Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Vegurinn sem meistarinn talar um, hann er ekki að finna á google-map. Og sannleikurinn íklæðist allskonar búningum í samfélaginu og býður upp í dans við lífið á mörgum stöðum. En meistarinn frá Nasaret er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Vegur sem leiðir til lífs og eilífðar, sannleikur sem segir hver maðurinn er og lífið er hér og handan þess. Meistarinn vill að við séum þar sem hann er. Það er enginn húsnæðisskortur á himnum og við þurfum ekkert að óttast. Það er trúin sem er hornsteinn alls. Guð hefur axlað byrðar holdsins og öllu sem því fylgir í meistaranum frá Nasaret.