Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Nú gekk Jesús niður af fjallinu og fylgdi honum mikill mannfjöldi. Þá kom til hans líkþrár maður, laut honum og sagði: „Drottinn, ef þú vilt getur þú hreinsað mig.“
Jesús rétti út höndina, snart hann og mælti: „Ég vil, verð þú hreinn!“ Jafnskjótt varð hann hreinn af líkþránni. Jesús sagði við hann: „Gæt þess að segja þetta engum en far þú, sýn þig prestinum og færðu þá fórn sem Móse bauð, þeim til vitnisburðar.“

Þegar Jesús kom til Kapernaúm gekk til hans hundraðshöfðingi og bað hann: „Drottinn, sveinn minn liggur heima lami, mjög þungt haldinn.“
Jesús sagði: „Ég kem og lækna hann.“
Þá sagði hundraðshöfðinginn: „Drottinn, ég er ekki verður þess að þú gangir inn undir þak mitt. Mæl þú aðeins eitt orð og mun sveinn minn heill verða. Því að sjálfur er ég maður sem verð að lúta valdi og ræð yfir hermönnum og ég segi við einn: Far þú, og hann fer, og við annan: Kom þú, og hann kemur, og við þjón minn: Ger þetta, og hann gerir það.“
Þegar Jesús heyrði þetta undraðist hann og mælti við þau sem fylgdu honum: „Sannlega segi ég ykkur, þvílíka trú hef ég ekki fundið hjá neinum í Ísrael. En ég segi ykkur: Margir munu koma frá austri og vestri og sitja til borðs með Abraham, Ísak og Jakob í himnaríki en börn ríkisins munu út rekin í ystu myrkur. Þar verður grátur og gnístran tanna.“ Þá sagði Jesús við hundraðshöfðingjann: „Far þú, verði þér sem þú trúir.“
Og sveinninn varð heill á þeirri stundu.

Matteusarguðspjall 8.1-13

Hundrað orða hugleiðing

Fólk leitar auðvitað allra leiða til að ná heilsu aftur fyrir sjálft sig og sína. Annað væri sennilega óeðlilegt. Það fréttist með hraða ljóssins að meistarinn frá Nasaret byggi yfir lækningamætti og þegar slíkur heimslæknir er á ferð beygir fólk sig í auðmýkt og leggur heilsuvanda sinn í græðandi hendur hans. Hvað annað? Nafnlaus fársjúkur utangarðsmaður endurheimtir heilsu og hermaður rekinn áfram af brennandi kærleika til dauðveiks sonar síns gengur fram í svo kröftugri trú að hún trompar allt og meistarinn verður alveg dolfallinn. Trúin bjargaði honum og utangarðsmanninum á vegamótum hversdagsins andspænis guðshjartanu. Og lífskraftur himinsins umfaðmaði sveininn unga.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir