Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Allt sem þér viljið að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera. Því að þetta er lögmálið og spámennirnir.
Gangið inn um þrönga hliðið. Því að vítt er hliðið og vegurinn breiður sem liggur til glötunar og margir þeir sem þar fara inn. Hve þröngt er það hlið og mjór sá vegur er liggur til lífsins og fáir þeir sem finna hann.

Matteusarguðspjall 7. 12-14

Hundrað orða hugleiðing

Fararstjórinn sagðist ekki vera í neinum vandræðum með að koma fram við fólk með sama hætti og hún vildi að það kæmi fram við sig enda allra hagur. En breiði og mjói vegurinn, það væri annað mál. Algjört kraðak væri á breiða veginum og árekstrar algengir. Sumir gengju þar nánast af göflunum. Færri fréttir bærust af ferðalöngum um mjóa veginn enda hann fáfarinn. Hún hafði reyndar heyrt á sóknarnefndarfundi að til stæði að breikka hann og setja í fjöltrúarlegan stokk í tilraunaskyni samkvæmt Evróputilskipun. Sjálf sagðist hún mest fara sína eigin vegaslóða en notaði líka „Google Maps“ í siðferðilegum álitamálum.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir