnaríkis voru kunnuglegar frá æskuheimili hennar. Ef þú virðir engar reglur ertu öðrum slæm fyrirmynd og færð auðvitað bágt fyrir. Sértu góð fyrirmynd og kennir öðrum það sama færðu bústin læk af himni og jörðu.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir