Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Þetta vafðist dálítið fyrir honum svona um hásumarið. Hver var svo sem upplagður á sumarkvöldum að hlusta á þunglyndislegt tal um þjáningar og líflát? Ekki hann. En heiðrík upprisan var þarna líka. Hann hafði sem nútímamaður ekki skilið almennilega þennan þjáningarfulla inngang að upprisunni og var því lúmskt feginn að búið var að stafla þessum býsnum öllum í kyrravikuna þar sem föstudagurinn langi var einhvers konar jarðneskur hátindur áður en kom að upprisunni. Honum fannst það dálítið markaðsvænt fyrir trúna. Aðra daga var svo hægt að vera upplitsdjarfur og fagna eilífa lífinu. Hann hugsaði náttúrlega á mannlegum nótum. Hvað annað?

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: