Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Hver sem heyrir þessi orð mín og breytir eftir þeim, sá er líkur hyggnum manni er byggði hús sitt á bjargi. Nú skall á steypiregn, vatnið flæddi, stormar blésu og buldu á því húsi en það féll eigi því það var grundvallað á bjargi. En hver sem heyrir þessi orð mín og breytir ekki eftir þeim, sá er líkur heimskum manni er byggði hús sitt á sandi. Steypiregn skall á, vatnið flæddi, stormar blésu og buldu á því húsi. Það féll og fall þess var mikið.“ Þegar Jesús hafði lokið þessari ræðu varð mannfjöldinn djúpt snortinn af orðum hans því að hann kenndi eins og sá er vald hefur og ekki eins og fræðimenn þeirra.

Matteusarguðspjall 7. 24-29

Hundrað orða hugleiðing

Þau voru dálítið sveiflukennd en þó sammála um að leggja traustar undirstöður undir líf sitt í aðalatriðum. Svo voru ýmsir einkaafkimar í lífinu sem þau í snarhasti skutu undir léttum stoðum á sendnum grunni vegna þess að þau héldu að brimhvít lífsorka þeirra fengi fyrir vikið meiri útrásarkraft og gæfi þeim dýpri lífsfyllingu. Samt voru þau alltaf jafn undrandi þegar steypiregn tilfinninganna og sambúðarárekstrar skoluðu öllu undan í þungu ölduróti hversdagsins. Strengdu þess þá heit að láta meistarann frá Nasaret eiga kjölfestuna í stóru sem smáu. Reynslan kenndi þeim að einstaklingsfrelsi þeirra var dýrmætara ef það stóð á bjargföstum stoðum.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir