Torfastaðakirkja í Skálholtsprestakalli, Suðurprófastsdæmi – Bláskógabyggð – var reist á árunum 1892-1893. Þar hefur kirkja staðið frá upphafi kristni í landinu.
Kirkjan er úr timbri, klædd bárujárni. Turninn er ferstrendur og ögn íbjúgur um miðjuna, klæddur sléttu járni. Upp af honum rís ljósakross.
Kirkjan á tvær klukkur. Sú eldri er frá 1739 og hin yngri frá 1890.
Altaristaflan er dönsk, eftir Anker Lund (1840-1922) og máluð 1893. Hún byggir á texta úr Lúkasarguðspjalli 7.36-50: Kristur blessar bersyndugu konuna.
Viðamiklar breytingar fóru fram á kirkjunni 1961. Kór var meðal annars byggður við kirkjuna. Gréta og Jón Björnsson máluðu skreytingar í kirkjunni sama ár – þær eru á prédikunarstól, fyrir ofan kór og í lofti, og austurgafli á framkirkju. Kirkjan var endurvígð 22. október sama ár.
Hitaveita var lögð í Torfastaðakirkju 1985 og hún þiljuð tveimur árum síðar með nýjum panelviði.
Kirkjan var friðuð 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.
Sjá nánar í Kirkjum Íslands, 3. bindi, R. 2002, bls. 141-165.
Altaristaflan er dönsk og Anker Lund málaði
Skreytingar í lofti
Horft til prédikunarstóls – hann er skreyttur með Lúthersrósinni á tveimur hliðum
Spjald úr prédikunarstólnum – stílfærð Lúthersrós
Hlýlegt svipmót er yfir Torfastaðakirkju, horft fram frá altari